Apaeyja

Jæja elskulegu dömur,

Þetta er báturinn okkarÍ dag fórum við með hraðbát útí eyju sem hér hér utan við Pattaya og heitir Apaeyja...ég sá samt enga alvöru apa....bara nokkra rússa...veit ekki hvort það telst með!

Nema hvað...veðrið var svo gott að Mr. F ákvað að við skyldum æfa úti í dag. Við leigðum semsagt bát og sigldum hraðbyri í svona 20 mínútur og það var nú eitthvað fyrir my mermaid....hreint út sagt frábært og frelsið fauk í æðarnar! Jú...Thailand er toppurinn í dag!!!!!

Við komum okkur fyrir á bekkjunum og bleyttum aðeins í okkur...sólin skein úti og inni í hverju sinni.. Við fengum okkur snarl en svo braust einkaþjálfarinn fram í Mr F, þrátt fyrir 30 stiga hita,-  og við tókum róðraræfingu á kajak..já, hann er fjölbreyttur strákurinn og kemur sífellt á óvart þessi elska. Árangurinn lætur ekki á sér standa

Þetta var æðisleg þjáfun og enn á ný æfir hann upp hjá okkur samhæfingu hugar og handar sem á það víst til að dofna hjá eldra fólki...ekki það að við séum svo forn heldur eru þetta fyrirbyggjandi aðgerðir og ætlaðar til að halda okkur í formi eins og allt sem við erum í núna og þá er ég ekki aðeins að tala um líkamstyrkinn og vöðvauppbygginguna...heldur og allt þetta andlega sem við fáum líka...

GS tók svo aukaæfingu með Mr. F....skokkuðu á landi, ruku útí sjó og gerðu svo hnébeygjur...ég held að kallinn verði bara orðinn eins og nýr hjá mér eftir þetta...amk kom hann á spretthlaupi til baka og annað eins performance hefur ekki sést síðan hann gjörsigraði alla keppinauta sína í heimsfrægri sundkeppni sem haldin var á Selfossi árið 1962...var þetta ekki 50 m bringusund pilta....jú, það minnir mig.

Við fórum svo heim klukkan sautjánhundruð...þar var tekin góð sturta og svo borðuðum við á Jameson...ægilega gott salat og klúbbsamloku en ókum síðan í Carrefour sem er hér rétt handan við hornið og keyptum inn ýmsar nýlenduvörur sem bráðvantaði hjá okkur í búskapinn.

Við Mr. F gerðum þarna einstakan díl í reykelsisinnkaupum og nú ilmar allt af lótusblómum í íbúðinni. And my ladies....once again hold your hats.... þegar hann heyrði að GS væri eiginlega bara ekkert fyrir að fara í búðir, já reyndar bara á núlli þar eins og við vitum og höfum haldið að flestir karlar séu með þessu marki brenndir...haldið þið að hann hafi svo ekki boðist til að koma með mér í búðir...ég hélt nú að svona menn fyrirfyndust ekki  en...life is still full of surprises.... even for cosmopolitan ladies like us.... Já, við förum að versla...En GS var frekar  lukkulegur...júnóvæ.... og ég náttla líka stelpur mínar...eins og þið sjáið!

 

Well...þar sem það er laugardagskvöld, ákváðum við að fara og ná í gullkeðjuna hans GS sem hann var að láta stytta í hálsmenið sem Mr. F gaf honum...jú, jú það eru gjafir og allt sko...þá ókum við á mótorfákunum niðrá Walking Street og sóttum gripinn sem var afar fallegur og fór vel. Við gengum síðan inná Starbucks og þar var tekið næsta stopp með kaffi og unaðslegum mangódrykk...og svo ákváðum við að live a little og fengum okkur eina djúsí og þétta brownies... enammenamm....

Við héldum svo göngunni áfram og þar sem við göngum fram hjá veitingastaðnum sem Mr.F hafði sagt okkur frá áður, að þar væri eigandi einn af ítölsku faðerni og afskaplega söngvinn, heyrum við unaðstóna leggja út á götu og við ákváðum að líta við...sem betur fer! Þarna lentum við...og ég er ekki að ýkja, á bestu tónleikum sem við höfum bara nokkru sinni upplifað. Maðurinn söng eins og Pavarotti upprisinn, það er enginn lýgi og samt er hann mjór svo þar fór sú goðsögnin...Pavarotti endurfæddur

Þarna sátum við í klukkutíma og klöppuðum , hoppuðum og grétum af einskærri gleði og fegurðin smaug inn að hjartarótum...ég segi nú ekki meir! Hann söng alls konar aríur úr óperum...Canta , no llores meira að segja, og svo alls konar ballöður og rokk...spilaði á trommur og ég veit ekki hvað! Til dæmis tók hann; My way, We´ve got the power og Imagine...og þið vitið hvað gerist alltaf þegar ég heyri það lag...say no more...ég er bara svo leið yfir því að við getum ekki enn látið þennan sameiginlega draum okkar rætast....en það kemur! Við stefnum að því...

Við vorum hálfklökk þegar við komum þarna út. Það eru í raun engin orð sem fá lýst því hvað allt var fallegt þarna inni, staðurinn ljósum prýddur, söngurinn óviðjafnanlegur og gleðin skein af söngvaranum og skilaði sér til okkar áheyrendanna. Við ákváðum að panta borð þarna um næstu helgi og vera....

Til að jafna okkur...kannski má segja að við þyrftum að trappa okkur niður eftir þessa upplifun, fórum við uppá Búddhahæðina og heilsuðum uppá Búddhana okkar. Hundarnir létu ófriðlega enda kom í ljós að þarna voru rússar í nánd og það var sem blessuð skepnan skildi... þeir eru harðir við hunda í Moskvuborg...

kveikt á reykelsi og þakkaðSvo fórum við á útsýnishæðina þar sem við sjáum yfir alla Pattaya. Þar voru líka Búddhar og við kveiktum á kertum og reykelsum, gjörðum þakkir fyrir tónleikana og allt mögulegt annað sem við getum endalaust þakkað fyrir. Það var mjög skemmtilegt að við keyptum reykelsispakka og inni í honum voru svona lítil gullsnifsi sem við límdum svo á stytturnar og miðarnir blakta svo eins og fiðrildavængir í golunni...

Þarna sáum við líka fullan Thailending í fyrsta sinn en hann var afskaplega hamingjusamur og engum til ama. Langaði bara til að spreyta sig í enskunni...þið vitið að við verðum oft svo góð í tungumálum ef við verðum svoldið tipsý...

Svo var ekið eftir strandgötunni...hinni...ekki sko Beach Road..ég er ekki alveg búin að læra hvað hún heitir ..kannski á morgun...og endað á bar hjá skemmtilegum Svía sem hefur búið hér í sex ár og líður afskaplega vel. Mr F. sagði okkur að hann væri algjör Búddhi, væri bara í flæðinu og upplifði núið, það fundum við líka þegar við fórum að tala við hann. Eitt mjög skemmtilegt sáum við þarna en hér eru allir veitingastaðir skreyttir, mynd af kónginum, drottningunni, bænahús eða altari, blóm...bara nefna það, en þarna var barnabúddha og fyrir neðan hann höfðu verið hengd leikföng svo hann hefði nú eitthvað að dunda sér við...snilld!

En nú var komið nóg og haldið heim á leið...ég hélt reyndar að klukkan væri um tólf en hún er þrjú...Ég held ég fari nú bara að halla mér og svífa inní draumalandið....

Góða nótt elskurnar

a


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband