Loy Krathong 24.nóvember 2007 og Stóri Búddha...

Erum að nálgast BúddhaGóðan dag elskurnar...

Enn einn stór dagur í lífi okkar...við fórum í ræktina og svo kom Isaac og sótti okkur og ók með okkur að stórri Búddhamynd sem er gulli slegin utan á fjalli...þetta er eiginlega ólýsanlegt..það er eins og þeir hafi flísalagt myndina á fjallið og svo málað með uppáhaldslitnum sínum...gulli auðvitað... en það er nú með svo margt hér sem við erum að upplifa og sjá...erfitt að lýsa fyrir ykkur en ég reyni mitt besta my dear ladies,.,..

Við fengum líka kókoshnetur beint af trjánum...það var æðislegt. Fyrst drukkum við mjólkina og borðuðum svo kókoskjötið á eftir...enammenamm...ummm ...Svo kom Isaac með alls kyns snakk líka  ...tahilenskt eitthvað svona djúpsteikt og skrítið...frekar vont..en við ekki missa feis...bara brosa og brosa...Kókoshnetur beint af trjánum...og svo spýta bak við bílinn þegar enginn sér..

En þetta var allt svo skemmtilegt...og ekki var nú allt búið enn.. Við áttum pantað borð í kvöld á uppáhaldsstaðnum okkar þar sem sá ítalski syngur svo ógleymanlega...og að auki er í dag er Loy Krathong hátíðin Smilesem er ein litríkasta og fallegasta hátíð Thailendinga og eru þeir þó miklir gleðimenn og halda oft uppá lífið og tilveruna.....þetta er fyrst og fremst búddhahátíð og hefur verið síðan 1863, að King Rama IV ákvað að heiðra skyldi Búddha á fullu tungli hins 12. tunglmánaðar sem samkvæmt thai-tímatali fellur í nóvember...en einnig hátíð til heiðurs gyðju vatnsins Phra Mae...vá! Eitthvað fyrir mermaid...Erum við lukkunnar pamfílar eða hvað...:-)

Það eru búnar til afskaplega fallegar skreytingar úr blómum, þau eru fest á bananablöð ásamt kerti og reykelsum og fleytt út í sjóinn.  Kertið er táknrænt fyrir okkur..að sleppa tökunum og láta allt sem ergir okkur...heftir okkur eða íþyngir fljóta út í hafið...sumir setja líka peninga til að laða að heppni eða good luck eins og þeir segja...Hér erum við með Krathong til að fleyta út á hafiðþetta er svipuð hátíð og Thanksgiving í Ameríku og sennilega á hún rætur sínar að rekja til Divali hátíðarinnar á Indlandi en þar hafa þeir fleytt gjöfum á Gangesfljótinu í árhundruð og beðið um gott árferði.

Margir klæðast sínu besta pússi og haldnar eru fegurðarsamkeppnir...ótrúlega fallegar og vel puntaðar konur á öllum aldri flykkjast niður að strönd og senda óskir sínar útí hafið...sumar með vestræna menn í nýsaumuðum silkifötum...æ, þetta er svo skemmtilegt allt samanGrin Sölumenn bjóða vörur sínar...litlir sætir kallar með vogarkörfur fullar af rækjum og ýmsu öðru ókennilegu ...en allt er það ætt því mikið borða innfæddir af þessu...kannski prófum við einhvern tíma kakkalakka og engisprettur í orlydegi..

Svo eru blys sett á loft....himininn logar og ljósin dansa í loftinu...flugeldar sprikla og ströndin er gjörsamlega full af fólki...sjórinn er fullur af ljósum og reykelsisilmurinn liggur í loftinu...allt svona dulúðugt og spennandi en yfir öllu þessu brosir máninn og svífur í hinu óendanlega og veit meira en við...Hafmeyjudansinn til heiðurs Phra Mae ..gyðju hafsins..á fullu tungli..

Við sungum og dönsuðum á ströndinni...All we are saying...is give peace a change...og svo fleyttum við  okkar Krathong út í hafið og horfðum á eftir áhyggjum okkar...brostnum vonum...gremju...bara öllu sem við héldum að skipti einhvern tíma einhverju máli...allt sigldi þetta í rólegheitum út í nóttina og vaggaði sér léttilega á öldunum og það rann upp fyrir okkur að allt líður hjá...ekkert er eins og það sýnist og við fylltumst ró....fylltumst af núinu og nutum þess..

Ekki má ég samt gleyma því að segja ykkur að við borðuðum hjá þeim ítalska...tenórnum mikla..og það var æðislega góður matur hjá honum...strákarnir reyndar segja að hann kunni ekki að búa til sósu...en við fengum rækjukokkteil í forrétt, lambakótilettur, fisk, kjúkling og pizzu í aðalrétt...og svo steikta banana baðaða í súkkulaði með ítölskum ískúlum...ferskan ananas og allskonar kromsígroms í eftirmat....

Já ...life is goooood in Thailand my ladies...

knús til ykkar

a


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband