Sælar elskurnar,
Nú er Lóa Dagbjört dóttir mín 28 ára í dag...hugsa sér! Mér finnst svo stutt síðan ég hélt á henni í fyrsta skipti .... en nú eigum við orðin 28 ár saman...dásamlegt. Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér...og er elsku dúllan mín. Ég held að mesta gæfa mín í lífinu sé að eiga börnin mín,.,., og ekki síður barnabörnin yndislegu. Nú vorum við að fá eina nýja prinsessu. Þórunn okkar er orðin léttari og ég verð að sýna ykkur hvað hún er sæt...
Alda var svo glöð að sjá að hún svaf undir sængurveri frá henni...það fylgja því góðar óskir veit ég....
Þessi dagur byrjaði á hugleiðslu...þá meina ég mjööög djúpri og einbeittri leiðslu þar sem farið var yfir hvern vöðva...og þeir eru allir aumir...stóru lærvöðvarnir aftan á voru eins og símastaurar og ég þurfti að taka nokkrar mínútur í að teygja og sveigja mig niður í lotusinn. Beauty is pain as we know girls...og ég er sko aðeins farin að sjá mun...bingóvöðvarnir eru orðnir aðeins styrkari og kviðvöðvar eru víst ekki bara til á myndum...
Í gær var semsagt sunnudagur og við héldum að það ætti að verða rólegt svona...jú, byrjaði þannig...bara chillað úti við laugina...sólin skein og ég skellti mér útí og synti einar 100 ferðir...þóttist góð og var rétt að byrja að svífa inn í draumalandið ...þegar Mr. F hringdi og sagði að það væri mæting í ræktina eftir hálftíma...
Það var stokkið af stað og draumalandinu lokað í bili..og nú var sko tekið á því...OMG, hvað við erum í lélegu formi! Eins gott að nota þennan mánuð vel...say no more!
Eftir hörkuæfingu þar sem boginn var spenntur til hins ýtrasta fórum við svo og borðuðum og slökuðum í smástund, karlarnir fóru svo á fund en ég fór yfir til vinkonu minnar hérna við hliðina og fékk fótanudd og ....jú, hárþvott og blástur...dúið verður að vera í lagi..
Þetta er afskaplega kærleiksrík og krúttleg kona, tekur utan um mann og knúsar við hvert tækifæri...mjög óvenjulegt af Thailending sem yfirleitt leggja saman lófa og hneigja sig þegar þeir heilsa...eins og flestir búddistar, held ég...
Anyway, hún sagði mér sögu sína og sýndi mér myndir af sonunum tveimur. Hún skildi við eiginmanninn fyrir sex árum...no good husband, new wife after one week...svo dreif hún sig til Bangkok og lærði nudd og hárgreiðslu...dugnaðarforkur...no , like men...men only spend money, men drink, men like ladies...jú , ég er farin að skilja heilmikið í tahi-ensku.. svo á hún systur í Danmörku , ég verð að hitta hana og fara með pakka til hennar...hún hefur aðeins einu sinni komið heim til *Thailands í frí á 10 árum...
Við GS fórum svo í smágönguferð...ætlaði með hann út að borða á einum mjög flottum stað hér rétt hjá en honum leist ekki á að sitja úti og verða kannski bitinn af moskító...hann er svo sætur hjá mér strákurinn að þær bíta hann stöðugt...svo við enduðum bara hjá James...sem er alltaf góður.
Knús í bili elskurnar og takk fyrir allar kveðjurnar.
a
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Félag kvenna í atvinnurekstri Allar konur standa saman
- Nýsköpunarmiðstöð Íslands Endalaus spennandi námskeið fyrir okkur
- Líkami, hugur og Sál Frábær staður til að byggja sig upp.
- Rósa Traustadóttir Æðislega jógastöð á Selfossi
- Sumarhús í fyrsta flokki Einstaklega fallegur staður undir fjallinu Búrfelli.
- Flottasti ferðamannastaður á Íslandi Alltaf gott að koma að Geysi
- Selfoss, Eyrarbakki, Stokkseyri og Sandvíkurhreppur My hometown:-)
- Húsið á Eyrarbakka og Byggðasafn Árnesinga Eitt skemmtilegasta safn á Íslandi
- Safnaklasi á Suðurlandi ÞAð er alltaf eitthvað að gerast á Suðurlandi
- Menningarráð Suðurlands Alltaf eitthvað gott starf í gangi
- Veitingastaður á Eyrarbakka Rómantískur staður og maturinn klikkar aldrei!
- Endalaus fróðleikur ein flottasta heimasíða sem ég hef séð!
- Listakonan Þórdís Frábærar myndir
- Fyrsti verslunarstaður Íslendinga Skemmtilegasta þorp á Íslandi
- Gallerí Gónhóll á Eyrarbakka Gisting, karkaðir, ráðstefnusalir og fleira
- Lista og tungumálamiðstöð fyrir börn og unglinga Spennandi námskeið fyrir alla krakka!
Myndaalbúm
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 388787
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæl Anna mín
Til hamingju með nýjasta fjölskyldumeðliminn, indisleg og falleg lítil stúlka !!!
Maðurinn með vængina er nú ekkert slor, eða hvað þú getur ímyndað þér hver skóstærðin er miðað við allt hitt !!!
Diana Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 20:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.