Sawati Ka, lúkkí, lúkkí...

Já, mín er nú bara orðin þokkalega sleip í thailenskunni...stöðugt verið að æfa á hverjum degi!

Í morgun skein sólin glatt og við byrjuðum á slökun í garðinum. Flottur garður og við í svo frábærri íbúð sem gengið er út frá beint í laugina. Thailand nóv 2007 002Nokkrir ísraelar voru að damla í lauginni, allir frekar svona fótsmáir...yes, my ladies....og svo líka í þessum hertu sundbuxum sem Miss DBK þolir ekki...þannig að ég snéri mér að Hanh og lét mig dreyma ...en ekki lengi!

Búmm, búmm...Það var barið og Mr. F  var mættur með vigtina og klíputækið...við vorum tekin á teppið og þá kom í ljós að við erum jú...soldið búttuð sem þykir nú fallegt á börnum en frekar svona slappt á þetta fullorðnu fólki! Ekki að við séum neitt svakalega feit en kannski svona í þykkari kantinum.. ,,Nú er okkur ekki til setunnar boðið,"  sagði Mr F og horfði á okkur undan þykkum brúnunum, ,, Beint í ræktina með ukkur!" Jú við stukkum á bak mótorhjólunum og svo var heldur betur tekið á því....ekki samt neitt kvikindislega, við lyftum og stukkum og bökuðum bolta...allt undir fránum augum Mr. F. Hann er...stelpur..góður þjálfari...sá besti segir hann...og ég held að þetta sé bara nokkuð rétt hjá honum...very promising amk fyrsti tíminn...Ég held við séum sko keis...en hann Mr. F bar sig vel og lét ekki á neinu bera...Thailand nóv 2007 006meira segja á eftir fór hann með okkur á gasalega lekkeran stað við ströndina þar sem við fengum allsk kyns kræsingar og kruðerí....en ekki var allt búið enn my ladies...and now hold on to your hats girls!!!

Rétt sisona yfir kaffibollanum ...segir Mr. F okkur að nú eigum við að fara í japanskt spa...júúú!Og við förum þangað og erum þar einar tvær stundir í góðu dekri og dúlleríi! Hann hafði sagt okkur til með þetta allt, við ættum að vera frjáls og ófeimin...þarna væru allir allsberir...það er víst bara móðins hér í svona baðstofum... Nú við vorum hvergi bangin enda góð kona sem tók á móti okkur og tók af okkur öll fötin og vafði okkur inn í handklæði...svo vorum við þvegin og síðan sett í gufubað..og svo í sjóðandi heitan nuddpott. Þegar við laumuðumst til að líta útundan okkur brá okkur í brún...allir hinir voru í sundfötum! Nú voru góð ráð dýr...en við hertum upp hugann, treystum bara á að Mr.F vissi allt um þetta og slökuðum á í pottinum. Heldur fór svo útsýnið að lagast , verð ég að segja af mínu dömulega innsæi, þegar flokkur fríðra sveina á adamsklæðum einum tóku að spígspora þarna um...held við ættum að fara að skipuleggja bara svona eins og eina lekkera dömuferð hingað ladies!

Þessu næst fengum við yndislegt nudd í klukkutíma, ótrúlega sterkar þessar smávöxnu konur og gefa gott nudd...jú stelpur mínar það eru örugglega karlkynsnuddarar hér líka...við skoðum það mál við fyrsta tækifæri. Svo var gufa eftir nuddið, sandskrúbbuð húðin og loks baðað...og við vorum eins og ný! En ekki var okkur til setunnar boðið, hér var mættur Mr.F og svo var brunað heim á hótel og bara hviss, bæng...út aftur að borða með hótelstýrunni Pom og tveimur ungum herrum...sennilega næstbestu nemendur Mr. F og mest svona promising íþróttahetjuefni á eftir okkur...jæja nóg um það...Við brunuðum á einhvern æðislegan veitingastað sem minnti um margt á Eden í Hveragerði nema þessi var undir berum bláhimni..og þarna var æðislegur matur. Enn átti eftir að koma okkur á óvart...ja, þessi Mr F er ekki allslaus í kollinum...nú hófst keppni í einni aðalíþrótt Asíubúa...og við vorum sko að keppa....KARAOKE! Thailand nóv 2007 021Við tókum öll þátt og slógum í gegn! Ekki orð um það meir, jú við höfum sums grunaða um að hafa æft stíft fyrir þetta kvöld en það eru hreint engin sárindi í gangi samt. Ekki þannig sko! En þetta var ótrúlega skemmtilegt og við hlógum mikið...förum pottþétt aftur! Eftir þetta fórum við á næturmarkað þar sem við gátum keypt í matinn, kakkalakka og alls kyns orma og myndarlegur ungur maður bað mig að setja mynd af sér á síðuna ef þið vilduð líta á hann ladies....Þetta er svo merkileg mannlífsflóra hér að það er bara hreint alveg dásamlegt...

Já, nú var farið að halla í tólf á miðnætti svo við fórum heim með hótelstýruna okkar og tókum fram mótorfákana því fátt er betra en að hjóla á kvöldin og finna mjúka og hlýja goluna strjúka sér um vanga. Við kíktum á bar hjá Íslendingum...þeir eru alls staðar að hasla sér völl þessir dugnaðarforkar, tókum svo gönguferð sem endaði hjá vinum okkar eða vinkonum öllu heldur...ladyboys are næææs!!! Thailand nóv 2007 029Mjög geðþekkar og lekkerar stúlkur sem spiluðu við okkur billa...ég fékk meira að segja einkatíma á meðan piltarnir náðu í hjólin...ég meina það ladies...ekki gat ég skilið þá eftir þarna eina!!! Og nú er komin nótt og við eigum enn og fleiri spennandi ævintýr framundan ....

Skoðið endilega nýtt albúm frá Thailandi. Ég reyni að setja inn myndir á hverju kvöldi...just because ælovjú

knúsaknús

a

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já nú er mikið gaman og mikið fjör hjá Önnu minni frá Grænuhlíð, það þarf greinilega ekki neina þæfða lopahúfu þarna ha...ha...

Njóttu Anna mín þú átt þetta allt svooooo mikið skilið !!

Varstu búi að heyra að Barbara Berger höfundur bókarinnar Skyndibitar fyrir sálina hringdi í mig !!! Var að hugsa um að bjóða henni í næsta leshóp !!

Kveðja Díana

Diana Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 17.11.2007 kl. 13:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband