Færsluflokkur: Lífstíll

Jane Austin tesystir okkar og náin dama...

sagði eitt sinn yfir tebolla: If things are going untowardly one month, they are sure to mend the next.Kissing Minnir okkur dömurnar á að rækta okkar innsta eðli og vera lukkulegar og lekkerar alla daga!  Já, bara bjartsýnar og blóðmiklar.... Og svo að hlæja meira....Hlátur er alveg einstakt meðal sem hreinsar æðakerfið og systemið allt, eykur blóðflæðið til húðarinnar þannig að við verðum sírjóðar í vöngum, slakar á spennu og er vatnslosandi, róandi og örvandi...skapar skemmtilegt andrúmsloft og bara allt í einum pakka!

Förum að hlæja!

a


Dömurnar komnar heim...

IMGP0457_editedJæja elskurnar, þá erum við dönsku dömurnar komnar heim! Þetta var svo skemmtileg ferð og vel heppnuð í alla staði enda varla von á öðru þegar slíkar eðaldömur eru á ferð saman! Eina sem við ætlum að hafa öðruvísi næst er að vera í viku lágmark...við áttum eftir að gera svo margt því tíminn flaug.

Við byrjuðum á því fyrsta kvöldið að koma okkur fyrir og dreypa örlítið á ávaxtasafa sem endaði auðvitað í miklu spjalli fram á rauðanótt eins og sannar dömur. Á sunnudagsmorgun kom Anna Sigga og nuddaði okkur allar hátt og lágt við slökunartónlist, kertaljós og reykelsisilm. Við elduðum svo veislumáltíð...enammi, namm og eftirrétturinn var að sjálfsögðu úr garðinum, nýtínd epli með súkkulaðikeim og krem fress! Á eftir komum við okkur vel fyrir með hunagsmaska, möndluolíu og gúrkur. Buðum landemannskonen af næsta bæ með okkur og lærðum heilmikið um fegrunarráð svartra kynsystra okkar í Ghana. Þær nota hvíttunarkrem og svo eitthvað efni til að slétta hárið...varð okkur þá rétt sem snöggvast hugsað til okkar hinna með brúnkukremið og permanentið...hvað er þetta með okkur! Jú, beauty is pain og frekar dey ég en að vera ósmart sögðu einhverjar dömurnar...jú en við erum allar svo eðlisfríðar og lekkerar, við megum ekki gleyma því! En það hafa jú margar konur atvinnu af þessu, búa til krem og tískuföt og svona, smyrja á okkur, plokka, lita og líma..jú þetta er allt svo nauðsynlegt. A.m.k. mjög skemmtilegt þegar við erum svona saman að dúlla okkur við þetta.

IMGP0446Svo voru tásurnar teknar í gegn, baðaðar, skrældar og smurðar eðalkremum , uppúr og niðrúr. Við vorum sammála um að við yrðum að undirbúa þær vel fyrir hælaskóna og verslunartúra næstu daga.

Eftir góða gönguferð og morgunverð daginn eftir, drifum við okkur til Brande og fórum í ALLAR búðirnar þar, nema dýrabúðina þar sem annars voru til sölu ágætis dverghamstrar og dýrafóður! Við náðum okkur þarna á skrið í útsölum jafnt sem og í nýjustu vetrarlínunum, sumar gerðu stórinnkaup á afskaplega vönduðum stígvélum, nokkur pörin lágu þar- og bíllinn var nánast orðinn fullhlaðinn og rætt var um að fara heinm og losa! Svo fengum við okkur að sjálfsögðu smörrebröd og öl á Hótel Dalgar. Virkilega huggeligt!

Næst lá leiðin til Vejle og þar skottast um í göngugötunni uns skyggja fór af degi. Mikið verslað og skoðað og hlegið...fórum svo til Give og fengum okkur þar danskan rækjukokteil og salat því allt starfsfólkið á Diagonal Kroen var í dýragarðinum svo skúringamaðurinn var einn í eldhúsinu með aldraða frænku sína og því takmarkað úrval í boði af annars ágætum matseðli.

Næsta morgun eftir göngu og jógateygjur...eða var það afródansinn þá...man ekki alveg hvernig þetta var allt í röð..þá fórum við til Árósa þar sem stóð yfir festuge og mikið var um græna kalla og kattarfólk á sveimi. Enn var strollað um fortó og stræti, enn var kíkt í smörrebröd og öl og enn var mikið grín og mikið gaman. Ýmislegt var verslað að sjálfsögðu...krem, og hárklístur, lekker armbönd og eyrnalokkar en ein okkar sló allt út og kom með fullan poka af svörtum og frekar ódömulegum fiski sem notast skyldi í súpu að afrískum uppruna...enamm i namm! Something fishy if going on ...Til að fyrirbyggja óvænta veislu þegar heim yrði komið, fórum við á afar vandaðan og huggulegan veitingastað í borginni...þar hittum við Önnu Siggu og Veru dóttur hennar sem er jógakennari og ætlar að fara að eiga barn í næstu viku. Þá verður storkurinn settur útí garð hjá þeim mæðgum...það er svo danskt og skemmtilegt!

Ekki var nú allt búið enn því enn tók við snyrting og alls lags herlegheit þegar heim var komið. Skipulögð næsta dömuferð sem verður með kóngsdótturinni til Ghana í júlí á næsta ári...jú þar munum við hitta kónginn og velja okkur gullskartgripi og demanta...svo eitthvað sé nefnt! Enduðum svo í hláturjóga fyrir svefninn...

Síðasti dagurinn okkar var miðvikudagurinn...Við fórum með Þrúðu suður að landamærum og hittum þar fágæta konu. Hún býr í risastóru húsi og er fyrrum prestsfrú og Þ. leigði hjá henni á árum áður þegar hún bjó þarna í Danmörku. Þarna var tekið vel á móti okkur og við áttum góða stund áður en haldið var til baka. Stoppuðum í Nissebutik sem var því miður lokuð...komum aftur þar síðar. Þurfum líka að skoða jólabæinn Tönder og hunangskökubæinn Christiansfield...en það verður í næstu dömuferð! Við áttum svo góðan eftirmiddag í Give, smá shopping og naturligvis smörrebröd og öl!

Brenndum svo heim og tókum allt í gegn..vorum komnar snemma á flugvöllinn og áttum gott flug heim með heilu handboltaliði...geri aðrar dömur það betra...já þá er okkur viðbrugðið!

Þetta var virkelige hyggeligt alltsvo og Alt for damerne!

knús og klem í bili

a


John Lennon og dömur

Cool Við hittumst hérna nokkrar elskulegar dömur og vorum í frekar djúpum pælingum um lífið og tilveruna. Okkur finnst að John Lennon hafi verið svona frekar inni á damistulínunni sko! Hann sagði til dæmis.. Life is what happens while you are busy making other plans...

Svo sagði hann líka...Það er auðvelt að lifa með augun lokuð og misskilja allt sem þú sérð...

Við sem erum miklir friðarsinnar og erum byrjaðar að breyta heiminum... með því að breyta okkur sjálfum og gerast damistur, tökum eitt andartak í einu og upplifum það með fullri meðvitund og glaðvakandi. Við byrjum hvern dag á hugleiðslu um það hvernig við ætlum að hafa daginn, öndum að okkur fegurðinni og öllum gjöfunum sem við fáum á hverjum degi og frá okkur öndum við þakklæti, kærleika og umburðarlyndi. Á kvöldin förum við svo yfir daginn og skoðum hvað við gerðum vel og eins hvað er enn hægt að laga. Þannig kemur þetta allt og við verðum betri manneskjur með hverjum deginu sem líður. Æfingin skapar Damistuna!

Syngjum svo Imagine með John Lennon til að minna okkur á hvað þetta verður allt gott og skemmtilegt þegar við verðum öll orðin eitt!

 

Imagine

John Lennon

 

Imagine there's no heaven
It's easy if you try
No hell below us
Above us only sky
Imagine all the people
Living for today...

Imagine there's no countries
It isn't hard to do
Nothing to kill or die for
And no religon too
Imagine all the people
Living life in peace...

Imagine no possesions
I wonder if you can
No need for greed or hunger
In a brotherhood of man
Imagine all the people
Sharing all the world...

You may say i'm a dreamer
But i'm not the only one
I hope some day you'll join us
And the world will be as one

1 Við ætlum að stofna leshring, damisturnar. Fyrsta bókin sem við ætlum að lesa er Mátturinn í núinu/ The Power of Now eftir Eckhart Tolle. Tökum eina bók á mánuði og hittumst svo og ræðum saman um hana. Nokkrar damistur eru þegar skráðar og við sendum út póst í vikunni um þetta allt saman elskurnar. Sendið okkur línu ef þið viljið vera með.

knús og kram

a

 


Dömuferðin undirbúin

Og svo komu Kata, Kiddi og Lára 1.ágúst 2007 034Já, elskurnar við erum að verða dálítið dularfullar...

Nú erum við að fara í dömuferð til Danmerkur...jú,jú! Hittumst í kvöld og skipulögðum. Fyrsta daginn verðum við í Grænuhlíð og Anna Sigga kemur frá Árósum og nuddar okkur. Vonandi fáum við snyrtifræðing líka svo við getum dúllað okkur og fengið dekur við dömuhæfi...

Næsta dag förum við svo til Árósa og kíkjum á bæjarfestivalið, tökum nokkra konserta og kaupum kjóla, skó, veski og eitthvað svona dömulegt...þið vitið A lady has to do what a lady has to do!

Svo þurfum við auðvitað að fara í kirkjubúðir, loppumarkaði, sveitabúðir, dönsk bakarí og auðvitað að fá okkur öl og smörrebröd oft og einatt.

Við erum þó nokkuð sjálfbærar með tvo nuddara, langhlaupara, afródanskennara, garðyrkjufræðing og tölvusnilling...aldrei að vita með spilin og súkkulaðið...svo þurfum við að taka jógaæfingar í garðinum á morgnana og spá í andleg málefni. Það verður jú að sinna öllum þáttum dömueðlisins.

Gasalega erum við að verða spenntar!

Við látum ykkur frétta af okkur, a.m.k það sem má fréttast!

dömuknús með lakk og lús

a


Dömuferð um Laugaveginn

Sælar elskurnar,

Við vinkonurnar vorum að koma úr virkilega skemmtilegri dömuferð með Ferðafélaginu. Gengum úr Landmannalaugum inní Þórsmörk með nokkrum lekkerum útúrdúrum uppá öll fjöll á leiðinni...klifum jökla og stukkum yfir sprungur..eins gott að vera búin að sóla hælaskóna og mannbroddana líka...

Frábærar fararstýrur, Helga og Elín stýrðu okkur fimlega framhjá öllum hættum og við vorum eins verndaðar eins og James, og þá er ég að tala um James Bond,-  væri með okkur! Nema þær elduðu líka þessar dýrindis krásir í okkur kvölds og morgna...þvílíkur lúxus! Ég er ekki viss um að við nennum oftar í virkilega erfiðar göngur með 20 kílóin á bakinu eftir þennan íburð, sko! Ég meina , við dressuðum okkur upp á kvöldin með lipstikk og allt nema silkikjólana og settumst eins og prinsessur við uppdekkað borð og dreyptum á frönskum ávaxtasöfum milli þrss sem rjúkandi réttir voru bornir fyrir okkur!

Hópurinn var líka svo skemmtilegur, dásamlegar dömur frá 20-80 ára gamlar samkvæmt almanakinu en allar ungar í anda og rjóðar í kinnum.

Síðasta kvöldið var svo herleg veisla í Þórsmörk þar sem við skemmtum okkur og þá komu þessar elskur...Helga og Elín með gjafir handa okkur....í ofanálag við allt hitt eins og það hefði nú ekki verið nóg! Undirrituð fékk bleika blúnduhanska, uppáháa sem hylja olnbogann ef illa fer með brúnkukremið nýja frá DOVE...gasalega lellerir og koma sér vel fyrir næsta dömuboð!

 Var svo heimavið fyrrihluta sunnudags, fór í afmæli á Lyngheiðina en síðan fórum við hjónin vestur á Snæfellsnes og gistum á Búðum með vinahjónum okkar að sunnan. Mikið indælisfólk! Við heldum svo vestur í Laxá í Dölum á mánudag þar sem við hittum okkar góða vina- og veiðimannahóp og drógum þar nokkra laxa á land. Áin var ósköp þreytuleg og þurr á manninn til að byrja með og gaf lítið en svo rigndi duglega á þriðjudag og þá fór heldur betur að færast fjör í leikinn.

Nú erum við að leggja lokahönd á að skipuleggja dömuferðina til Danmerkur þann 1.september. Við ætlum að fá til okkar nuddkonu og snyrtikonu á sunnudaginn, förum svo í Aarhus á mánudaginn og svo verðum við eitthvað að damast á Jótlandi hinu fagra...Það þarf ekki mikið að skipuleggja þegar konur eru annars vegar...þar sem dömur eru saman .- þar er alltaf gaman!

Fjölskyldan fór í Rauða Húsið áðan og svo í kvikmyndahús bæjarins að sjá hina nýju Astropíu...frábær og skemmtileg mynd ! Við hlógum mikið en kannski mest af því að fyrir framan okkur sat hópur af Nördum eins og hvað best er kynntir í myndinni og þeir skemmtu sér svo vel og hlógu svo ógurlega að við skildum miklu meira af myndinni en ella. Það er greinilega til svona fólk sem kann allar helstu brellurnar í RLP....góð skemmtun og gaman að fara á svona glaða mynd!

Við ættum kannski að reyna að koma okkur upp nokkrum svona leikhópum og æfa okkur í þessu RLP. Þetta er víst voða vinsælt þarna fyrir sunnan og eitthvað aðeins hefur þetta borist hér austur fyrir fjall og þá aðallega með Vestmannaeyingum sem hafa flust búferlum til borgarinnar og numið þar hin ymsustu fræði, hagnýt mjög! Ég frétti að minnsta kosti af hópi fólks sem tók þátt í svona ,,Murder she wrote" ævintýri og það var gasalega vel heppnað og skemmtilegt. Ég sæi fyrir mér að við dömurnar settum upp svoana RLP þar sem við værum frægar kvikmyndastjörnur og gætum þá virkilega notið okkar í dramatík og lekkerum dömudressum...Hvað með Breakfast at Tiffany´s! Það væri nú eitthvað fyrir okkur elskurnar, ha! Hvað segið þið um þetta?

Látum þetta duga í bili darlings

Lovjú

a


Anna Kristín tekin inn í teklúbbinn með pompi og pragt!

Anna Kristín kemur í teklúbbinn 002Elskulega vinkona okkar og daman Anna Kristín var tekin inn í teklúbbinn í gær við afskaplega hátíðlega athöfn. Hún fékk tösku heim til sín og dressaði sig upp eins og sjá má af myndinni hér.. Síðan tók snótin langferðabifreiðina suður til Reykjavíkur þar sem hennar biðu mörg og afskaplega krefjandi verkefni. Hún sótti veiðistöng í pakkaafgreiðsluna hjá Pétri vini okkar Steinsen og gerði sér svo lítið fyrir og tók prívatbíl niður að tjörn þar sem hún reyndi að renna fyrir fisk en fékk lítið annað en mikla athygli vegfarenda.

Anna Kristín kemur í teklúbbinn 001Sérstaka samúð fékk hún frá starfsmanni Rauða Krossins sem bauðst til að aðstoða hana og sagði henni frá lyfjagjöf sem væri til reiðu í boði borgarinnar...en stúlkan var stabil og gekk sem leið lá uppá Skólavörðustíg þar sem hún valdi osta og blóm, og fór svo í Te og Kaffi þar sem hún valdi te við hæfi teklúbbsins...eða svo hélt hún þá!

Við hittumst síðan yfir góðum veitingum á B5 en daman tók svo almenningsvagn austur í Breiðholt og þar pikkuðum við hana upp, þessa elsku og fórum í Fífuhjallann þar sem við fórum yfir plúsa og mínusa og dreyptum oggulítið á rauðvíni...bara oggupons því við erum svo penar.

Anna Kristín kemur í teklúbbinn 031Þarna fór allt vel og hún hafði staðið sig einkar vel og var samþykkt samhljóða inn í klúbbinn...Við grilluðum síðan og skemmtum okkur vel saman...ekkert nánar um það, sko...dömur verða að vera orðvarar, það er kvenkostur..

Er að leggja af stað í gönguferðina góða í fyrramálið. 4 dagar inni á fjöllum...það er bara dásamlegt! Segi ykkur svo allt um það næst elskurnar...

until then

Munið að lifa í núinu og njóta hverrar mínútu glaðvakandi...

knús

a


Herleg brúðkaupsveislan var...

IMGP0267Hér sjáið þið elskulegu dömur...næstu kynslóð af okkur! Þær voru svo sætar og lekkerar þessar elskur!

Þetta er nú eitt allra skemmtilegasta brúðkaup sem ég hef farið í! Athöfnin fór fram í Selfosskirkju og prestur var séra Auður Eir, virkilega skemmtileg kona. Regína Ósk sá um söngatriðin og hún er bara snilld, ha! Fyrst söng hún sálm úr Korintubréfinu, Kærleikur....svo flott og fallegt og satt....

Til hvers er að eiga allan auð heimsins ef maður á ekki kærleika í hjarta sínu?...

Svo söng hún nokkur önnur lög og endaði á Happy days og kirkjan iðaði af gleði, allir klöppuðu með og okkur fannst eins og við værum í amerískri negramessu...æðislegt!

IMGP0280Svo fóru brúðhjónin í flottasta bíl ever....sko mínum...í myndatökuna og Árni Steinarsson var ekill með kaskeiti og allt. Við hin drifum okkur að Syðri-Brú og biðum hinna nýbökuðu brúðhjóna í góðum félagsskap ferskra ávaxta og súkkulaðibrunns.Maturinn var frá Geysi þannig að við vissum að von var á góðu...

Svo var dansað fram á rauðanótt og morguninn eftir Brunch að hætti húsfreyjunnar...say no more!

Já þetta var frábært... Búðkaup aldarinnar!!!

IMGP0276

 


Heilræði fyrir okkur á hverjum degi...

Elskurnar mínar,

Ég verð að setja inn eitt gott gullkorn sem ég var að lesa og mér finnst svo rétt og gott að reyna að hafa í huga á hverjum degi...

 Hafðu það fyrir vana að gera eitthvað fyrir aðra á hverjum degi. Það er sama hvort þú gefur af sjálfum þér, tíma þínum eða peningum, segir eitthvað uppörvandi eða ert góður hlustandi,- Þú munt finna ólýsanlegan frið og hamingju.

Sælla er að gefa en þiggja...

Með þetta fer ég útí daginn elskulegu dömur og vona að við gerum það allar. Búum til betri jörð...með því að byrja heima!

Hamingjuknús

a


Komin heim í heiðardalinn...

Og svo komu Kata, Kiddi og Lára 1.ágúst 2007 093Svona eru nú dömuleg og lekker blómin í tjörninni minni elskulegu dömur. Mikið er nú gott að vera komin heim... Því er ekki að neita að óendanlega fleiri ekta dömur eru nú hér á Íslandi en í henni Danmörku...a.m.k. þarna í sveitinni hjá mér úti á Jylland.

Við erum nú á fullu að undirbúa brúðkaup bróður míns og besta vinar en hann ætlar að skella sér í það heilaga á laugardaginn. ´Hann hefur fundið sér indæla stúlku sem er eins góð og hún er falleg. Hún er  myndarleg húsmóðir bakar og eldar dýrindiskrásir og býður okkur oft og einatt í mat, kaffi og meððí...afskaplega góð stúlka ...og mikil dama...ekki má gleyma því! Mikið fyrir allt bleikt og bling.

Nú verð ég að fara að halla mér. Þarf að mæta snemma á snyrtistofuna í fyrramálið í alls lags onduleringu. Mín verður nú að vera lekker á laugardaginn...veislustjóri og allt það...

Við systurnar erum búnar að undirbúa okkur með afskaplega dannað og huggulegt atriði sem við munum troða upp með og ég veit að mun vekja lukku hjá þeim nýgiftu..læt ykkur frétta elskurnar!

Knús og kram...nætí næt girls!

aOg svo komu Kata, Kiddi og Lára 1.ágúst 2007 092


Enn af okkur í Danaveldi

Og svo komu Kata, Kiddi og Lára 1.ágúst 2007 008Nú eru þau komin, Kata mín og hennar fjölskylda. Við höfum kýrnar okkar hér í túninu og þær upphefja mikinn aftansöng á hverju kvöldi...svona um klukkan 17.00. Bóndinn kemur oftast hlaupandi og skilur ekkert í þessum látum í kúnum sínum en við höldum að þeim langi bara svo ósköp mikið að læra íslenska dömusiði..jú það er það... Þarna er reyndar eitt myndarlegt naut með í hópnum en hann hefur hægt um sig blessaður, naut eru svo gáfuð og skilja hvenær dömur þurfa að tjatta saman og hafa gaman

Við fórum á ströndina í dag. Það var mjög heitt og við hlupum um í sandinu og dönsuðum með öldunum. Urðum svo brúnar og flottar og tíndum steina með Söru Jasmín. Nú eru þau að fara á morgun og ég veit að ég mun sakna þeirra. En þá tekur við garðvinna og tiltekt og svo bara að fara heim á miðvikudaginn.

Alltaf gott að koma heim, hvar sem heima er...alls staðar og hvergi...nú er mín að verða heimspekileg ...

Sjáumst fljótt á Íslandi elskurnar

a


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband