Baniprosonno og Putul eru yndisleg hjón sem hafa heiðrað okkur með nærveru sinni síðustu vikur. Þau fréttu af okkur, stallsystrunum fimm sem Alda Alvörukona bauð með í brúðkaup á Indlandi og þá kom í ljós að Bani hafði dreymt um það í 66 ár að koma til Íslands og fjölskyldan "okkar" í Kolkata kom þeim í samband við Öldu og þá fór boltinn að rúlla...og nú eru þau hér! Það hafa verið haldin stórkostleg námskeið í Listasafninu okkar Árnesinga í Hveragerði en þau hjónakornin gista einmitt þar í listamannaíbúð á vegum safnins. Inga og Alda hafa skipulagt og keyrt með þau um allt og nú á laugardaginn hitti ég þau svo loksins á frábærum fyrirlestri í Hveragerði þar sem við hlustuðum á listamanninn segja sögu sína og sýna verkin sín...sem eru frábær! Hann er svo skemmtilegur listamaður, svo glaður og hefur varðveitt barnið í sér og leyfir sér að njóta og skemmta sér...prakkarast og skrattast....sér heiminn í ljúfum línum og tónum...engir ferkantaðir litlir kassar sem eiga að vera svona en ekki hinsegin!!!Ég er búin að læra svo margt af þeim..bara strax! Konan hans er yndislega skemmtileg og ljúf enda kennari!!!Kenndi í mörg ár í Himalajafjöllunum þar sem þau eiga hús...og við systurnar heimboð!!!
Þau komu svo til mín á sunnudagssíðdegi og við vorum hér hópur af fólki samankomin til að elda og skapa listaverk í eldhúsinu. Hann dreymir um að skrifa eða skapa matreiðslubók um það hvernig á að elda án uppskrifta....eitthvað fyrir mig enda small allt vel í eldhúsinu hjá okkur. Við elduðum ótal skemmtilega rétti og sátum svo og borðuðum fram eftir og skoðuðum listaverkin hans. Hann fór með ljóð og sagði sögur...endalaus uppspretta af gleði og kátínu! Við erum að hugsa um að þýða þetta og gefa bara út hér á Íslandi...hver veit!
Í dag hittumst við svo aftur og fórum á Viss, Vinnustofu fatlaðra hér á Selfossi. Þar var nú minn í essinu sínu..hann byrjaði á því að saga út hest, svo leiraði hann frosk, fisk og ísbjörn...prófaði vatnsrúm, stereórúm og tæki sem nemur hljóð, sveif um salina og reif alls staðar upp túss og teiknaði af innlifun. Allir skemmtu sér hið besta sýndist mér en hann sennilega best!
Svo fórum við á verkstæðið mitt og skoðuðum gæðinginn minn góða og þá kom í ljós að hann hafði mikinn áhuga á fornbílum,.,.,.,ekki skemmdi það nú!!!
Mamma og pabbi buðu honum svo í ekta íslenskan mat...kjötbollur í brúnni með öllu tilheyrandi. Hann fór með ljóðin sín og pabbi með sín, það var óborganlegt og svei mér þá ef ég næ ekki foreldrum mínum bara með í ferð í Himalajafjöllinn! Þarna voru nú ekki tungumálaörðugleikarnir og allir skemmtu sér hið besta. Við fórum svo og skoðuðum Krúsina mína og þau smökkuðu eina af uppáhaldsuppskriftunum hennar mömmu...sælgætisostakökuna góðu!
Nú var komið að námskeiði í Listasafninu og þangað var brunað með fullan bíl af börnum sem fengu að mála og dilla sér við indverska tónlist í öllum litum. Inga fór með börnin um allt safnið og kenndi þeim að upplifa og lesa úr listaverkum og þetta var slík skemmtun að við urðum bara öll ung í annað sinn og verðum það líklega hér eftir! Á morgun er svo áætlað að halda áfram að skemmta sér...byrjum hjá Kötu í heimabökuðu brauði og pönnukökum að hætti Oddu og svo og svo ....aldrei að vita !!!
Æ, hvað er gaman og gaman bara!
Þetta hefur verið algjörlega ógleymanleg upplifun. Við munum halda áfram og láta ykkur fylgjast með ævintýrum okkar frá Íslandi til Himalajafjallanna....bærinn þeirra heitir Shimla og er í 2500 metra hæð..fáum væntanlega fréttir þaðan síðar og kannski bara líka einhverjar myndir að skoða!
Það er svo gaman líka að spjalla við þau um lífið og tilveruna. Þau eru svo miklir lífskonfektmolar! Þau eru svo dugleg að horfa á alla litlu hlutina í lífinu, dást að brauðinu sem dansar við hlæjandi eldinn, litla sköllótta sveppnum sem stendur keikur og setur í herðarnar við monsúnrigningarskvetturnar sem bylja á honum...og bara allt!
Hlakka til að læra meira!
knús
a
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Félag kvenna í atvinnurekstri Allar konur standa saman
- Nýsköpunarmiðstöð Íslands Endalaus spennandi námskeið fyrir okkur
- Líkami, hugur og Sál Frábær staður til að byggja sig upp.
- Rósa Traustadóttir Æðislega jógastöð á Selfossi
- Sumarhús í fyrsta flokki Einstaklega fallegur staður undir fjallinu Búrfelli.
- Flottasti ferðamannastaður á Íslandi Alltaf gott að koma að Geysi
- Selfoss, Eyrarbakki, Stokkseyri og Sandvíkurhreppur My hometown:-)
- Húsið á Eyrarbakka og Byggðasafn Árnesinga Eitt skemmtilegasta safn á Íslandi
- Safnaklasi á Suðurlandi ÞAð er alltaf eitthvað að gerast á Suðurlandi
- Menningarráð Suðurlands Alltaf eitthvað gott starf í gangi
- Veitingastaður á Eyrarbakka Rómantískur staður og maturinn klikkar aldrei!
- Endalaus fróðleikur ein flottasta heimasíða sem ég hef séð!
- Listakonan Þórdís Frábærar myndir
- Fyrsti verslunarstaður Íslendinga Skemmtilegasta þorp á Íslandi
- Gallerí Gónhóll á Eyrarbakka Gisting, karkaðir, ráðstefnusalir og fleira
- Lista og tungumálamiðstöð fyrir börn og unglinga Spennandi námskeið fyrir alla krakka!
Myndaalbúm
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 388787
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.