Elskulegu dömur...nú styttist í herlegheitin hjá okkur! Ég hef legið eins og skata með þvílíka flensu að annað eins hefur nú ekki sést á þessum bæ í dömuminnum...en þá kom sér vel að eiga honey my darlings. Ég sauð saman hvítlauk, engifer, sítrónu og hunang og þetta hef ég drukkið stöðugt...maðurinn minn er reyndar fluttur í annað herbergi...var eitthvað einkennilegur á svipinn í morgun þegar ég bauðst til að kyssa hann góðan dag...ég meina það er nú valentínus...en hann er svo viðkvæmur fyrir hvítlaukslyktinni þessi elska...kannski eins gott...annars hefði ég bara smitað litla skinnið...
En aftur í hina gullnu fæðu hunangið...góð vinkona mín, sannkölluð dama kemur stundum yfir til mín og við eigum saman kvöldstund til uppbyggingar og fegrunar...þá höfum við notað kornótt hunang sem scröb..og legið í slökun með gúrkur á augunum...gasalega hreinsandi og gott...þess á milli dreypum við örlítið á sherrystaupi en það er nú aðallega fyrir æðakerfið þó það sé áreiðanlega gott fyrir húðina líka.
Þegar ég bjó á Spáni...stuttu eftir að mínum sokkabandsárum lauk ...svona formlega séð...þá lærði ég nú ýmislegt af þeim lekkeru suðrænu dömum sem þar búa og kunna öðrum dömum betur að nýta sér náttúrunnar mesta gull...ólívuolíuna. Þær nota hana í baðvatnið og það gerði ég einmitt í gærkvöldi...algjör snilld í þessum umhleypingum og húðin drekkur í sig og verður eins og ný. það er líka gott að nota hana til að styrkja neglurnar. Spænskar senjórítur blanda volgri ólífuolíu og sítrónusafa saman og nudda vel inn í neglurnar til að veita þeim raka og mýkt. Ólífuolíuna nota þær einnig til að næra hárið og gefa því glans. Þær láta olíuna vera í hárinu í 20 mínútur og þvo hana síðan úr með sápu. Annað sem er sniðugt hjá spánverjum...þær nota sjávarsalt til að fríska upp á húðina. Þær setja handfylli af salti út í baðvatnið, bæta við nokkrum dropum af ilmolíu og baðið verður fullkomið.
Fyrir okkur sem erum með fíngert hár er stórsniðugt að nota bjór til að skola hárið eftir þvott...fínt að taka einn kaldann með sér í baðið og drekka svona hálfan og nota restina í skol...gerir sama gagn og eggjarauða en ekki eins vond lykt...
Kókosolía er svo mjög í tísku hérna núna að við eigum allar eitthvað af henni í eldhúsinu...húngefur þvílíkan glans í hárið og er líka frábær á húðina. Gott er að bera volga kókosolíu í hárið og láta hana vera í 20 mínútur áður en hún er skoluð úr.
Og svo að lokum eitt sem er pottþétt að gera í kvöld og þá verðið þið undurfagrar og mjúkar...þeyta rjóma og bera á sig fyrir svefninn...má þvo af eftir svona hálftíma...ef ykkur finnst ógeðslegt að sofa með hann...
Hunang, mjólk og eggjahvíta er líka geggjuð blanda í andlitsmaska sem hefur reynst vel gegn bólum og hrukkum. Gott að láta liggja á svona korter og skola af með köldu dashi..
og hunang er líka æðislegt á varirnar...betra en nokkur gloss
more tomorrow my pretty ladies...er að fara að máta kjólinn sem hún Rakelita keypti á mig í New York...úúú er svo spennt!!!
knús
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Félag kvenna í atvinnurekstri Allar konur standa saman
- Nýsköpunarmiðstöð Íslands Endalaus spennandi námskeið fyrir okkur
- Líkami, hugur og Sál Frábær staður til að byggja sig upp.
- Rósa Traustadóttir Æðislega jógastöð á Selfossi
- Sumarhús í fyrsta flokki Einstaklega fallegur staður undir fjallinu Búrfelli.
- Flottasti ferðamannastaður á Íslandi Alltaf gott að koma að Geysi
- Selfoss, Eyrarbakki, Stokkseyri og Sandvíkurhreppur My hometown:-)
- Húsið á Eyrarbakka og Byggðasafn Árnesinga Eitt skemmtilegasta safn á Íslandi
- Safnaklasi á Suðurlandi ÞAð er alltaf eitthvað að gerast á Suðurlandi
- Menningarráð Suðurlands Alltaf eitthvað gott starf í gangi
- Veitingastaður á Eyrarbakka Rómantískur staður og maturinn klikkar aldrei!
- Endalaus fróðleikur ein flottasta heimasíða sem ég hef séð!
- Listakonan Þórdís Frábærar myndir
- Fyrsti verslunarstaður Íslendinga Skemmtilegasta þorp á Íslandi
- Gallerí Gónhóll á Eyrarbakka Gisting, karkaðir, ráðstefnusalir og fleira
- Lista og tungumálamiðstöð fyrir börn og unglinga Spennandi námskeið fyrir alla krakka!
Myndaalbúm
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
jiii hvað ég er farin að hlakka til:-)
Lóa (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 21:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.