jæja, nú erum við loksins komin til Thailands....OMG! Flugum með Flugleiðum til London, slökuðum á þar frá hádegi en flugum svo áfram með EVA air 12 tíma til Bangkok. Mjög þægilegt og gott flug.
Þetta er svoooo skemmtilegt að það ískrar allt inní mér...og svo öðruvísi og einstaklega litríkt! Það er hreinasti sannleikur sem daman Dinnhildur sagði mér í síðasta dömuboði; Thailand er æðislegt, fólkið er brosandi, maturinn er himneskur, loftslagið er dásamlegt og lífið brosir við okkur...
Við lentum hér í gær og vorum sótt af útsendara elskulegs vinar okkar og væntanlegs einkaþjálfara, Mr F...say no more for now...Ég veit ekki enn hvort við verðum látin sippa...Við ókum sem leið lá frá Bangkok, um hrísgrjónaakra og háhýsi...hér eru náttla miklir kontrastar og það er einmitt líka svo skemmtilegt. Þegar við komum á hótelið okkar, sem by the way heitir Nova Park, beið Mr. F okkar og við komum okkur fyrir í yndislegri íbúð sem verður okkar home sweet home næstu vikur. Við fórum svo beint í fótanudd og það var ótrúlega unaðslegt eftir sólarhrings ferðalag...very promising I must say...
Svo fórum við í fínan dinner á írskum pöbb sem er hér á hlaðinu en skelltum okkur svo á bak mótorhjólum og ókum niður á strandgötuna þar sem lífið birtist okkur í öllum...já og þá meina ég ÖLLUM mögulegum og ómögulegum myndum...þarna eru sko portkonur og menn og sumt er bara bæði...júnóvatæmín...allir brosandi og afslappaðir yfir öllu þessu og total frelsi ríkir hér á öllum sviðum!!!Þarf ekki fleiri orð um það. Hér eru gamlir menn með ungar konur...paradís eldri borgara sem fá hér yndislegar hjúkrunarkonur...spurning um að opna svona heima í staðinn fyrir Grund!!
Toppurinn var samt að sjá loksins Búddha...Risastóran og úr gulli..Vá! Hér er allt mikið flúrað og skreytt...algjört bling og skemmtilega lifandi og heillandi að sjá. Við eigum eftir að sjá mikið af hofum og skrauti..Þeir eru líka alls staðar með lítil falleg bænahús og gefa öndunum ...nei Guðunum sínum hrísgrjón og aðrar góðar gjafir á morgnana..koma sér í gírinn og hugsa fallegar hugsanir og biðja um gott veður, held ég...er ekki alveg búin að fatta þetta en sýnist að það sé stór hluti af þeirra lífi...og í raun gaman að sjá hvernig trúin virkar og er með í daglegu lífi.
Seint og um síðir tímdum við svo að fara að sofa...og sváfum til klukkan tólf á hádegi! Þá vakti Mr. F okkur og ævintýrin héldu áfram...fyrst fórum við á mótorfákunum að fá okkur kaffi og skoða væntanlegar líkamsræktarstövar...völdum loks eina flotta og byrjum þar á morgun. Svo var smáslökun og síðan hugleiðsla í garðinum...klikkað!!! Um kvöldið var svo borðað á indverskum veitingastað og verslað gull...gerðar nokkrar mannlífsrannsóknir og borðað ís... Allt jafn frábært! Nú erum við komin heim og í fyrramálið er vigtum og mæling...úps, ekkert hægt að svindla eða draga inn magann...verðum fitukreist og klipin þannig að nú kemur okkar sanna eðli í ljós!
Bingóvöðvarnir mega nú aldeilis fara að vara sig og ég held svei m´´er þá að við fáum brátt sixpack og allt heila klabbið því Mr. F veit hvað hann er að gera. Þannig...elskurnar mínar...þið skuluð bara fara að búast við flottum hjónum heim fyrir jól...í kjólinn fyrir jólin verður nú loksins að veruleika!!!
Munið að vera góðar við ykkur og brosa...það er gert hér í Thailandi og við eigum það svo sannarlega skilið!
knús
a
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Félag kvenna í atvinnurekstri Allar konur standa saman
- Nýsköpunarmiðstöð Íslands Endalaus spennandi námskeið fyrir okkur
- Líkami, hugur og Sál Frábær staður til að byggja sig upp.
- Rósa Traustadóttir Æðislega jógastöð á Selfossi
- Sumarhús í fyrsta flokki Einstaklega fallegur staður undir fjallinu Búrfelli.
- Flottasti ferðamannastaður á Íslandi Alltaf gott að koma að Geysi
- Selfoss, Eyrarbakki, Stokkseyri og Sandvíkurhreppur My hometown:-)
- Húsið á Eyrarbakka og Byggðasafn Árnesinga Eitt skemmtilegasta safn á Íslandi
- Safnaklasi á Suðurlandi ÞAð er alltaf eitthvað að gerast á Suðurlandi
- Menningarráð Suðurlands Alltaf eitthvað gott starf í gangi
- Veitingastaður á Eyrarbakka Rómantískur staður og maturinn klikkar aldrei!
- Endalaus fróðleikur ein flottasta heimasíða sem ég hef séð!
- Listakonan Þórdís Frábærar myndir
- Fyrsti verslunarstaður Íslendinga Skemmtilegasta þorp á Íslandi
- Gallerí Gónhóll á Eyrarbakka Gisting, karkaðir, ráðstefnusalir og fleira
- Lista og tungumálamiðstöð fyrir börn og unglinga Spennandi námskeið fyrir alla krakka!
Myndaalbúm
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 388787
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Its nice to read something about Thailand.
its sounds very interesting and nice. Finally you have meet Buddha......
enjoy every bit of it.
I miss you soo much
love
Dorcas
Dorcas og fjölsk. (IP-tala skráð) 18.11.2007 kl. 20:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.