Villidýr á vatnsköttum...

'Otrúlegt....enn skein sólin þegar við vöknuðum í morgun. Ég hef aldrei kynnst svona loftslagi...alltaf hlýtt og notalegt samt ekki kæfandi eða rakt...aldrei undir 25 allt árið...afskaplega hentugt loftslag fyrir ladies, I must say...

Byrjuðum á því að henda minni í djúpu laugina...jú ég þurfti sko að fara alein á mótorhjóli út í klikkaða vinstri umferð...að vísu með lifverði báðum megin en þetta var skerí...en þið vitið hvernig ég er...beit á jaxlinn og stökk útí og ég komst í ræktina..bar mig vel...lét eins og þetta væri kökubiti. Eftir góðan klukkutíma í ræktinni, hreint út sagt dásamlega full af endorfíni,- brunuðum við af stað niður á Jomtien ströndina...mikil umferð...mín að venjast, mikil samhæfing í gangi...

GS fær sér tilraunatattúÞað var dásamlegt að koma á ströndina og láta sig falla niður í sólstól og slaka á...Mr F gaf mér ótrúlega fallegar Búddhamyndir...gulli slegnar af okkur andans fólkinu og búddistunum...en svo...var komið að því að skella sér á vatnskettina og láta sig svífa yfir hafflötinn...geggjað!!! Við flugum....en það var alltof fljótt búið...tímagengið hér á Asíumarkaði er eitthvað óhagstætt...korter hér er eins og fimm mínútur heima????Tíminn svífur fram úr okkur og það er alltaf komið kvöld..

Við urðum að halda heim á leið...og ég meikaði það á hjólinu...og þetta er að verða svoldið skemmtilegt...svona bráðum:-)

Í kvöld ætlum við á indverska staðinn okkar...indverskur matur fer svo vel í okkur....vindgangur af og til ef við borðum mikið af baununum...en við erum hér í landi umburðarlyndis og kærleika svo það er ekki synd..

knús frá happy thailady

a

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband