Hér kom ansi hreint eiguleg dama í gær og bætti í sjóðinn okkar og nú er hann að skríða yfir fimmta tuginn eins og fleiri ...og nokkur föt fóru líka og gott ef ekki einn diskur.
Við leggjum inn á samtökin Göngum saman á föstudaginn og reikningsnúmerið þeirra er: 115-15-380269
Kennitalan: 650907-1750
Endilega munið að koma við elskurnar og fá ykkur oggulítinn tesopa og súkkulaðimola í vikunni. OG....enn eru ekki allar skráðar í gestabókina okkar.....við getum nú lagað það ef þið sendið okkur línu...ekki er gott að detta út af gestalistanum því nú er hann Guðmundur minn að fara að byggja við fyrir okkur svo við höfum meira pláss á næsta ári ...sem er ár súkkulaði og rósa...
Lady fer til Thailands á sunnudag og þá er gott ef sem mest verður farið...hér kennir ýmissa grasa enn...eyrnalokkar, snyrtibudda, herðatré, ilmvatnsglas, hárlakk og fleira svona dömulegt dót sem vill verða eftir þegar síðkjólar sviptast...og hárlínur lyftast...
En umfram allt elskulegu dömur...verið góðar við ykkur og brosið eins og Mona Lisa í dag...algjörlega fyrir ykkur sjálfar og munið að brosin ykkar lýsa upp heiminn...
sólskinsknús
a
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Félag kvenna í atvinnurekstri Allar konur standa saman
- Nýsköpunarmiðstöð Íslands Endalaus spennandi námskeið fyrir okkur
- Líkami, hugur og Sál Frábær staður til að byggja sig upp.
- Rósa Traustadóttir Æðislega jógastöð á Selfossi
- Sumarhús í fyrsta flokki Einstaklega fallegur staður undir fjallinu Búrfelli.
- Flottasti ferðamannastaður á Íslandi Alltaf gott að koma að Geysi
- Selfoss, Eyrarbakki, Stokkseyri og Sandvíkurhreppur My hometown:-)
- Húsið á Eyrarbakka og Byggðasafn Árnesinga Eitt skemmtilegasta safn á Íslandi
- Safnaklasi á Suðurlandi ÞAð er alltaf eitthvað að gerast á Suðurlandi
- Menningarráð Suðurlands Alltaf eitthvað gott starf í gangi
- Veitingastaður á Eyrarbakka Rómantískur staður og maturinn klikkar aldrei!
- Endalaus fróðleikur ein flottasta heimasíða sem ég hef séð!
- Listakonan Þórdís Frábærar myndir
- Fyrsti verslunarstaður Íslendinga Skemmtilegasta þorp á Íslandi
- Gallerí Gónhóll á Eyrarbakka Gisting, karkaðir, ráðstefnusalir og fleira
- Lista og tungumálamiðstöð fyrir börn og unglinga Spennandi námskeið fyrir alla krakka!
Myndaalbúm
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 388660
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.