Snúðu andliti þínu í birtuna og þú munt aldrei sjá myrkrið!

Skemmtileg hugleiðing um viðhorf! Þetta er eins og það að sumir eru með hálfullt glas en aðrir hálftómt glas. Flestir eru eins ánægðir og þeir ásetja sér að vera sagði Abraham Lincoln og hann var mikið gáfumenni blessaður.

Er að æfa mjög skemmtilega hugleiðsluaðferð núna. Hún er svo einföld og hana er hægt að iðka alls staðar. Tilgangurinn er að vera vakandi í núinu og vita hvað við erum að gera. Einbeita okkur að einu í einu. Ef barnið þitt er að tala við þig þá áttu að slökkva á huganum og einbeita þér að því að hlusta með fullri meðvitund...alltaf þegar einhver er að tala, gefa þig alla í að hlusta. Stundum þegar hugurinn fer á fullt og okkur er næstum ógerlegt að festa hugann við nokkurn skapaðan hlut. Hugurinn snýst í hringi, veltir ótal hlutum fyrir sér en getur ekki fest sig við neitt og alls konar rugl sprettur upp. Þá þurfum við að taka í tauminn...létt eins og á óstýrilátu hrossi og beina huganum inná rétta braut. Aga hugann smátt og smátt því frjáls er sú kona sem getur stjórnað hugsunum sínum...

en aftur að hugleiðslunni. Við getum gert þetta í bílnum, úti að ganga, synda, hvar sem er...Ég segi við sjálfa mig: Ég anda inn og ég finn lungu mín fyllast lofti. Ég anda út og tæmi...nokkrum sinnum. Svo næsta getur verið....Ég anda inn gleði ...Ég anda út kærleika....og svo á að brosa þegar andað er frá. Ég anda inn, djúpt- ég anda út hægt....

Þegar við erum úti að ganga eigum við að anda inn og finna hvernig iljarnar snerta jörðina, anda út og þakka jörðinni fyrir allar gjafirnar sem hún hefur fært okkur. Í hvert skipti sem við gerum þetta finnum við hvernig iljarnar verða næmari og við tengjumst jörðinni. Svo myndum við kúlu með höndunum og segjum: Ég anda inn og bið fyrir jörðinni okkar, Ég anda út og bið þess að við lærum að vernda jörðina okkar.... Hugleiðsla er eitthvað sem hægt er að gera hvenær sem er, hvar sem er ...1 mínútu eða 10...skiptir ekki máli...muna að brosa og láta ´ser líða vel!

Ótrúlega skemmtilegt!

Prófið endilega elskulegu dömur,

hugleiðsluknús

a


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Inga Dagný Eydal

Á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði er einmitt lögð stund á þessa hugmyndafræði og heitir þar "Gjörhygli" sem er þýðing á enska orðinu "awareness". T.d. hefur þetta reynst vel fyrir þá sem berjast við króníska verki.  Mjög athyglisverðar kenningar.

Kveðjur yfir ána

Inga Dagný Eydal, 18.9.2007 kl. 20:15

2 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Oh Anna það er alltaf svo gott að lesa bloggið þitt, svo uppörvandi og notalegt  En þetta er svo satt með að reyna að tæma hugann þegar t.d barnið manns er að tala við mann, hversu oft er maður ekki bara að segja: já eða ok eða umhum en er allt annars staðar með hugann

knús  Sædís

Sædís Ósk Harðardóttir, 18.9.2007 kl. 22:42

3 Smámynd: Anna S. Árnadóttir

Takk fyrir þetta elskurnar. Það er svo gott og gaman að rækta sjálfan sig. Það væri gott að komast á námskeið í Gjörhygli! Er þetta fyrir almenning....

knús

Anna

Anna S. Árnadóttir, 18.9.2007 kl. 23:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband