Að leiðast eða leiðast ekki!

leiðistVið vorum að tala um það dömurnar um daginn að þegar veðrið er svona þungbúið og lægðirnar skella á okkur hver á fætur á annarri..þá fyrst þurfum við á öllum okkar klækjum og kleverheitum að halda. Í alvöru görls....hugsið ykkur hvað það er í alvöru notalegt að það er laugardagur á morgun og þá birtir seint svo við getum verið í silkinu fram yfir hádegi...það er ótrúlega margt sem hægt er að gera til að lyfta andanum upp yfir hversdagsleikann. Til dæmis að fara seint á fætur, laumast þá fram og fá sér eitthvað gott...gufusoðnar gulrætur eða ristað brauð með sultu og sherrytár...allt eftir því í hvernig stemmingu dama er þann daginn. Lesa svo blöðin letilega og ofurhægt...skríða aftur uppí rúm og bera nuddolíu á karlinn...sem væntanlega er hálfniðurdreginn líka...honum leiðsit líkaen það eru ýmis góð ráð til að ná þeim upp strákunum ef þyngslin þjaka þá! Þið getið prófað þetta með nuddolíuna, nú eða að færa þeim í rúmið súkkulaðihúðuð jarðaber og kampavín...eða eplasafa ef þið eruð með herra sem ekki smakkaða....þá má líka alltaf segja þeim brandara eða syngja eitthvað fallegt. Eitthvað af þessu dugar pottþétt elskurnar , ég legg minn damistuheiður að veði, hef prófað þetta alltsaman með góðum árangri. Já og svo er hægt að fara í heitt bað og liggja lengi í ilmolíum og alls konar Feng Shui...lesa góða bók eða kveikja á kertum og hlusta á góða tónlist. Nú er einmitt tíminn til að lesa eitthvað af öllum þessum góðu og uppbyggilegu bókum sem flæða inná markaðinn. Mátturinn í núinu....Ný jörð...Secret og svo hina frábæru sem við í leshópnum erum að skanna og lifa eftir ....Lífsreglurnar 4

Svo er líka gott að bjóða heim fólki og spila selskapsvist fram eftir kvöldi og spjalla feitt við góða vini. Fátt er nú betra og uppbyggilegra en það. Já elskulegu dömur...gerum gott úr hlutunum...hverjir sem þeir eru eða eru ekki. Munum það sem Abraham vinur okkar Lincon í Ameríku sagði: ,,Flestir eru eins ánægðir og þeir ákveða að vera." Þetta er okkar mottó...og eins það sem John Lennon sagði: Life is what happends while your busy making other plans....

Lifum og njótum hvers einasta mola...þeir eru allir í mismunandi bréfum og sumir allsberir...en við erum ekki matvandar dömur og okkur þykir allt gott og skemmtilegt!

Þabara þannig

skammdegisknús

a


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband