Elskulegu dömur..Gúglurnar hittust í gær og ákváðu að lesa næst bókina hennar Sue Monk Kidd, Leyndardómur býflugnanna...
Mögnuð bók og styrkjandi fyrir okkur að lesa...ég las hana fyrir nokkru og ákvað að kaupa hana því þetta er svona bók sem allar dömur þurfa að eiga...ótrúlega vel skrifuð og ein af þessum bókum sem ilma...þið vitið ...maður finnur lyktina af hunanginu og er algjörlega staddur í söguþræðinum...allan tímann og þegar lestrinum lýkur...æ, þá vill maður óska þess að bókin væri að byrja...en hugsar svo um leið og skilað er í bókasafnið...þetta er bók sem ég þarf að kaupa og eiga því ég vil lesa hana aftur og aftur...
Og talandi um hunang my ladies in Space...himingeimurinn allur er undir okkar áhrifum þessa vikuna og nær hámarki á hátíð geimgyðjanna á laugardagskvöld....GULL; SILFUR;SVART;HVÍTT;og svo allir mögulegir og ómögulegir BLÁIR tónar munu verða í öndvegi voru...og þá datt það í huga minn...sem annars kúrir nú oftast nær ósköp vært undir ljósum lokkum...að ein aðaldaman okkar hún Hildur var með námskeið fyrir nokkrum árum um regnbogafæði þar sem hún talaði um að hunang væri gullin fæða...og gull er sko eðaldömuliturinn og því mun ég senda ykkur nokkra punkta nú í vikunni um kosti hunangsins og hvernig við getum nýtt okkur það til fegurðar-og fríkkunar...ekki svo að skilja að það sé á okkur bætandi en...a lady has to do......
En þetta regnbogafæði er æðislega skemmtileg pæling þar sem hún talaði um að við ættum að borða mismunandi lita fæðu á mismunandi tímum dagsins...ég man þetta nú ekki alveg nógu vel...held að það hafi verið litir orkustöðvanna..rautt á morgnana sem að beinir huganum að rótarstöðinni og við vekjum þá líkamann og hlustum betur á hann...gefum honum þannig tækifæri til að lækna sig sjálfan áður en við verðum eitthvað slój og slappar...kveikja á kertum í réttu litunum til að minna okkur á hvaða liti við erum að vinna með...og ekki er nú ódömulegt að borða alltaf við kertaljós...já, ég set hérna nokkra punkta úr bókinni hennar Ætigarðurinn - handbók grasnytjungsins...þó þið eigið hana eflaust flestar...athugið þetta í alvöru...ótrúlega sneddý...
Við eigum að borða rautt á morgnana eins og tómatsafa, ber og berjamauk á brauð eða rauð epli.
Um hádegisbilið má athuga gular matartegundir eins og gulrót, eða rófusneið, banana, greipaldin, ananassafa, perur, heilhveitibrauð, korn, gulan ost eða egg. Grænt fellur að kaffitíma eða kvöldmat eftir því hve snemma við tökum daginn. Þar kemur til greina grænt te, græn vínber, kíví eða avókadó, vænt salat og spírur eða gúrka á samlokuna.
Svo væri hægt að hafa kvöldmatinn grænan og þá er um ótalmargt að velja. Grænt tengist hjartanu og ef við höfum byrjað daginn með því að styrkja eigin orku er kominn tími til að vera hlýlegur við aðra.
Seinni part dagsins kemur blátt og blágrænt inn í skalann og við eigum fátt fæðukyns þar nema berjasaft, plómur, bláberjamúffur eða blágresiste. Það má íhuga litina þegar drukkið er te yfir daginn. Þótt blöð jurta séu græn eru blómin í mismunandi litum. Eins má setja vatn á litaðar flöskur, bláar eða grænar, stilla þeim út í glugga og drekka vatnið, sem hefur þá dregið til sín litatíðni glersins úr sólarljósinu.
Fjólublá fæða tilheyrir kvöldinu og þá er helst að fá sér bláberjasúpu, berjasaft, vínber eða rauðsmárate. Það er ekki alveg auðvelt að flokka mat eftir litum, sérstaklega þegar kemur að þeim fjólubláa. Mörkin á milli þess sem er blátt, fjólublátt eða rautt og rauðbrúnt eru ekki skýr. Heldur ekki milli þess rauða og gula eða gula og hvíta.
Sagt er að rauð fæða gefi orku, sé skapbætandi, komi í veg fyrir sýkingar í blöðru og bæti blóðrásina. Má þar nefna radísur, jarðarber, epli og rifsber, rauðar berjasaftir, tómata og papriku. Gulrauð fæða á að styrkja hjarta, taugar og eitla. Þar má nefna gulrætur, appelsínur og aðra ávexti.
Gul fæða á að virka vel á taugar, lifur og meltingarfæri. Þar má nefna gula papriku, rófur, sítrónur, banana og greipaldin.
Græn fæða er sögð styrkja nýru og sjón, yngja líkamskerfið, skapa jafnvægi, vinna gegn liðagigt og hreinsa. Þarna er um auðugan garð að gresja eins og salat, beðju, steinselju og hvítkál, spergilkál, grænkál, agúrku, kúrbít og kryddjurtir.
Fjólublá fæða þykir hamla mót krabbameini og vera góð fyrir heilastarfsemina. Þar má tilgreina vínber, bláber, eggaldin, rauðlauk, rauðkál, nýrnabaunir, rauðrófur, rófur, krækiber og söl og athugandi hvort fjallagrös, svartar ólífur, sólber og piparminta falli hér undir.
Hvítt inniber alla liti. Sé litahring snúið nógu hratt sést aðeins hvítt. Hvítar radísur, sveppir, næpur, hvítkál, hvítlaukur, salatlaukur, sojaafurðir, kókosmjólk, mjöl og hvítar baunir fylla þennan flokk.
Hunang, olíur og korn eru gullin fæða og það sem er gullið hefur ætíð þótt eðlara en það gula.
Margt í sambandi við litina og fæðuna má kanna með pendúl. Óunnin mjólk og hreinar mjólkurafurðir eru miklir orkugjafar. Svo er hreinsuð vara eins og hveiti og sykur alveg hvít. Sumt af hvítu fæðunni er þannig næringarskert en annað inniheldur nokkurn veginn fullkomna næringu eins og móðurmjólkin. Hið eiginlega regnbogafæði er þó skilgreint þannig að ávextir og grænmeti taki beint til sín hluta af litrófi sólarinnar en fæða úr dýraríkinu lúti öðrum lögmálum.
Er þetta ekki skemmtilegt....eins og allt sem við viljum hafa í kringum okkur....en.......
minntist konan ekkert á súkkulaði?
Er að fara í heitt hunangsbað og lesa um hunangsaðgerðir fyrir heldri manna húsfreyjur...læt ykkur vita á morgun elskurnar
lovjú like honey..
lady blue
Flokkur: Lífstíll | 12.2.2008 | 23:31 (breytt kl. 23:36) | Facebook
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Félag kvenna í atvinnurekstri Allar konur standa saman
- Nýsköpunarmiðstöð Íslands Endalaus spennandi námskeið fyrir okkur
- Líkami, hugur og Sál Frábær staður til að byggja sig upp.
- Rósa Traustadóttir Æðislega jógastöð á Selfossi
- Sumarhús í fyrsta flokki Einstaklega fallegur staður undir fjallinu Búrfelli.
- Flottasti ferðamannastaður á Íslandi Alltaf gott að koma að Geysi
- Selfoss, Eyrarbakki, Stokkseyri og Sandvíkurhreppur My hometown:-)
- Húsið á Eyrarbakka og Byggðasafn Árnesinga Eitt skemmtilegasta safn á Íslandi
- Safnaklasi á Suðurlandi ÞAð er alltaf eitthvað að gerast á Suðurlandi
- Menningarráð Suðurlands Alltaf eitthvað gott starf í gangi
- Veitingastaður á Eyrarbakka Rómantískur staður og maturinn klikkar aldrei!
- Endalaus fróðleikur ein flottasta heimasíða sem ég hef séð!
- Listakonan Þórdís Frábærar myndir
- Fyrsti verslunarstaður Íslendinga Skemmtilegasta þorp á Íslandi
- Gallerí Gónhóll á Eyrarbakka Gisting, karkaðir, ráðstefnusalir og fleira
- Lista og tungumálamiðstöð fyrir börn og unglinga Spennandi námskeið fyrir alla krakka!
Myndaalbúm
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 388660
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.