Nú er teklúbburinn í Danmörku að halda uppá 10 ára afmælið sitt. Klúbburinn var einmitt stofnaður hér í þessu dásamlega dömulega landi fyrir réttum 10 árum. Hugsa sér hvað tíminn flýgur! En við erum nú alltaf að verða betri með hverju árinu sem líður þannig að það er gott að eldast og vitkast með tímanum...
Við komum hér á laugardagskvöldið, fórum inn í Grænuhlíð, beint í náttfötin og höfðum það huggulegt fram eftir nóttu. Skokkuðum í bakaríið á sunnudagsmorgninum og keyptum okkur bakkelsi. Anna Sigga kom svo og nuddaði okkur og dekraði okkur uppúr öllu...dásamlegt! Svo var eldað og sopið aðeins á rauðvíni og svona huggulegheit...
Á mánudeginum fórum við svo til Kolding. Þar er fín göngugata og gaman að skoða. Þar fundum við svo lekkeran smörrebrauðsstað...Farmors Spisekro...mjög svo flott og elegant!
Svo fórum við til Tönder sem er voða sætur bær við landamærin. Þar er skondnasta búð sem við höfum séð..það tók okkur tvo tíma að komast í gegnum hana..mikið jóladót og bara alls konar..ótrúleg! Det gamle Apotek hedder den her butik og den er sko flot!
Svo var náttla haldið uppá ammili með pomp og prakt!!! Koníak..hringt í Gulla og fleiri fastir liðir eins og venjulega fram undir morgun...Settum á okkur maska....og gúrkur og fleira góðgæti..
Nú erum við úti í jóga...heyrumst síðar
gúddbæ girls!
Tesystur i Danmark!
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Félag kvenna í atvinnurekstri Allar konur standa saman
- Nýsköpunarmiðstöð Íslands Endalaus spennandi námskeið fyrir okkur
- Líkami, hugur og Sál Frábær staður til að byggja sig upp.
- Rósa Traustadóttir Æðislega jógastöð á Selfossi
- Sumarhús í fyrsta flokki Einstaklega fallegur staður undir fjallinu Búrfelli.
- Flottasti ferðamannastaður á Íslandi Alltaf gott að koma að Geysi
- Selfoss, Eyrarbakki, Stokkseyri og Sandvíkurhreppur My hometown:-)
- Húsið á Eyrarbakka og Byggðasafn Árnesinga Eitt skemmtilegasta safn á Íslandi
- Safnaklasi á Suðurlandi ÞAð er alltaf eitthvað að gerast á Suðurlandi
- Menningarráð Suðurlands Alltaf eitthvað gott starf í gangi
- Veitingastaður á Eyrarbakka Rómantískur staður og maturinn klikkar aldrei!
- Endalaus fróðleikur ein flottasta heimasíða sem ég hef séð!
- Listakonan Þórdís Frábærar myndir
- Fyrsti verslunarstaður Íslendinga Skemmtilegasta þorp á Íslandi
- Gallerí Gónhóll á Eyrarbakka Gisting, karkaðir, ráðstefnusalir og fleira
- Lista og tungumálamiðstöð fyrir börn og unglinga Spennandi námskeið fyrir alla krakka!
Myndaalbúm
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 388787
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ef döpur þú verður á þungbúnum vetri
Valíum lyftir upp sálartetri
Jólaskraut gleður
Nei, því ver og meður
Apótek íslensk eru þá betri
Magnús Vignir Árnason, 18.10.2007 kl. 23:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.