Ice Villas

Sælar elskurnar,

Nú er það stuð...við fundum draumastaðinn hér til að búa til heilsuhótel með öllu...Mr. F þjálfar, heilsufæði, nudd, golf, ferðalög og...shop till you drop á milli...ég meina ladies, búðirnar hér eru opnar til miðnættis og það kostar ekkert að versla hérna!!! Ég meina Nike íþróttabolur á 500 krónur...ert´ekki að grínast með verðið hérna...það er jafnótrúlegt og veðrið... Hvernig líst ykkur á girls...og svo er allt hitt, sjórinn, næturlífið og endalaust skemmtilegt fólk hér!

Við tókum vel á í ræktinni í dag og vorum vel upplögð sem var ekki að undra því gærkvöldið endaði á klukkutímafóta- og axlanuddi..sem by the way..kostar 250 bath eða 500 krónur...ofan í það fengum við okkur dásamlegan banana, hnetu og súkkulaðiís áður en við svifum inn í draumalandið góða.

Eftir ræktarrassíuna hittum við Pálma og byggingaverktakann hans  á kránni og ókum með þeim að skoða Ice Villas sem er í byggingu rétt fyrir utan bæinn ...Frekar flott ....

Þarna er hann að byggja 8 einbýlishús sem eru ætluð útlendingum enda standardinn á byggingunni yfir öllum stöðlum, tvöfalt gler og flíslagt í hólf og gólf...meira að segja fataskápurinn er flíslagður..

Þetta er mjög skemmtilegur staður, mikið af golfvöllum í kring og svo auðvitað ströndin í aðeins 15 km fjarlægð...skólar og háskólar...kannski við verðum bara hér og förum að læra thailensku...you never know what will happen....

Þarna er jacuzzi á þakinu

 

 Veðurfarið hér er óneitanlega töluvert meira spennandi....verðlagið hagstætt...læt ykkur frétta meira og nánar um þetta alltsaman...

Svo var chillað í garðinum til klukkan fimm...þá fékk ég nuddkonu til að koma til mín á herbergið og nudda mig í klukkutíma...það var dásamlegt...og nú erum við að fara út að borða...

hafið það gott og munið að vera duglegar að dekra við ykkur og klappa ykkur.... þið munið hvað við lærðum í dömuferðunum...

knús

a


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

jedúddamía.....þetta er eins og í ævintýrunum...... 1001 nótt og hvað  þetta nú heitir.....oh my gooooooooood......er eitthvað eftir af þessum húsum....

Knús og klemm úr slengjandi slag..júnó... 

Kristjana Kjartans (IP-tala skráð) 23.11.2007 kl. 08:41

2 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Vá hvað þetta er mikið ævintýri hjá ykkur þarna,,,,,, úff frábært

knús Sædís

Sædís Ósk Harðardóttir, 23.11.2007 kl. 15:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband