Enn af hinu íslenska gulrótarfélagi

gulrótElskulegu dömur,

Það er svo gaman að heyra hvað okkur gengur vel að borða hreint íslenskt grænmeti þessa dagana meðan hausthreinsun stendur yfir. Ein hringdi í morgun og var frekar montin með sig...enda ekki skrýtið! Hún fór út að borða með nokkrum dömum og þær fengu humarsúpu, fyllta kjúklingabringu og ....OMG!!!Það sem við dömur deyjum fyrir svona undir normal kringumstæðum...jú! Heita súkkulaðiköku! Girls!!!Og hún stóðst þetta allt og hélt sig við huggulegt salat með tilbehör....bakaða kartöflu og svona eitthvað voða lekkert og lítið og drakk með þessu auðvitað íslenskt vatn...ekkert gin eða kampavín þessa dagana!

gulræturJá og annað sem við viljum láta ykkur vita af. Nú eru bændur orðnir svo skynsamir að merkja sér afurðir sínar og við fundum í Kaupfélaginu...altsvo Nóatúni svona á nýmóðins máli...en það var og heitir Kaupfjélagið, já við förum ekki ofan af því...bíðum við hvað var ég að segja... já merking bændanna...hlýtur að vera dama þarna í Fljótshólum því pokinn sem við keyptum frá þeim er hreinasta sælgæti....eiginlega eins og þegar dama var lítil stúlka og stal sér gulrót í garðinum hjá Dúu nágranna og þurrkaði moldina bara af í skálmina...nei það hlýtur að hafa verið silkivasaklútur....en a.m.k. þetta eru frábærar gulrætur og kaupið ukkur endilega poka og hafið við hendina. Munið að vera aldrei svangar svo þið fáið hvorki stíflu né steinsmugu.

grænmetiEitt enn sem er bara snilld! Nú þegar við höfum aðeins meiri tíma er gott að skera niður grænmeti í svona grunn og geyma í stórri skál í ísskápnum og taka svo til í minni passlegar dömuskálar og breyta til. Í morgun fékk ég mér t.d. grunnsalat og bætti útá lífrænu tómatmauki...algjörlega sykurlausu ofkors...stráði svo smá kókosmjöli og valhnetum yfir...algjört nammi! Ótrúlegt eins og mér þóttu gúrkur vondar, hvað þær eru góðar með kókosmjöli! Ég hef alltaf pínt þær í mig afþví ég vissi hvað þær væru hollar en nú þykja mér þær bara góðar! Eða svona næstum því!

Svo í hádeginu var það sami grunnur en þá kryddaði ég með indversku kryddi frá Alvörubúðinni hennar Öldu okkar og stráði yfir fræjum og kasjúwhnetum...ótrúlega gott sko! Núna er ég með svona skál á borðinu með alls konar grænu og gómsætu til að nasla í. grænmeti2Um að gera að nota hugmyndaflugið og leyfa listamanninum í ykkur að sleppa sér algjörlega!

Svo í kvöld er snilld að nota eitthvað af góðu uppskriftunum hennar Sollu, nú eða bara taka til í ískápnum og skella öllu í ofninn með góð kryddi og kókosolíu..það verður alveg ómótstæðilegt! Meira að segja börnin elska orðið að borða hollustuna því hún ilmar svo vel!

Já, það er gaman að lifa og njóta grænmetisframleiðslu íslensku þjóðarinnar....svo fer nú að styttast í að við njótum ávaxtanna!

Munið að hafa það gott og dekra við ykkur elskurnar...stráið hamingjunni allt í kringum ykkur því eins og Paul vinur okkar í Ástralíu sagði:

Happiness is like a perfume...you can´t spill a drop without getting some on yourself!

lovjú

a


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband