Færsluflokkur: Lífstíll
Elskulegu dömur,
Það var svo mikið að gera í gær að ég komst ekki til þess að senda ykkur línu þannig að nú sendi ég ykkur 2 fyrir 1.
Ég hef heyrt í nokkrum af okkur dömunum sem erum enn á fullu í grænmetinu. Nokkrar eru alveg grænar en aðrar hafa tekið inn smá ávexti eða baunir og einstaka lífræna AB mjólk í hádeginu en allar eru þó að borða hreina fæðu og engin aukaefni. Sendið endilega póst og segið frá því hvernig ykkur líður en ekki síður hvort þið getið hist í næstu viku...stefnt að því að gera eitthvað saman á miðvikudagskvöld 9. maí..kannski bara kaffi og súkkulaði! Nei ætli það , við gerum allavega eitthvað skemmtilegt saman.
Ég var að prófa þessa Epsomhreinsun sem ég sá á síðunni : www.madurlifandi.is
Það gekk vel og á að gera næstu tvo daga líka, ætli það verði nokkuð eftir? Ég held ég sjái til með þetta, tek kannski bara tvo en annars líður mér vel. Hallgrímur læknir segir að það sé gott að taka 1 tsk í vatnsglasi áður en farið er að sofa,- á hverju kvöldi því það sé svo gott fyrir steinefnabúskapinn og svo sofi maður ósköp vel af þessu og vært. Svo er Epsomsalt mjög hollt og gott í baðvatnið. Kíkið endilega á þessa síðu: http://www.epsomsaltcouncil.org/
Var að koma af tónleikum Jórukórsins í Hólmaröst á Stokkseyri. Frábær kór og stjórnandinn Hlín Pétursdóttir, einstaklega geðug og falleg dama. Það ljómar af henni gleðin og þær stóðu sig allar vel. Svo kom þarna fram ungur og myndarlegur söngvari, Hermundur Þorsteinsson og sló rækilega í gegn. Sá held ég eigi eftir að slá í gegn í framtíðinni. Vona að hann haldi áfram að syngja fyrir okkur.
Nú er semsagt kominn föstudagur og nú er um að gera að gera vel við sig í mat og drykk...
Matseðill dagsins gæti sem best litið svona út:
Við sólarupprás eða þar um bil er það þá drykkurinn góði; vatn, epsomsalt, sítrónusafi og ólífuolían
30 -60 mínútum síðar er kominn tími til að fá sér stóran bakka fullan af tómötum, agúrkum, möndlum og hnetum.
Í hádeginu er svo gott að fá sér ferskt salat og það mikið..með alls konar gommsí; kál, rauðlaukur, paprikur í öllum litum, rifnar gulrætur, brokkóli, ólífur, sólþurrkaðir tómatar, aspas, rauðbeður, fræ og hnetur.
Milli mála er gott að staupa sig á ferskum grænmetissöfum og stinga á sig tómötum..umm þeir eru svo góðir núna þessir íslensku. Hugsið ykkur hvað við erum heppnar að fá svona gott grænmeti. Ég var í Tyrklandi um daginn og þar eru tómatarnir afhýddir því þeir eru svo eitraðir! Jú , þetta er satt, þeir sögðu þetta sjálfir þarna tyrkjarnir.
En ein af okkur sagði mér reyndar að vara mig á sumu grænmeti hér sem væri í íslenskum umbúðum en flutt inn frá Hollandi sem væri eitt fárra landa sem leyfði einhver eiturefni sem annars væru bönnuð í sambandinu.Það er margt að varast en við höldum áfram að hlusta á líkamann okkar. Það sem er gott fyrir eina dömu getur verið slæmt fyrir aðra. Tökum til dæmis hnetur! Þær eru óendanlega góðar fyrir mig og hnetusmjör er mitt uppáhald, á meðan ein í hópnum þolir ekki hnetur og hatar hnetusmjör???? Það er svo gott að eftir því sem við hreinsumst fer líkaminn að tala meira við okkur og lætur okkur finna hvernig okkur líður af ákveðnum mat. Þess vegna er gott að skrifa matardagbók og skrá þá líka hvernig konu líður eftir hverja máltíð og þannig geturm við fundið út hverju við ættum að sleppa og hverju við ættum að halda.
Læt hér fylgja eina góða uppskrift fyrir þær sem eru hrifnar af hnetum....ég fer reyndar í matarboð í kvöld til hennar Kötu minnar og hún er alltaf með eitthvað gott og grænt þannig að ég þarf ekki nesti!
Grænmeti í leirpotti með loki eða eldföstu móti ...
Skerið niður rauðlauk, hvítlauk, gulrætur, kartöflur, sætar kartöflur, blómkál, brokkolí, rósakál,hvítkál, kúrbít og eggaldin...bara allt sem til er í ísskápnum. Setjið fyrst í mótið smá kókosolíu ásamt rótargrænmetinu sem er kryddað með hafsalti og svörtum pipar, hnetusmjöri, lúku af möndlum eða valhnetum, karrí, cumin, kanill, kóriander og ferskur engifer síðast rifinn yfir. Annars má líka nota allt krydd sem ykkur þykir gott. Vætið í þessu með smá vatni og sítrónusafa og jafnvel er gott að setja einn gerlausan grænmetistening með. Bakið í ca 35 mínútur við 180 gráður.
Eftir 35 mínútur tökum við mótið úr ofninum, hrærum vel í og jöfnum til kryddið og hnetusmjörið og bætum svo kálinu, lauknum , paprikunni og öllu mjúka grænmetinu við.
Þetta er dásamlega gott með Tahinisósunni og passið að nota uppskriftina sem er á krukkunni, þessa með karríinu,- hin í Sollubók er of súr af sítrónu.
Ég vona þið eigið yndislegan dag og sólin skíni í hjörtum ykkar
knús og kram
a
Lífstíll | 4.5.2007 | 00:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er þetta ekki ótrúlegt elskulegu dömur hvað tíminn líður hratt! 10 dagar komnir og hér erum við grannar og spengilegar með gulrætur og valhnetur í skál og allt gengur vel.
Við vorum að tala um það eftir dásamlegan jógatíma í Lifandi Húsi í morgun, hvað það er mikilvægt að vera í núinu. Það er orðinn svo mikill hraði á okkur að við erum aldrei á staðnum. Ef við stoppum í kaupfélaginu til að tala við einhvern þá gefum við okkur ekki tíma til að stoppa í alvöru og hlusta, njóta þess að hitta vini og kunningja, heldur erum við alltaf á leiðinni að klára næsta verkefni áður en tíminn flýgur frá okkur.
Þannig að nú er næsta verkefni að hægja aðeins á okkur og vera í núinu, njóta augnabliksins til hins ítrasta og anda djúpt. Ef hraðinn er að hlaupa með okkur í gönur þá er það ráðið...að anda djúpt og hugsa skýrt.
Skráning í Danmerkurferðirnar gengur vel. Jafnvel spurning um að bæta við einni dagsetningu 25. eða 29. ágúst. Um leið og hópurinn er samsettur, hittumst við og ákveðum hvernig við viljum hafa dagskrána. Sumar vilja slaka á og fara í gönguferðir á milli þess að skreppa til Arhus eða Vejle að versla nýjustu vetratískuna og mikið af skóm...aðrar vilja fá námskeið ýmis konar eða hafa snyrtifræðing á staðnum til að dúlla og dekra, jógakennslu á morgnana og rauðvíns/súkkulaðispjall með stelpunum öllum á náttfötum á kvöldin. Enn aðrar vilja fara um jósku heiðarnar og tína sér í tepoka eða arka berfættar á ströndinni við sólarupprás...allt í gangi en aðalatriðið er að vera saman og hafa gaman.
Eigum allar góðan dag og notum hann vel!
a
Lífstíll | 2.5.2007 | 11:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Elskulegu dömur, góðan og blessaðan dag og til hamingju með 1.maí.
Ein af okkur sendi mér fallegan morgunpóst og kom með nýtt orð yfir okkur; Damistar eða eigum við kannski að hafa þetta í kvenkyni og vera þá Damistur..sem rímar við systur sem við erum jú allar.
Við sem kitlum kvengenin og njótum þess að vera virkilega lekkerar dömur , höldum veislur með bleiku kampavíni og súkkulaðihúðuðum jarðaberjum eða súkkulaðisíðdegi þar sem við liggjum allar saman í flatsæng og horfum á Chocolatemyndina, borðum súkkulaði, drekkum súkkulaði og erum með súkkulaðimaska...- þetta eru Damistur! Við gleðjumst með hver annarri þegar vel gengur og grátum saman ef það fer í verra ferðaveðrið en styrkjum hver aðra í öllu sem við tökum okkur fyrir hendur og trúum endalaust á mátt Gyðjunnar í okkur öllum.
Sönn damista vaknar fallega á morgnana og teygir allar sínar vellökkuðu tær tígulega áður en hún fer fram úr og splashar sig með ísköldu að hætti Soffíu Lóren. Morgunmaturinn samanstendur svo af soðnu vatni með sítrónu og ceyennepipar sem hreinsar húðina og frískar sálina og býr okkur undir næsta dag...og hvernig ætlum við að hafa daginn í dag?
Hver einasta Damista veit að Hún ræður nokkru um það hvernig hennar dagur verður. Flestar eru eins hamingjusamar og þær ákveða að vera í dag. Það fer svo ótrúlega mikið eftir því hvernig við bregðumst við því sem á vegi okkar verður á degi hverjum, hvernig við spilum úr spilunum okkar.
Ég pant vera jákvæð í dag!
Já og hugsið ykkur, - við erum á 9.degi og orðnar eins og nýútsprungnar rósir! Eða eins og ein Damistan orðaði það; eins og nýfæddar gimbrar á vori.
Ég fékk mér ferskt grænmeti í morgunmat og sýð mér svo væna grænasúpu í hádeginu. Fékk svo gasalega góða og lekkera grænmetisteninga hjá henni Steinunni í Heilsuhúsinu, hún er virkilega indæl stúlka og afskaplega hjálpleg með svona alls kyns dömulegt og hollt nasl handa okkur. Svo er hún hafsjór af fróðleik um hollustu og breyttan lífsstíl án allra aukaefna...sem er jú það sem við stefnum að.
Eftir hádegi þarf ég svo að skreppa suður og ná í drossíuna mína. Nú er búið að laga hana alla til og ég get farið að bjóða ykkur í rennireiðartúra um Suðurland þegar vel viðrar og sést til sólar. Þarna verður alltaf kassi af bleiku kampavíni í skottinu svo hægt sé að bjóða lekkerum dömum í staupinu. Við ættum kannski að fá einhvern ungan og laglegan pilt til að vera ökumaður fyrir okkur?
Svo í kvöld held ég veislu og elda eitthvað gott úr Sollubók, kannski ég hafi bara Prinsessukvöld með pakistönskuívafi eins og Solla sýnir á síðu 153 í bókinni góðu!
Damistuknús
a
Lífstíll | 1.5.2007 | 10:30 (breytt kl. 10:59) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Grænn kostur, uppskriftabókin frá Hagkaupum eftir hana Sollu er allgjör snilld. Ég á mjög erfitt með að fara eftir uppskriftum og eldhúsið mitt er sannkallað tilraunaeldhús sem sjaldnast er hægt að fá einhvern rétt tvisvar alveg eins..kostur eða galli!!Skiptir ekki máli.
Hér kemur uppskriftin:
1kg sætar kartöflur
1 grein rósmarín
1tsk sjávarsalt og smá nýmalaður pipar
1 dl vatn
1 dl olía, ég notaði kókosolíu
5cm fersk engiferrót
ferskt kóríander
Afhýða kartöflurnar og skera í grófa bita. Setjið þær í ofnskúffuna og kryddið með fersku rósmarín, smá sjávarsalti og pipar. Bætið olíunni við og svo vatni og bakið í 20-25 mín við 200 gráður eða þar til kartöflurnar eru meyrar. Afhýðið smá engifer og rífið gróft. Hitið smá olíu á pönnu og mýkið engiferinn í ca. 5 mín. og bætið svo kartöflunum útá.Kryddið með sjávarsalti og pipar ef þörf er á. Hrærið vel og maukið. Berið fram í flottri skál og stráið vel af grænu kryddi yfir, kóríander er best en má nota hvað sem er.
Þetta er svoooooo gott með öllu grænmeti en best af öllu er að setja alls konar rótargrænmeti í ofnfast mót, t.d. kartöflur, gulrætur, sætarkartöflur, rófur, hreðkur, hnúðkál, steinseljurót sellerírót, bara allt sem til er og a.m.k. tvo rauðlauka og nokkur hvítlauksrif. Allt sett saman í ofninn eftir að við höfum hellt smá olíu og vatni yfir og kryddað af hjartans list. Stundum nota ég Garam Masala, Koríander, turmeric, karrí...fer semsagt indversku leiðina. Nú hinn daginn fer ég til Frakklands og nota Diijon Sinnep, svartan pipar og rósmarín....eða til Spánar og bæti þá við ólífum og ferskum tómat og basiliku...bara að láta hugarflugið ráða!
Góða skemmtun elskulegu dömur, - ég er að fara í enn eitt yndislega matarboðið í þessari viku. Hringdi í húsfreyjuna sem er mikil gæðakona og hún sagðist vera með ferskt salat svo ég er í góðum málum og hlakka til að hitta skemmtilegt fólk í kvöld.
Bestu kveðjur og verum kátar..nú eru örfáir dagar eftir og svo byrjum við varlega næsta mánudag..
Munið að borða nógu mikið og fara út að leika ykkur á hverjum degi
a
Lífstíll | 30.4.2007 | 18:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Elskulegu lekkeru draumadísir,
Hugsið ykkur...8 dagar og líðanin verður betri með hverjum degi og nú er meira að segja komin sól! Við erum svo glaðar og grannar í bragði!! Allt gengur vel, dömurnar misharðar á grænmetinu en það er gott að allar hlusta vel á sinn eðalfagra kropp. Fékk ábendingu um að setja inn uppskriftina að bestu kartöflumús í heimi...úr sætum kartöflum sem passar með öllu en sérstaklega vel með ofnsteiktu grænmet sem er lúxus, laukur og gulrætur gera gott bragð af öllu!
Heyrumst á eftir-
Dagurinn í dag er allt sem máli skiptir...notum hann vel!
kál og knús
a
Lífstíll | 30.4.2007 | 13:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Elskulegu fegurðardísir,
Hitti eina áðan í fermingarveislunni sem ætlar að drífa sig með í hópinn og vera með okkur í breyttum lífsstíl. Um að gera þó við séum byrjaðar ...þá erum við sko ekki hættar og aldrei of seint að vera með!
Ég fór auðvitað með mitt ferska græna te og borðaði vel af gómsætu grænmeti áður en ég fór. Ekkert mál og mér leið afskaplega vel þegar ég fór út. Það er svo gott að setja sér markmið og muna svo að klappa sér á bakið þegar vel tekst til. Okkur veitir ekki af að byggja okkur upp og trúa á okkur sjálfar. Nú ef við gerum mistök , þá er það allt í lagi, við lærum af þeim og reynum að gera betur næst.
Indverska boðið í gær var einstaklega skemmtilegt og velheppnað. Þarna var auðvitað alls kyns hollusta í gangi og mest úrval af grænmeti sem smakkaðist vel. Húsbóndinn fór út og tíndi í te! Hugsið ykkur, það er svo margt í náttúrunni sem er hollt og gott í te! Hann kom inn með túnfífill, kerfil og eitthvað fleira góðgæti, bætti svo í þurrkaðri maðjurt frá fyrra ári og smá af jurtum úr Danaveldi, nánar tiltekið frá Thyregod þeim yndislega bæ á Jótlandi.
Sem minnir mig á eitt!
Við erum að skipuleggja kvennaferð til Danmerkur í september. Þetta eru tvær dagsetningar sem við erum að skoða og við förum með 10 konur í hóp. Flogið frá Keflavík 1. september kl. 15.30 í 2 1/2 tíma og lent í Billund á Jótlandi, ca. 20 mínútna akstur í litla sæta gula húsið okkar og þar tekur við okkur ... dekur og dúllerí, búðarrölt með stelpunum, nudd og jóga...pedi og mani, plokk og lit..nánar síðar! Verðið á fluginu er 25.800 með sköttum og það er komið heim 5. september frá Billund og lent í Keflavík 21:20.
Hin dagsetningin er svo 8.-12.september og þá er verðið á fluginu heldur hagstæðara eða 24.400 með sköttum. Verð á gistingu og fleiru fer svolítið eftir því hvað verður boðið uppá en ef ykkur langar með endilega látið vita sem fyrst því:
Fyrstar koma fyrstar fá! Sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær. Vel snyrt er konan ánægð!!!
Nú er ég að fara að huga að kvöldmatnum. Er að spá í að elda afríska réttinn í Sollubókinni sem er á bls 156. Ein af okkur eldaði hann í gær og það gerði mikla lukku á heimilinu.
Munið að vera duglegar að borða og dekra við ykkur elskurnar.
Knús
a
Lífstíll | 29.4.2007 | 16:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú er komin helgi kæru dömur og nú er gott að vera á hreinu fæði...3 veislur framundan hjá mér og ég mun auðvitað hafa með mér smá og svo auðvitað ef eitthvað grænt er á boðstólum borðum við það og drekkum heilnæmt grænt te með! Ekkert mál fyrir mittismjóar miðaldra dömur á leið í lekkera gírinn!
Í kvöld fer ég með Kasjúhnetukarrí sem er á bls 158 í Sollubók, Tahinisósuna sem er uppskrift að á bls 111 eða utan á krukkunni/ Hvítt Tahini og svo auðvitað gulrótarsafa og te. Við erum að hittast vinkonurnar sem fórum saman í brúðkaup til Indlands í fyrra og við verðum náttúrulega uppáklæddar að hætti þeirrar þjóðar þó við förum nú kannski ekki í brúðkaupsfötin fínu.
Þetta er ekkert mál. Bara gaman að finna hvernig vömbin lætur undan síga og þessi fallegu hné koma í ljós!
Gangi ykkur vel elskurnar mínar
a
Lífstíll | 28.4.2007 | 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Elskulegu dömur,
Hugsið ykkur...vikan er að verða búin og ekkert nema stærð 8 sem bíður okkur, hreinn og tær andardráttur, mjúk húð, glansandi hár, glerharðar neglur...
Þvílíkur munur!
Við vorum að tala um það í Lifandi Húsi í morgun að við lyktum einkennilega. Við fundum svona lykt af pissinu í morgun eins og þegar við erum á pensillíni eða eitthvað svoleiðis. Hreinsunin er greinilega að virka vel.
En þið verðið samt að passa ykkur vel að hlusta á líkamann ykkar. Þær sem eru að gera þetta í fyrsta sinn á æfinni, hafa borðað óhollt og drukkið mikið kaffi, geta fundið fyrir miklum óþægindum og slappleika og þá er best að fara hægar í sakirnar. Setja inn aftur ávexti á morgnana, kannski lífræna jógúrt í hádeginu og harðfiskbita inná milli. Þið eruð samt í hópnum og fáið sömu verðlaun!
Í kvöld ætla ég að fá mér glænýtt spínat með furuhnetum í forrétt. Svo er ég með gufusoðnar gulrætur, sætar kartöflur, blómkál og brokkóli ásamt slettu af Tahini sósunni í aðalrétt. Svo fæ ég mér nokkrar möndlur, fræ og ristaðar kókosflögur í eftirrétt og kannski bolla af góðu rauðrunnate.
Munið að borða nógu mikið og fjölbreytta liti af grænmeti...og drekka mikið af vatni og grænu te, grænmetissöfum og þess háttar góðgæti.
með dömulegri grænmetissveiflu
a
Lífstíll | 27.4.2007 | 17:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Elskulegu grönnu og lekkeru dömur,
Fyrirgefið hvað ég kem seint, stundum er svo margt að snúast að ekki gefst einu sinni tími til að tylla sínum íturvöxnu og lekkeru rasskinnum niður og blogg ögn!
Það byrjaði auðvitað með sítrónuvatni og ceyenne í morgun og svo heilum poka af gulrótum...ætli dömurnar verði ekki sólgylltar af öllum þessum gulrótum?
Svo í hádeginu fengum við kúfaðan disk af salati, prófið endilega sólþurrkaðan tómata, ólífur, tahinisósuna og alls konar nammi gott til að fá fjölbreytnina, já og rauðrófuteningar eru æðislega góðir með.
Ein af okkur úr Félagsskap Kátra og Krúttlegra kvenna hafði samband að sunnan og sagðist vera alveg hissa hvað þetta liði hratt! Eruði ekki sammála! Nú erum við að klára fyrri vikuna og þetta er búið áður en við vitum af! Önnur sagði að henni liði svo vel að hún ætlaði alveg að hætta í kaffi og rauðu kjöti eftir þetta og halda sig að mestu við Sollubókina og elda bara hollt. Hver vill eitra fyrir sér og sínum, sagði þessi góða kona og ég er alveg sammála.
Vinkona okkar að sunnan kom með gott ráð: Hún var að lesa bókina ,, Hreystin kemur innan frá"og þar er sagt að hreinsunin komi mest fram á tungunni og því ættum við að fylgjast vel með tungunni og tannbursta hana líka með sérbursta og þá verður hún voða bleik og fín..semsagt virkilega dömuleg.
Hún notar líka ristilhreinsimixtúru frá Kollu grasa sem heitir Vaðgelmir og er drukkið eins og te tvisvar á dag. Góð hugmynd. Eruð þið annars nokkuð stopp? Ef þið þurfið þá er líka á síðunni
uppskrift að hreinsunum ýmis konar. Ég sló inn Epsomsalt í dálkinn þarna, leita og þá komu upp ýmsir möguleikar á hreinsun.
Hvað eigum við svo að hafa í kvöldmatinn?
Ég eldaði rosagott í gær úr Sollubók muniði...sæt kartöflumús og ofnbakað grænmeti með Tahinisósu
Ég er að hugsa um að búa til kjarngóða Minestronesúpu í kvöld og fara í ítalska gírinn..ímynda mér að ég sé mafíósahefðarfrú suður á Sikiley og í staðinn fyrir rauðvínið verð ég með hristann rauðrófusafa í háu glasi á meðan ég elda...og pikka í svartar ólífur!
Læt uppskriftina fylgja elskurnar
Gúddlokk
a
Minestrone a la Sicily
4 gulrótos
2 laukos
1 parikos græn
1 paprikos rauð
3 sellerístilkos
5 hvítlaukrifos, pressuð
2 msk kókosolía
1 tsk þurrkað rósmarin eða msk ferskt
sama af basilikos
sama af timian
sjávarsalt og svartur pipar eftir smekk
10 stk tómatos, afhýddir og maukaðir í matvinnsluvél
1-2 msk grænmetiskraftos
1,5 lítri vatn
Skerið grænmetið eftir smekk.Hitið olíuna í potti og mýkið laukinn, bætið svo hinu grænmetinu í og steikið í nokkrar mínútur.
Tómötunum, kryddinu og vatninu bætt við og soðið í ca hálftíma.
Skreytið með restinni af svörtu ólífunum, ef þið eruð ekki búnar með þær allar, og nokkur smátt skornum laufum af basiliku
Þetta er nóg fyrir svo 6 manns eða borða restina bara á morgun!
a
Lífstíll | 26.4.2007 | 15:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Elskulegu dömur,
Það eru svo margar og góðar uppskriftir í Grænum Kosti Hagkaupa og Sollu. Ég eldaði í sæta kartöflustöppu og ofnbakað grænmeti, bjó til Tahini sósu með. Þvílíkt sælgæti. Mér heyrist þið flestar eiga þessa bók en endilega sendið línu ef þið eruð hugmyndasnauðar og finnst fæðið fábreytt.
Á morgun er nýr og skemmtilegur grænmetisdagur og nú fer þetta allt að léttast!!+
Góða nótt elskulegu draumadísir
a
Lífstíll | 25.4.2007 | 23:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Félag kvenna í atvinnurekstri Allar konur standa saman
- Nýsköpunarmiðstöð Íslands Endalaus spennandi námskeið fyrir okkur
- Líkami, hugur og Sál Frábær staður til að byggja sig upp.
- Rósa Traustadóttir Æðislega jógastöð á Selfossi
- Sumarhús í fyrsta flokki Einstaklega fallegur staður undir fjallinu Búrfelli.
- Flottasti ferðamannastaður á Íslandi Alltaf gott að koma að Geysi
- Selfoss, Eyrarbakki, Stokkseyri og Sandvíkurhreppur My hometown:-)
- Húsið á Eyrarbakka og Byggðasafn Árnesinga Eitt skemmtilegasta safn á Íslandi
- Safnaklasi á Suðurlandi ÞAð er alltaf eitthvað að gerast á Suðurlandi
- Menningarráð Suðurlands Alltaf eitthvað gott starf í gangi
- Veitingastaður á Eyrarbakka Rómantískur staður og maturinn klikkar aldrei!
- Endalaus fróðleikur ein flottasta heimasíða sem ég hef séð!
- Listakonan Þórdís Frábærar myndir
- Fyrsti verslunarstaður Íslendinga Skemmtilegasta þorp á Íslandi
- Gallerí Gónhóll á Eyrarbakka Gisting, karkaðir, ráðstefnusalir og fleira
- Lista og tungumálamiðstöð fyrir börn og unglinga Spennandi námskeið fyrir alla krakka!
Myndaalbúm
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar