Bara svona chill,pill by the Pool....

Nú er komið að því.....our last night in Thailand....Við erum að fara ut að borða á Jameson vini okkar...og svo er það bara bjútíblundurinn áður en Iisac keyrir okkur til Bangkok, hvaðan við eigum flug klukkan 13.20...og þá tekur við dásamlegur hvíldartími í flugvélinni alla leið til London...þaðan er svo beint flug heim...Mæli með þessu félagi my ladies... www.evaair.com

Fellur eins og flís við rass með Flugleiðavélunum og hægt að tékka farangurinn beina leið eða alla leið heim...Ekkert vandamál eins og Danny Hemmason segir alltaf...bara vera í flæðinu og njóta flugsins...

Sundkennslan hjá Asta from FinlandAnnars var dagurinn í dag bara slakur...vöknuðum snemma og fengum morgunmat við laugina...við papa gerðum klukkutímaæfingar að finnskum hætti með kútana frá Ástu og Mr. F. Raggý kom svo og fór bara beina leið á námskeið hjá okkar finnsku vinkonu...gott ef hún lendir ekki í uppbúnu og pönnukökum...

Um hádegisbilið var svo farið á snyrtistofu...allir í mani og pedi ...lita, plokka, blása og þvo...nudda og dudda í eina 3 tíma...svo bara aftur í garðinn og leikið sér með bolta í lauginni, spjallað við alla hina gestina sem eru hálfrauðeygðir því við erum að fara ...þetta skemmtilega sveitafólk...Cool

Og nú er búið að pakka og allt orðið klárt...þetta var dásamleg ferð og við eigum eftir að sakna Thailands...komum örugglega fljótt aftur...Mr.F hefur séð um okkur og sýnt okkur enn og sannað að hann er efnilegur...ótrúlega natinn og góður við okkur þessi elska .....það verður gaman fyrir okkur papa að senda honum haug af Íslendingum í alls konar ástandi...tennur, brjóst, augnháralengingar, rismöndlur eða bara vöðvarýrnun og fitusöfnun sem orsakast oft af því að við gleymum því sem skiptir máli....whatever...allt er hægt í Thailandi...landi hinna brosandi andlita....besta ferð so far segir papa og Áki er strax farinn að skipuleggja næstu ferð fyrir okkur...papa og Áki

En það verður samt gott að koma heim í faðminn ykkar á Fróni ...sjáumst á morgun:-)

Knús frá mama, papa og brósa....et moi

 

ps. Fullt af góðum myndum á leiðinni inn í Myndaalbúm....en hér kemur ein góð af frænkunum úr Hafnarfirði...Frænkurnar úr Hafnarfirðiaðeins að fá sér í staupinu...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband