Færsluflokkur: Lífstíll
Æ, elskulegu dömur,
Þær sem eru að gera þetta í fyrsta sinn segjast finna fyrir mikilli andremmu, svitakófum og höfuðverk. Líkaminn er að reyna að losa sig við uppsafnaðan óþverra svo nú tekur á , gæti tekið daginn á morgun líka. Ykkur finnst maginn útbelgdur og þið eruð alltaf á klóinu, pissið eins og sjóarar en kannski minna hinum megin. Það kemur,- annars er það ógeðsdrykkurinn hennar Eyglóar, Epsom salt , olía og vatn...nánar um það síðar.
Strax eftir daginn á morgun líður ykkur miklu betur. Verið samt á varðbergi og passið að borða nógu mikið og fjölbreytt grænmeti, soðið, steikt, hrátt, ristað, bakað og gufað...fræ, hnetur, olíur, kókosmjólk, kókosflögur, alls konar græn te og grænmetissafa...og ef þið eruð alveg að gefast upp ,- huggið ykkur með harðfiskbita.
Læknirinn í hópnum segir að þetta sé mjög hollt og nú var að bætast einn hjúkrunarfræðingur í hópinn þannig að við erum vel kvenntar þegar við förum saman út á lífið og litlu númerin fjúka út í búðunum...
Allar fyrir eina, ein fyrir allar
Við getum allt sem við viljum!
knús
a
Lífstíll | 25.4.2007 | 14:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jæja kæru dömur,
Í dag er dásamlegur dagur og við finnum nú hvernig rennur af okkur lýsið...
Við fengum okkar ferskt og gott salat með tómötum, gúrku, papriku, aluk, ólífum, tómötum , hvítlauk og basil. Með þessum var svo drukkið eitt stórt glas af gulrótarsafa. Nammi, namm!
Með deginum í dag erum við komnar yfir erfiðasta hjallann. Þið finnið örugglega fyrir smáslappleika en það lagast allt með því að drekka mikið vatn og fá sér göngutúr í rokinu. Hugsið bara um markmiðin og hvað nú er stutt eftir...hálfnað verk þá hafið er!
Ef þið viljið þá má fá sér á morgun harðfisk og söl, smásmakk af og til næstu daga svo þið fáið meira prótín. Hver og ein verður að hlusta á líkamann sinn en ekki þó að vorkenna sér og gefast upp.
Nú er ég að fara á Olísstöðina að ná í allt fíneríið mitt frá Akri
Sendi uppskrift fyrir kvöldið á eftir
Veriði dömulegar í dag elskurnar
a
Lífstíll | 25.4.2007 | 13:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
eftir að hafa borðað réttinn hennar Sollu. Sá er saðsamur! Við vorum að hlæja að því að nú megum við borða eins og við mögulega getum og allt er bara hollt og fer beint í brennslu.
Nú erum við orðnar svo margar útum allt bara! Bryndís vinkona okkar í Árhúsum ætlar að vera með og hún er til í að vera stílisti ef við komum í verslunarferð til Danmerkur... Það er gott að safna hugmyndunum saman og velja svo einhver skemmtileg verðlaun fyrir þennan kraftmikla hóp. Félagsskapur kátra og krúttlegra kvenna heldur aðalfund í Danmörku..hvernig hljómar það?
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf
Kosning stjórnar
Grænmeti verður borið fram milli fundaratriða...og eins á eftir!!
Grasrótarsafi í boði hússins.
Þetta fer allt í hugmyndabankann.
Annars heyrist mér að flestum líði vel. Sumar segjast vera svangar þrátt fyrir að þær hafi borðað meira en venjulega. Það er góðs viti, brennslan er komin í gang og fitan lekur af okkur.
Flestar eru duglegar að hreyfa sig og dúlla við sig sem er auðvitað nauðsynlegt.
Ef ykkur er kalt er gott að fá sér tesopa með smá ceyennepipar, bregst ekki.
Hér kemur svo ein góð uppskrift fyrir morgundaginn:
Gulrótarsúpan góða fyrir 6
6 meðalstórar gulrætur skornar í sneiðar
3 sellerístilkar, skornir í bita
1 laukur smátt skorinn
1 paprika rauð skorin í bita
1 msk kókosolía
1,5 lítri vatn
2 tsk grænmetiskraftur
dash af ceyennepipar
1 msk fersk basilika
1,5 tsk þurrkuð salvía
1 tsk karrý
Olían hituð í potti og laukurinn mýktur aðeins. Allt hitt hráefnið sett í pottinn ásamt helmingnum af vatninu og grænmetið soðið þar til það er meyrt. Afgangnum af vatninu bætt við og súpan bragðbætt með sjávarsalti og svörtum pipar eftir smekk, hituð upp að suðu og borin fram
Góða nótt elsku fallegu dömur, nú göngum við til hvílu með bros á vör og heyrumst í fyrramálið.
gulrótarknús
a
Lífstíll | 24.4.2007 | 20:31 (breytt kl. 20:34) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Elskulegu dömur,
Halla vinkona okkar í Kello ætlar að bjóða okkur til sín í búðina huggulegt dömukvöld fyrir sunnan. Það verður spennandi, vonandi er hún með nóg í litlum númerum fyrir okkur!
Íris segir að við eigum að vigta okkur svona...ótrúlega uppörvandi!
En elskurnar mínar. Ef þið viljið frekar fara eftir uppskriftum en bara að tína til úr kæliskápnum, þá eru nokkrar uppskriftir hér. Þetta hjálpar okkur líka til að auka fjölbreytnina. Ég held að við verðum að skreppa útí búð á okkar prívatbíl og bæta við kryddúrvalið miðað við þessar uppskriftir allar! Það má nota kókosmjólk í hófi og kókosflögur eru dásamlegt trít...
http://www.madurlifandi.is/uppskriftir/graenmetisrettir/
http://cafesigrun.com/uppskriftir/?ufl=10
Gangi ykkur vel, heyrumst í kvöld elsku kókosbollurnar mínar
a
Lífstíll | 24.4.2007 | 13:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Elskulegu dömur
Í kvöld skulum við hafa veislu að hætti Sollu í Grænum kosti Hagkaupa.
Þetta heitir Ratatouille og hér kemur uppskriftin:
2-3 msk kókosolía
2-3 stk laukar
2-3 hvítlauksrif
1 lárviðarlauf
1 stórt eggaldin
1 stk fennel
1 tsk sjávarsalt
11/2 tsk þurrkuð basilika eða 2 msk fersk
1 tsk majoram
1 tsk oregano
1/2 tsk timjan
1/2 tsk rósmarín
1 stk stór kúrbítur
2 stk stórar paprikur
1/8 tsk cayenne pipar
450 gr tómatar
2 msk tómatmauk
1/2 búnt steinselja
Afhýðið laukana og skerið í þunnar sneiðar. Pressið hvítlaukinn og skerið eggaldin í 2x2 cm bita. Skerið fennel í 1x1 cm bita og kúrbít í 2 cm þykkar sneiðar. Skerið paprikurnar í tvennt , fræhreinsið og skerið í 2x2cm bita. Skerið tómatana í tvennt og síðan hvorn helming í 4 báta. Fínsaxið steinseljuna. Hitið olíuna í potti og mýkið lauk, hvítlauk og lárviðarlauf í um 5 mín. Bætið eggaldini, fennel, salti og kryddi útí .Setjið lok á pottinn og látið mallaí um 10 mínútur. Þá setjið þið kúrbít, paprikur, cayennepipar, tómata og tómatmauk útí og sjóðið í aðrar 10 mín.Stráið saxaðri steinselju yfir réttinn og berið fram.
Nammi namm, heppnast alltaf!
En fyrir ykkur sem komið seint heim og eruð fallnar á tíma:
Taka frosið grænmeti úr frystinum og blanda ýmsum tegundum saman í pottinn sem bíður með kraumandi kókosolíunni. Nota svo hnetur, fræ og möndlur til bragðbætis og krydda af hjartans lyst.
Bera alltaf fallega fram og skreyta diskana jafnvel með steinseljugrein eða öðru góðgæti
Gangi ykkur vel elskurnar
Lífstíll | 24.4.2007 | 13:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
,,Þó að þér sýnist eitthvað erfitt, máttu samt ekki halda að enginn geti gert það. En allt það sem aðrir geta, skaltu halda að þú getir einnig."
Svo mælti Markús Árelíus elskulegu dömur mínar og við vitum að við getum allt sem við viljum...vandamálið er bara að stundum veit kona ekki hvað hún vill...en það vitum við núna!
Nú er kominn annar dagur og okkur farið að líða enn betur. Höfuðverkurinn farinn, orkan stígur og nú má búast við að okkur langi til að fara að taka til í skápunum, senda gömlu fötin í Rauða- Krossinn og rýma fyrir nýjum. Ein af okkur kom með góða hugmynd í morgunleikfiminni...væri ekki sniðugt að við færum bara allar saman til Amríku eftir þetta allt saman og versluðum okkur föt? Dollarinn er óhemjuhagstæður og Victoría Secret er með mjög lekkeran undirfatnað sem fæst bara þarna úti í henni Amríku..hugsum þetta og setjum í hugmyndabankann um lokahófið og verðlaunin.
Í morgun byrjaði ég auðvitað á hreinsun með sítrónute og ceyennepipar. Fór svo í Rope Yoga í Lifandi húsi sem er náttúrulega dásamlegt og ég finn hvernig gamlar mittislínur koma í ljós , smátt og smátt, hægt en örugglega!
Morgunmaturinn var svo tómatabátar, gúrkur og aspas á stórum diski, stráði ristuðum fræjum yfir og drakk grænt te með.
Hádegismaturinn sem ég er að borða núna er fullt af fersku salati, iceberg, paprikur, tómatar, gúrkur, laukur, rauðrófuteningar og valhnetur. Kreisti yfir þetta smá sítrónu, ríf smá engiferrót og strái svo nokkrum piparkornum yfir.
Svo borða ég restina af indversku prinsessusúpunni í eftirmat. Þegar þið borðið niðursoðið grænmeti verðið þið að skola það svo þið fáið ekki sykur í ykkur elskurnar.
Munið svo að hafa með ykkur eitthvað nasl og stinga uppí ykkur bita ef þið finnið fyrir hungri...bannað að verða svöng !
Ég sendi ykkur uppskrift að veislumat fyrir kvöldið eftir fimm mínútur eða svo
grænmetisknús
a
Lífstíll | 24.4.2007 | 12:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sælar aftur elskulegu dömur,
Ég vona að ykkur líði vel og séuð ekki svangar... Ein af okkur dömunum kom hingað í kvöld og við ræddum um næstu skref í þessum dásamlega hreinsunardansi okkar.
Okkur var svolítið kalt, það er oft hrollur í manni og hálfgerður höfuðverkur þegar eiturefnin eru að fara úr líkamanum..kannski er þetta líka kaffiskortur! Við suðum okkur vatn og settum ceyennepipar, sítrónu og engiferrót saman við og okkur hlýnaði svo vel af þessum góða drukk. Síðan skárum við niður nokkra tómata í báta og settum á bleikan disk á fæti, ásamt nokkrum gulrótum og stráðum ristuðum fræjum yfir. Voðalega ósköp gott og saðsamt fyrir svefninn.
Nú vorum við vinkonurnar komnar í gírinn þannig að við smurðum okkur andlit og háls með hunangi og settum svo gúrkusneiðar á augnlokin....ahahah hvað þetta er gott! Svo notuðum við gúrkurnar til þess að hreinsa af okkur hunangið og síðan....afþví við höfum heyrt að Sophia Loren sé svona falleg vegna þess að hún þvær sér kvölds og morgna með ísköldu vatni,- þá gerðum við auðvitað slíkt hið sama!
Okkur finnst við æðislegar og erum ekkert svoooo svangar!
Góð tillaga kom frá einni sem hringdi...ef við höfum lítinn tíma er gott að sjóða nóg af súpunni góðu á kvöldin og eiga með sér í vinnu að morgni. Líka gott að setja svona grænmeti og fræ eða hnetur Í poka til að nasla.
Við mælum með því að byrja morguninn eins, heitt vatn og cheyennepipar með sítrónu á fastandi maga og svo hrátt grænmeti fram að hádegi....
Meira í fyrramálið elskulegu dömur
MUNIÐ AÐ ÞAÐ ER BANNAÐ AÐ VERÐA SVÖNG!
Guð geymi ykkur og gefi ykkur góða nótt
a
Lífstíll | 23.4.2007 | 22:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Elskulegu dömur,
Miðað við góð viðbrögð verðum við allar léttari innan skamms. Við þurfum að skipuleggja mjónuhóf, það er laveg ljóst. Fara allar saman út að borða og dressa okkur svo upp...eða eigum við að hafa þetta í öfugri röð kannski!!!
Það gengur vel hérna megin. Dagurinn hófst á hugleiðslu því ekki má andinn gleymast þegar holdið er tamið. Þetta er einföld og góð hugleiðsla en það virkar eitthvað svo vel að gefa sér smá slökun á morgnana og vakna vel í stað þess að stökkva fram í daginn. Það er gott að byrja á því að fara með fallegt vers eða bæn, loka svo augunum og anda djúpt, hægt og rólega 7 sinnum, inn um nefið og út um munninn. Hugsa svo rólega um daginn í dag. Hvernig ætla ég að hafa hann, hvað get ég gert til að gera þennan dag góðan fyrir mig og skilað frá mér góðum straumum til meðsystkina minna sem ég hitti í dag.
Í kvöld áður en við sofnum gerum við eins, förum yfir daginn. Hvernig var ég í dag?Hélt ég áætlun? Líkar mér vel við mig sem persónu? Gerði ég eitthvað góðverk? Hvað get ég gert betur á morgun? Hvernig gengur mér að þroska mig og bæta. Þakka fyrir minnst 5 jákvæð atriði í lífinu, aldrei það sama dag eftir dag. Sjá allt þetta litla, fugl sem söng, maður sem brosti, ég get séð morguninn vakna...
Fara svo með stutta bæn eða vers og anda aftur , djúpt ofan í magann...galtóman greyið,- og nú 11 sinnum ef þið verðið ekki sofnaðar áður.
En snúum okkur þá að því sem liggur fyrir hjá okkur næstu tvær vikur.
Morguninn hófst á því að drekka soðið vatn með sítrónu og Ceyenne pipar.
Um 10 leytið borðaði ég nokkra tómata og drakk mikið vatn
Hádegismaturinn var svo niðursneytt grænmeti, sætar kartöflur, púrrulaukur, blómkál, icebergsalat, allt svona sem til er í ískápnum matur. Í fordrykk fékk ég mér Biotta gulrótarsafa hristan með klökum og skreyttan með sítrónusneið og kórianderlaufi
Það er best að steikja uppúr kókosolíu frá Sollu grænu sem fæst í Bónus. Ég blanda svo við þetta sinnepi, hnetusmjöri, hvítlauk og engifer og kanil. Passa að nota sem mest hrein krydd sem ekki hefur verið blandað neinum e- efnum í. Smá sítrónusafi og vatn og malla svo smástund. Ekkert salt og ekkert meira krydd þarf í þennan rétt.
Gott að skola icebergsalat og setja á disk með smá ólífum eða ólífuolíu. Setja svo steikta grænmetið yfir og strá fræblöndu ofan á . Skreyta með rífnum rauðrófum eða ferskum kryddjurtum. Þetta verður að vera fallegt og dömulegt svo okkur þyki þetta skemmtilegt.
Ég tók Udo´s 3.6.9 olíuna með þessu, tvær msk en Hallgrímur læknir segir að það sé betra að taka hana á kvöldin því þá sé lifrin í næði að hreinsa yfir nóttina. Þannig að á morgun ætla ég að prófa það.
Tyggið svo hægt og verið lengi að borða ef þið mögulega getið.
Um eittleytið fékk ég mér svo grænt te. og núna er ég búin að spæna í mig 500 gr. af gulrótum milli mála og taka inn Chlorellu sem heilsuráðgjafinn ráðlagði til að hreinsa út gamlan kú......ó en ódömulegt en þið verðið samt að vita þetta. Chlorellan fæst í Heilsuhúsinu og er afeitrandi bláþörungur sem skolar út gömlum, uppsöfnuðum ....þið vitið!
Í kvöld ætla ég svo að elda dásamlega grænmetissúpu. Mjög einfalt. Þið notið bara frosið grænmeti , fínt sem er til í bónus. Blanda af brokkólí, blómkáli og gulrótum, smá af papriku, lauk, hvítlauk, engifer, rauðkáli, sellerí og sellerírót...hvað sem ykkur dettur í hug. Smá Chilipipar er dásamlegur og prófið að nota lífrænt ræktaða niðursoðna tómat með basil og hvítlauk ef þið viljið ítalska línu.
Ég ætla hins vegar að vera indversk prinsessa í kvöld og krydda með Garam Masala, Cummin, karrí og kúmeni. Það er svo gott að bragðbæta með grænmetiskrafti , lífrænum og glutenfríum auðvitað..
Ef þið þurfið að salta notið þá endilega hreint sjávarsalt og sem minnst unnið.
Þessi súpa er dásamleg og virkilega dömulegt að strá yfir hana nokkrum huggulegum kókosflögum.
Í kvöld er svo gott fyrir okkur að dekra við okkur. Láta renna í ilmolíubað, kveikja á kertun, slökunartónlistin á og nudda svo húðina uppúr hunangi til dæmis. Fáum okkur eitthvað uppbyggjandi að lesa í baðinu, eitthvað sem kveikir hjá okkur fallegar hugsanir og löngum til að bæta okkur og allan heiminn með!
BARA EIN GRRUNDVALLARREGLA: EKKI VERÐA SVÖNG!
Ef þið finnið til hungurs, ekki fara að sofa svangar. Skerum niður ferskt og fallegt grænmeti og borðum okkur til ánægju og yndisauka, drekkum grænmetissafa, gott grænt te eða soðið vatn með dash af sítrónu.
Gangi ykkur vel elskulegu dömur
a
Lífstíll | 23.4.2007 | 15:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Elskulegu systur
Það er mikið rætt um hollustu þessa dagana. Við í dömuklúbbnum höfum ákveðið að taka til innan í okkur og fara í grænmetisföstu.
Sumar okkar hafa prófað þetta af og til, 2-3 á ári og áhrifin eru ótrúleg. Við losum okkur við eiturefni sem hafa safnast upp í líkamanum og smátt og smátt hjálpar þetta okkur til þess að sneiða hjá óhollustu og tileinka okkur nýjan lífsstíl.
Við tökum í þetta 14 daga. Á hverjum morgni drekkum við soðið vatn með sítrónusafa og smá cayenne pipar á fastandi maga. Svo borðum við grænmeti eins og við getum í okkur látið, steikt, soðið eða hrátt á hverjum degi og EKKERT nema grænmeti, kaldpressaðar olíur,úr glerflöskum, fræ og hnetur. Best er að hafa sem mest lífrænt ræktað og muna að þvo allt grænmeti vel.
Það er mjög góð þjónusta hjá Akri. Þar er hægt að panta lífrænt grænmeti, ávexti,brauð, korn og fleira og fá sent á næstu Olísstöð. Það þarf að fylla út pöntunarlista sem reiknar sjálfkrafa út verðið og sv kemur skínandi gott og heilnæmt grænmeti til okkar í hverri viku.
slóðin er: www.akurbisk.is
Gott að taka inn Omega 3 6 9 olíu sem fæst í Heilsuhúsinu, Udo´s olíublönduna en hún á að vera mjög holl og góð, minnka hættuna á hjarta-og æðasjúkdómum, auka þol og þrótt og almenna heilsu og lífsgæði.
Það má drekka vatn, alls konar jurtate og grænmetissafa en ekki kaffi eða áfengi auðvitað..
Áður en farið er í sturtu á morgnana er gott að þurrbursta líkamann með grófum bursta og bera svo á sig gott heilsukrem eða heimatilbúna olíu. Möndluolían er góð og hægt að blanda við hana ýmsum ilmolíum.
Fyrstu tveir dagarnir eru svolítið erfiðir en munið bara að borða nógu mikið grænmeti...aldrei að verða svangar! Gott að vera með í veskinu, gulrætur, blómkál, brokkolí og kirsuberjatómata til dæmis og stinga á sig aukabita. Eftir nokkra daga fer ykkur að líða svo dásamlega vel og sú vellíðan eykst með hverjum degi.
Við munum skrifast á og hringja hver til annarrar til að styrkja okkur andlega. Allar fyrir eina og ein fyrir allar! Munið að þið þurfið að setja ykkur markmið...standast þetta í 14 daga og líka að ákveða verðlaunin!!! Ég ætla til dæmis að kaupa mér ný sundföt, tvískipt að hætti Tótu Hvannar Sifjarmóður!
Svo á 15. degi byrjum við að brjóta föstuna og tökum inn nýja fæðuflokka, hægt og hægt. Við munum verða í sambandi með hvernig við gerum þetta en endilega drífið ykkur með og skrifið okkur línu ef þið viljið vera í styrktarbandinu: Félagsskapur kátra og krúttlegra kvenna!
EN
Fyrir hinar sem ekki nenna að fara eftir þessu en langar að bæta heilsuna, þá sendi Gulla okkur nokkur heilsuráð fyrir miðaldra mjónur:
2 döðlur á dag koma kynlífinu í lag.
1 kiwi á dag kemur hægðunum í lag.
2 möndlur á dag koma kalkbúskapnum í lag.
2 rauðbeður á dag koma járnbúskapnum í lag.
1 appelsína á dag sinnir C vítamínþörfinni.
1 epli á dag kemur brennslunni í lag.
1 banani á dag ´losar okkur við fótapirringinn.
Góða skemmtun
a
Lífstíll | 22.4.2007 | 21:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Elskulegu dömur,
Ég fór í skrúðgöngu í morgun. Alltaf mikil stemming með skátum og lúðrasveit. Svo fórum við í kirkjuna og þar voru vígðir ungir yrðlingar inn í skátafélagið mitt gamla Fossbúa. Presturinn okkar hann séra Gunnar fór á kostum eins og venjulega. Hann er stórskemmtilegur ræðumaður...við ættum kannski að fá hann í næsta dömuboð!!!Hann var að tala um þennan séríslenska sið að halda uppá Sumardaginn fyrsta og þann skemmtilega sið að allir eru glaðir og bjóða hverjir öðrum Gleðilegt sumar...hvernig sem veðrið er! Þótt það sé hríðarbylur eða haglél og norðanrok...brosum við og segjum hvert við annað: Gleðilegt sumar! Dásamlegur siður! Minnir okkur á þá staðreynd að það skiptir engu hver utankomandi áhrif eru ef okkur líður vel inní okkur.
Gleðilegt dömusumar allar elskurnar!
a
Lífstíll | 19.4.2007 | 18:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Félag kvenna í atvinnurekstri Allar konur standa saman
- Nýsköpunarmiðstöð Íslands Endalaus spennandi námskeið fyrir okkur
- Líkami, hugur og Sál Frábær staður til að byggja sig upp.
- Rósa Traustadóttir Æðislega jógastöð á Selfossi
- Sumarhús í fyrsta flokki Einstaklega fallegur staður undir fjallinu Búrfelli.
- Flottasti ferðamannastaður á Íslandi Alltaf gott að koma að Geysi
- Selfoss, Eyrarbakki, Stokkseyri og Sandvíkurhreppur My hometown:-)
- Húsið á Eyrarbakka og Byggðasafn Árnesinga Eitt skemmtilegasta safn á Íslandi
- Safnaklasi á Suðurlandi ÞAð er alltaf eitthvað að gerast á Suðurlandi
- Menningarráð Suðurlands Alltaf eitthvað gott starf í gangi
- Veitingastaður á Eyrarbakka Rómantískur staður og maturinn klikkar aldrei!
- Endalaus fróðleikur ein flottasta heimasíða sem ég hef séð!
- Listakonan Þórdís Frábærar myndir
- Fyrsti verslunarstaður Íslendinga Skemmtilegasta þorp á Íslandi
- Gallerí Gónhóll á Eyrarbakka Gisting, karkaðir, ráðstefnusalir og fleira
- Lista og tungumálamiðstöð fyrir börn og unglinga Spennandi námskeið fyrir alla krakka!
Myndaalbúm
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar