Færsluflokkur: Lífstíll

Dásamlegt að vera í Danaveldi...

Við Ásta saman í Danmörku 25.-8.ágúst 2007 034Hér erum við vinkonurnar í Silkiborg á sushi stað....já hún Ásta fékk mig til að smakka SUSHI;;:;:; believe it or not...en ég fékk hana á móti með mér í Yoga þannig að staðn er 1:1

Við höfum haft það svo gott, endalaust hollustufæði, hjólum, göngum og erum alltaf í íþróttum sko!!!Höfum EKKI keypt okkur neitt dömulegt..nema nokkur pör af skóm en það étur nú ekki mat...eða þannig sko! A lady has to do what a lady has to do..

Fórum í dag á fornbílasýningu og antikmessu í Rinköbing. Vá, hvað þarna voru flottir bílar..Rolls og Jagúar og allt sko.. bara flottir en allir eigendurnir voru í elsta kantinum...miklu flottari gæjar í fornbílaklúbbnum heima á Íslandi.

 

Allt að verða fullt í dömuferðirnar okkar hingað í seðtember...munið að bóka ef þið ætlið með elskurnar...

danmerkurknús

a


Í fréttum er þetta helst...

Sælar elskurnar og enn aftur so sorry hvað við hittumst sjaldan núorðið.

Það er bara svo gasalega skemmtilegt á sumrin, alltaf gott veður og sólin skín alla daga.

Frá því ég kom við hérna síðast hefur auðvitað margt gerst. Fór í Kerlingarfjöllin með Abbalöbbunum í gríðarlegu góðu veðri, eins og er alltaf hér um slóðir, nú um stundir... Við vorum náttúrulega 6 saman í virkilega lekkerum dömubústað undir súð. Opnuðum körfur og dreyptum á rauðvíni, bárum á okkur sólarvörn, röðuðum kremum í hillur og svona hugguðum okkur að sannra dömusið.

Strákarnir úr næstu kofum komu með blóm og margir litu við í táskot og yljuðu sér við okkar yndislegu og skemmtilegu nærveru. Svo var lagt af stað og gengið í eina átta tíma hinn rómaða Hveradalahring. Allar myndavélar á lofti og fönguðu litbrigði jarðar á þessum himneska stað. Ég set fljótlega inn myndir hér elskurnar...so many things...so little time!!!Júnóvatæmín...

Næsta dag gengum við enn af stað og fengum dásamlega föngulegan og lekkeran karlmann til að fara með okkur um gil og gljúfur, tásuðum okkur í Fossrófulæk og áðum oft og einatt í hlyjum lautum og smökkuðum aðeins á flatbrauði og fleiri fínheitum. Komum heim í K-kot og púðruðum nefið en héldum síðan inn dalinn í heita náttúrulaug þar sem enn voru lögulegar, lekkerar tær vökvaðar. Og ekki var allt búið enn því við skutumst í kvöldgöngu uppá Ásgarðsfjall sem eru einir 1000 metrar upp...upp mín sál og allt mitt geð!

Eftir allt þetta puð, fórum við í steypibað og síðan snæddum við fádæma góðan kvöldverð hjá girðingaverjunum´sem reka þennan líka huggulega restaurant þarna inni í fjöllunum.

Þriðji dagurinn var ekki síðri. Lagt af stað árla upp að Snækolli og klifið upp tæpa 1500 metra eða svo sagði hæðarmælirinn hans Halldórs og ekki lýgur nútímatæknin, ó nei!1492m. Ég náði þessu á mynd! Það er nú ekkert annað. Dáðumst að útsýninu og börðum okkur á brjóst um stund en renndum okkur svo niður gömlu skíðabrekkurnar...eða við reyndum það a.m.k Ég prófaði að setjast á nestisboxið en það var of lítið...eða rassinn of stór! Hefði þurft að vera með þoturass. Nema hvað lét mig hafa það og náði upp smáskriði um sund en var frekar dofin í hinum óæðri enda dágóða stund ef ekki lengi á eftir.

Svo var grillað um kvöldið og sungið og mikið grín og mikið gaman.

Lögðum af stað heim og komum við á Geysi í Haukadal í hádegisstað. Fengum hamborgara og kók, franskar, sósu og salat...Kata vildi þetta endilega og ís á eftir...þar fuku á okkur þær kalóríur sem áður urðu undan að láta á tindunum háu! En það er nú allt í lagi...Live a little my lady!

Þetta var dásamleg ferð og ég get varla beðið eftir þeirri næstu en hún er áætluð þann 15.ágúst. Þá ætlum við nokkrar dömur að labba Laugaveginn með Ferðafelagi Íslands. Það eru nú orðin hartnær tuttugu ár síðan ég fór hann síðast þannig að nú er mál að linni og rifjuð skulu upp fyrri kynni!

Svo skrapp ég til Bratislava með henni Brynhildi minni þar sem við unnum duglega þrátt fyrir 40 stiga hita og logn allan tímann. Við seldum og leigðum nokkrar íbúðir og áætlum að fara aftur í september og vinna þá stóra sigra á þessum slóðum. Gott með okkur stelpurnar!

 Í gærkvöldi var ég svo með systrum mínum í teklúbbnum á tefundi fyrir sunnan. Við erum að undirbúa inntöku næsta félaga í klubbinn en sú athöfn mun að líkindum fara fram í ágúst nk. Það verður náttúrulega einstakt gleðiefni fyrir þá ungu konukond að komast í þennan fræga klúbb...

Já , og svo er það Danmörk á morgun! Við Ásta förum saman og ætlum að skemmta okkur með eindæmum vel og huggulegar verðum við í tauinu, - það er ekki spurning! Við verðum bara einar til að byrja með en svo bætast fleiri í hópinn þegar líða tekur á og ég segi ykkur nú ALLT um það síðar.

Nú er ég farin að stúdera Búddhatrú og eftir því sem ég les meira verð ég sannfærðari um að þetta er mín leið. Kærleikur og umburðarlyndi, virðing fyrir öllu lífi og mátturinn í núinu!

Hér kemur ein góð saga í lokin:

Einu sinni voru tveir Zen munkar að ferðast saman. Þeir komu að fljóti sem hafði flætt yfir bakka sína og sáu þar nunnu sem ekki komst yfir því þá hefði hún atað pils sín auri. Annar munkurinn tekur hana umsvifalaust í fangið og ber hana yfir. Hinn munkurinn sagði ekkert en hugsaði mikið um þetta því samkvæmt trú þeirra mega þeir ekki snerta konur. Fimm klukkustundum síðar segir hann við félaga sinn: ,, Afhverju barstu konuna yfir svaðið"? Munkurinn leit forviða á félaga sinn og svaraði: ,, Ég setti konuna niður fyrir 5 klukkustundum! Ert þú enn að burðast með hana"?

Hugsið ykkur dömur mínar, hvað við getum lært mikið af þessu! Ef hugsanir okkar trufla okkur er best að upplifa tilfinningar sínar strax og losa sig svo umsvifalaust við þær...ekki setja neitt í poka til að bera á bakinu, það fer svo illa með líkamstjáninguna og dregur úr tíguleika okkar!

Eins og ég las einhverstaðar: Sterkust er sú kona sem hefur stjórn á hugsunum sínum!

All you need is LOVE

a


Fjallganga framundan!

Elskulegu dömur,

 Fyrirgefið hversu léleg og lítil skrif hafa ratað hér inn uppá síðkastið. Það er bara svo mikið að gera hjá minni! Sorry elskurnar! Ég mun standa mig betur þegar skyggja tekur og ég kemst í rökkurró með kertin mín logandi og heitan súkkulaðibolla við arininn.

ÞAð er bara þannig að það er svo gaman að vera úti í henni guðsgrænni elskunni og veðrið hér á Íslandi er náttúrulega alveg draumur! Við sátum saman systurnar í garðinum hennar og dáðumst að íslenska sumrinu,- hástöfum! Alveg búnar að gleyma að það var nánast frost hér fram undir miðjan júní! Þetta er svo gott við okkur, jákvæðnin er góð heilsubót.

Nú erum við stöllur að leggja uppí fjallgöngu inní Kerlingarfjöllum með Abbalöbbum. Leggjum af stað á sunnudagsmorgun kl. 09.00 og ökum inneftir. Við byrjum á að ganga Neðri- Hveradalahring og Kappalabbar fara á Mæni. Um kvöldið förum við svo að náttúrulauginni. Á mánudag er áætlað að fara á Blágnípu og svo á þriðjudag á Snækoll eða Loðmund. Endum svo með grillveislu og húllumhæi og förum svo heim á miðvikudag. Mikið hlakka ég til!

Læt ykkur vita hvernig tekst til þegar ég kem til baka , sólbrún og sælleg! Jú það verður skínandi sól allan tímann.... ég veit það fyrir víst!

fjallaknús með sólskinsívafi elskurnar!

a


Brjálaðar útsölur á Jótlandi...girls are gonna have fun now!!!

Elskulegu dömur!

Hvernig þætti ykkur að fá rauða hælaskó á 100 kall, rauðar kvartbuxur á 99 og Bitte Kai Rand hörskyrtu á....uss en það var samt hálfvirði...

Við mæðgurnar fórum til Árósa í dag. Dásamlegur dagur á Strikinu og sólin skein á okkur þar sem við skutumst inn í allar dásamlegu búðirnar , lekkerir eru þeir þessir dönsku hönnuðir...ó mæ GOD!

Við enduðum svo daginn hjá henni Bryndísi okkar yndislegu í kálfasteik og lekkeru meðlæti að hætti húsfreyjunnar. Sátum úti í sólinni og spjölluðum. Hún er svo að fara heim á morgun þessi elska.

Við eyddum svo kvöldinu með Audrey Heburn...Breakfast at Tiffanys! Sjáið alla kjólana hennar og bílarnir í þesari mynd eru klikkaðir!!!!!

Góða nótt elskulegu dömur

útsöluknús

a

 


Landsmót Fornbílaáhugamanna á Selfossi

Elskulegu dömur,

Fornbílaklúbbur 16.júní 2007Ég vil nú bara bjóða góðan dag og hvetja ykkur til að kíkja á Landsmótið okkar á Gesthúsatúninu um helgina. Ég fór í gærkveldi og það voru komnir margir gasalega lekkerir bílar. Ég fer svo núna þegar ég er búin að púðra á mér nefið og tek myndir handa ykkur elskurnar sem ekki eigið heimangengt. Passið þið bara að túbera hárið vel, það er óttalegur gassi að austan eins og er en það mun lægja þegar líður á morguninn.

Hlakka til að sjá ykkur

Fornbílafaðmlag

a


Bakkabúar grilla á ströndinni

Loksins kom sumarið til okkar! Bakkabúar voru viðbúnir og tóku fram allan sinn strandbúnað, grill og gúmmískó!Bakkabúar grilla á ströndinni 15.júní 2007 003Sumir komu akandi með hjólbörurnar sínar, aðrir með körfur en allir með góða skapið. Loksins rættist okkar langþráði draumur þar sem langborð var dúkað með hvítum dúk sem sveiflaðist í golunni sem var mjúk og yndisleg. Virkilega dömulegt veður!

Flestir íbúar í Lækjar, Laxa, Hellu -  og Árbakka mættu glaðir og reifir með sína stóla og sitt íslenska fjallalamb sem var svo grillað vel og vandlega á heimagerðum hlóðareldi í fjörunni við drottninguna okkar Ölfusá. Sigvaldi mætti með gítar og mandólín og svo bættist í hópinn góður liðsauki úr Vestmannaeyjum, bróðursonur Erlu , laglegur og ljóshærður piltur með gítar og fallega söngrödd sem kunni ósköpin öll af ættjarðarlögum og enn fleiri skátasöngva svo allir gátu tekið undir og söngurinn hljómaði fram á næsta dag! Já það er ekki amalegt að eiga góða granna. Hvað segir ekki: Góður granni er gulli betri, - það sannreyndum við þessa fögru vornótt á bökkum Ölfusár. Nú er bara að fara að hlakka til næsta viðburðar á Bökkunum! Ætli það verði ekki eitthvað skemmtilegt og lekkert eins og okkar er von og vísa. Að minnsta kosti höldum við okkar árlega Julefrokost í nóvember ef við getum beðið svo lenge..Bakkabúar grilla á ströndinni 15.júní 2007 018


Fornbílar á Kóngsvegi 16.júní 2007

Fornbílar á Kóngsvegi 16.júní 2007 024Elskulegu dömur og drottningar,

Það voru fleiri en við sem minntust konungskomunnar 1907. Ferðafélag Íslands og Fornbílaklúbburinn óku saman á fornar slóðir á laugardaginn var.

Við systurnar mættum auðvitað, uppáklæddar og lekkerar fyrir ykkar hönd og ég verð að segja það að við stóðum okkur bara virkilega vel. vorum mjög huggulegar alltsvo...á hælaskóm og með hatta.

Fornbílar á Kóngsvegi 16.júní 2007 008Þetta var semsagt gasalega gaman. Við skunduðum á Þingvöll og ókum svo yfir Lyngdalsheiði á Laugarvatn þar sem Ferðafélagið bauð uppá súpu og silung, mjög lekkert og smart hjá þeim. Þarna voru bæði innlendir og erlendir gestir, allslags séntilmenn og fínar danskar dömur í þokkabót!

Við buðum börnum og barnabörnum með enda um að gera að ala þau uppí réttum tíðaranda og venja þau við lekkeran klæðaburð og tónlist fyrri aldar. Þau eru bara virkilega hrifin af Mills bræðrum, Patsy Cline og Platters...að ekki sé alltsvo minnst á Presley heitinn, elskuna þá.

Fornbílar á Kóngsvegi 16.júní 2007 034Eins og sjá má skemmtu þau sér afar vel. Við stefnum nú á að taka upp forna siði og alltsvo venja börnin á að dressa sig fallega uppá á sunnudögum og fara í spássitúra. Nú eða jafnvel huggulega bíltúra á drossíunum. Þau eru afar jákvæð og til í það ef við lofum að fara af og til á Laugarvatn og leyfa þeim að vaða. Næstbesti kosturinn er svo að fara í berjamó með nesti og drekka ískalda mjólk úr Libby´s tómatsósuflösku og borða smurbrauð úr körfunni hennar ömmu. Best er auðvitað nýbakað franskbrauð með heitri rabbabarasultu eða þá franskbrauð með eggjum, tómötum og gúrku. Svo er gott að stoppa í Þrastalundi og fá sér ís í brauði og krembrauð. Já lífið er dásamlegt!

Svo kynntumst við þarna nokkrum afskaplega skemmtilegum séntilmönnum sem eiga fallegar drossíur á öllum aldri. Fornbílar á Kóngsvegi 16.júní 2007 028Þessi sló samt allt út! Hann á semsagt BLEIKAN dömubíl af bestu gerð...1956 árgerðina af Oldsmobile....þvílík drossía dömur mínar, Vó!

Við kynntum okkur fyrir þessum herramanni og þá kom í ljós að hann er auðvitað ættaður af Selfossi, The Capital City of Southern Iceland...where else would it be? Det hlöd ad være! Já þessi herramaður var afskaplega kurteis og herralegur og okkur leist mjög vel á hann. Við eigum eftir að hafa auga með honum og hans rennilegu drossíu. Til að kóróna alltsaman dró hann uppúr pússi sínu hvítan klút og pússaði sína draumfögru drossíu á öllum viðkomustöðum þannig að ekki safnaðist á hana rykkorn! Þetta ætlum vér dömur að tileinka oss...við verðum með bleika silkivasaklúta í farteskinu í næstu ferð!Det er nu altsaa klart!

Fornbílar á Kóngsvegi 16.júní 2007 046Þá er þessi nú ekki ólekker!

Þarna voru samankomnar svo margar glæsikerrur að því miður getum við ekki sýnt ykkur allar elskulegu dömur. Hins vegar viljum við altsaa hvetja ykkur til að koma á Landsmót okkar Fornbílaáhugamanna á Selfossi um næstu helgi. Þar verður mikið um dýrðir og mín verður með sína eðalkerru á föstudeginum að minnsta kosti ...verð svo að skreppa til Danmerkur á laugardaginn og öve mæ po danske mode...

Við sjáumst svo elskurnar. Njótið hverrar mínútu og verið glaðar í hjartanu,- það er svo skemmtilegt!

´Cooldrossíuknús

a

 


Að henda skó á eftir manni!

Sælar elskulegu dömur,

Var að koma af Þingvöllum. Við fórum á tveimur bílum, laglegar og léttfættar hnátur að fræðast um formæður okkar, Freyju og Frigg. Ingunn talaði nú mun meira um Freyju enda von , hún er aðalgyðjan okkar. Svo var bænastund í kirkjunni á eftir , voða notalegt en hefði nú mátt bjóða uppá Freyjusúkkulaði!!!

Ég held reyndar að Hildur vinkona okkar viti meira um Gyðjur en þessi kona sem við hlustuðum á. Reyndar held ég að Hildur viti mest allra núlifandi íslenskra og erlendra valkyrja um Gyðjur. Ég held við ættum að reyna að fá hana til að segja okkur rökkursögur í haust um Gyðjur. Það verður þegar allt ískalda púrtvínið verður búið og við aftur komnar í volgruna! Og eiginmennirnir okkar verða bara heima með hálsfestarnar sínar gulli slegnu!!!

En svo þegar ég kom heim sá ég Nýtt Líf hafði dottið inn um lúguna og fór að blaða í gegnum það. Ritstjórinn, sem er afar lekker ung dama, Heiðdís Lilja, skrifar sitt ritstjóraspjall um það að henda skó á eftir manni! Hún segir að 35%kvenna hafi kastað skó á eftir manni. Er þetta ekki ótrúlegt!!!

Hún vitnar í dönsku vefsíðuna: www.ubrugelig.dk

Reyndar mjög skemmtileg síða um alls konar óþarfa en samt gaman að geta slegið upp svona dömustaðreyndum...engin sönn dama kastar lekkeru skótaui! Ekki einu sinni á eftir manni sem hefur verið óþolandi leiðinlegur lengi, jafnvel hrotið alla nóttina og ekki sett setuna niður um áratugaskeið! Nei og aftur nei!

Dama kastar ekki skóm eða öðrum verðmætum. Það er bara ekki smart!

Ef dömu mislíkar þá setur hún upp sinn elegant smarta parísarfýlusvip og blimskakkar augunum undan sínum löngu og vellöguðu bráhárum í örstutt augnablik. Þetta er yfirleitt nóg til þess að viðkomandi skilji að honum hafi orðið á í messunni og gerir þá þegar bragarbót! Nú ef þetta dugar ekki þá má náttúrulega prófa að taka af sér silkihanskana, leggja þá báða í hægri hönd og slá hönskunum  svo ákveðið á vinstra handarbak. Þetta klikkar NEVER!

Ég á einn góðan málshátt sem ég hef á ísskápnum og ef ég er í vafa um að mig vanti skó þá les ég hann!

Sú sem deyr frá flestum skópörunum vinnur!

Annars sagði Esther vinkona mín að dama gæti alltaf bætt við sig pari,- og svo fylgdi þessa fleyga setning: Það étur nú ekki mat að bæta á sig einu skópari!!!

Skór eru bara svo lekkerir og alltaf getum við á okkur blómum bætt elskulegu dömur

LovjúInLove

skóknús,

a


29 stiga hiti og sól í Billund

CoolElskulegu dömur,

Heyrði í dætrum mínum í dag. Þær eru í Grænuhlíð og þar skín sólin og börnin hlaupa allsber á túninu og leita að moldvörpum. Ég sakna þeirra alveg ósköp en reyni að harka af mér því ég veit hvað það er gaman...

Hér var líka yndislegur dagur. Sólin skein og allir voru glaðir. Við fórum á sýninguna Vor í Árborg og ég keypti mér 11 feta veiðistöng hjá Birgi Nielsen...handa mínum í ammilispakkann, þið vitið! Svo hann sé duglegur að afla matar fyrir heimilið. Hann er reyndar svo mikil veiðikló að allir í fjölskyldunni eru farnir að fela sig á bakvið gardínur síðla sumars þegar kisturnar eru orðnar fullar af laxi, - paté, hakki farsi, mauki....Stella í orlofi uppskriftir um allt!

Mjög fín og skemmtileg sýning. Ég skráði mig á magadansnámskeið hjá Lifandi húsi sem byrjar á mánudaginn. Virkilega dömulegt að geta sveiflað mjöðmunum af kynþokka og glæsileik! Eða hvað slæðurnar eru flottar...drífum okkur elskurnar, það eru enn laus pláss!!!Svo er þetta svo gott og hollt og skemmtilegt fyrir andann.

Alltaf að prófa eitthvað nýtt á hverjum degi!

Hafið það gott elskulegar.

bumbuknús

a


Gyðjur á Þingvöllum

Dömuboð 2007 Hildur 010Hver einasta damista er Gyðja í hjarta sínu. Formæður okkar Frigg og Freyja voru áhrifamiklar dömur á sínum tíma en þær voru svo uppteknar við sín dömulegu störf , þ.e. að stjórna veröldinni... að þær höfðu ekki tíma til að skrifa söguna frekar en aðrar dömur svo að karlpeningurinn sá um það og gerði þar af leiðandi hlut kvenna minni en hann var í raun og veru.

Það er ekki allt satt sem stendur í bókunum þó gerðar séu af kálfskinni og ritaðar kálfsblóði!Dömuboð 2007 Hildur 034Nú er von að sannleikurinn komi í ljós! Hinn skörulegi þjóðfræðingur Ingunn Ásdísardóttir ætlar að segja okkur allt um hlut formæðra okkar, Freyju og Friggjar, í fyrirlestri á Þingvöllum þann 14.júní nk. Ferðin hefst við fræðslumiðstöðina við Hakið kl.20.00.

Ég held að við bara verðum að mæta elskulegu dömur! Ha! Annað er bara ekki sæmandi okkur sem sönnum dömum og Gyðjum!Dömuboð 2007 Hildur 007Sem við erum og höfum alltaf verið!

Rifjum nú aðeins upp það sem ritað hefur verið um þessar dásamlegu Gyðjur:

Freyja merkir frú. Hún er dásamleg gyðja ástar og frjósemi. Hún bjó ásamt bróður sínum Frey sem er frjósemisguð og föður sínum Nirði sjávarguðinum sjálfum,  í Ásgarði en þangað  voru  þau send sem gíslar og vináttuvottur eftir stríð tveggja ætta goða. Freyja var valdamikil gyðja og dýrkuð af konum jafnt og af konungum og hetjum. Hún jók frjósemd lands og sjávar og veitti hjálp í hjónabandi og við fæðingar. Þar sem hún er ástargyðja er hún sögð hafa átt marga ástmenn bæði goð og konunga sem hún studdi svo í valdatíð þeirra. Enda var nú alltaf sagt að að baki hvers karlmanns væri kona sem stjórnaði öllu í raun og veru þó þær hefðu ekki krafta í kögglum þá hlaut að vera einhver heili á bak við þetta allt saman!

Bóndi hennar var Óttar eða Óður var nú ósköp veiklyndur og grét af söknuði þegar hann þurfti að fara að heiman en Freyja kunni því vel því tárin voru úr skíragulli og komu sér vel í blingsafnið hennar elskunnar! Þau áttu dæturnar Hnoss og Gersemi.  Bær Freyju hét Fólkvangur og þangað voru allir velkomnir.

Freyja átti auðvitað eins og allar sannar dömur lekkeran farkost sem hæfði henni. Það var vagn sem tveir kettir drógu enda hafa konur og kettir alltaf átt margt sameiginlegt eins og tíguleika, afbragðsgáfur og útsjónarsemi...níu líf, hvað!  Hún átti einnig valsham sem var þeim eiginleikum búinn að er hún klæddist honum breyttist hún í fugl og gat flogið hvert sem hún vildi. Það er ekkert sem stoppar sanna dömu!

 Eins og aðrar kynsystur vorar var Freyja mikið fyrir blingið og átti þar af leiðandi mikið safn gulla og gersema en frægast þeirra er Brísingamenið hennar sem hún sá eitt sinn hjá dvergum af Brísingaætt en þeir voru ótrúlegir hagleiksmenn og höfðu smíðað dýrgripinn. Hún falaðist eftir því og þeir sögðu að hún mætti fá það ef hún eyddi einni nótt með hverjum þeirra og hún var auðvitað greiðvikin dama og samþykkti það enda bóndinn aldrei heima...a lady has to do what a lady has to do!!!!

Þegar Óðinn frétti af þessu varð hann öfundsjúkur og skipaði hann Loka að ræna meninu af Freyju. Loki breytti sér þá fló og á meðan Freyja svaf beit hann hana í kinnina svo hún bylti sér og hann rændi af henni skartinu. Þegar Freyja uppgvötaði að menið var horfið vissi hún strax að Óðinn hefði tekið það og heimtaði að hann skilaði því. Óðinn gerði það en fyrst þurfti Freyja að koma af stað vígum milli tveggja konunga en víg þessi þróuðust yfir í eina af helstu hetjusögnum víkingatímans.

Já, það verður gaman að heyra útgáfu Ingunnar sem mun örugglega vera Freyju í hag.Dömuboð 2007 Hildur 009

Þá er það hún Frigg Fjörgynsdóttir vinkona okkar. Ekki er hún síðri elskulega daman sú! Hún er höfuðgyðja í norrænni goðafræði og var eiginkona Óðins.  Nafn hennar merkir ást eða hin elskaða. Frigg veit allt, er forspá og sér fyrir öll örlög , þá þurfti nú ekki Tarotspilin. Hún er verndari hjúskapar, fjölskyldu og heimilis. Einkennisgripir hennar eru lyklar, mistilteinn, valshamur og rokkurinn sem hún notar til að spinna skýin. Frigg býr að Fensölum  í Ásgarði þar sem hún, eins og aðrar dömur hefur nokkrar stúlkur sér til aðstoðar við nokkur þau hin erfiðari verk sem vinna þarf heima og heiman.

Baldur sonur Friggjar var bjartastur Ása og honum unni hún mest sinna barna sem hún elskaði þó öll af heilum hug.  En þar sem Frigg sá lengra en en aðrir, vissi hún að Baldur var feigur. Til að reyna að vernda hann fékk hún allar skapaðar verur, menn, dýr og jurtir, og alla skapaða hluti úr málmi, tré og steini til að sverja að gera honum aldrei mein. Eftir það gátu goðin skemmt sér við að kasta hlutum að Baldri vitandi það að honum yrði ekki meint að.

En ódóið hann Loki var alltaf til alls ills vís og hann fann út að mistilteinninn hafði ekki svarið Frigg þennan eið þar sem  hún hafði álitið hann of ungan til að geta valdið skaða og þannig náði hann með klækjum að drepa hann Baldur.

En Frigg gafst ekki upp og freistaði þess að ná syni sínum úr Hel. Þá var henni tjáð að hann fengi að fara ef allir hlutir, bæði lifandi og dauðir fengjust til að gráta hann. Frigg sendi þá erindreka um allan heim og bað alla að sýna ást sína á Baldri og gráta hann. Allir urðu við þeirri bón, bæði menn, dýr, steinar og málmar, því allir elskuðu Baldur. En að lokum komu sendiboðarnir að gamalli konu sem neitaði að gráta Baldur því hún hefði aldrei elskað hann. Þetta var auðvitað hann Loki kallinn í dulargervi og Baldur blessaður mátti því dúsa áfram í Helju.Dömuboð 2007 Hildur 003

Í annarri sögu af Frigg sjást dömulegir eiginleikar hennar vel, afgerandi sjálfstæði og viska. Tveir ættbálkar áttu í erjum og hélt Frigg með öðrum ættbálknum en Óðinn með hinum. Þau rifust heiftarlega um þetta skötuhjúin en að lokum lofaði Óðinn því að hann myndi láta það lið vinna sem hann sæi fyrst er hann vaknaði næsta morgun. Hann hafði auðvitað rangt við því hann vissi að rúmið hans lá þannig að hann sæi fyrst mennina í sínu liði.

Frigg sá auðvitað við klækjum bónda síns og meðan hann svaf sagði hún konunum í sínu liði að greiða hár sitt yfir andlitið svo að þær litu út eins og skeggjaðir karlar. Svo snéri hún rúminu þannig að þær yrðu það fyrsta sem Óðinn sæi er hann vaknaði. Hann var mjög hissa þegar hann vaknaði og spurði hverjir þessir síðskeggjuðu menn væru. En eins og sannur herramaður hélt hann loforð sitt og þessi ákvörðun færði ættbálk þeirra sigur . Þannig sá Óðinn að lokum að auðvitað átti hann að láta konuna sína ráða og viðurkenndi að Frigg hafði valið betra liðið.

Dömuboð 2006 frá Erlu Soffíu 026

Já elskulegu gyðjurnar mínar. Skundum á Þingvöll og treystum vor heit þann 14.júní!

Hlakka til að sjá ykkur

Gyðjuknús

a

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband