Kelloverslunin í Kringlunni er dömuleg verslun

já, elskulegu dömur. Það er nú ekkert annað en það að hún Halla eðaldama tók einstaklega vel á móti okkur með laxi og hvítvíni. Við deyptum örlítið á sjérrítári í rútunni á leiðinni yfir heiðina. Bílstjórinn var ung og fögur kona úr vesturbænum og stýrði langferðabifreiðinni styrkri hendi, meðan við hinar supum úr kristalsglösunum hennar Drífu....ekkert nema Croft,- auðvitað. Það hentar dömum svo vel!Inntaka Höllu í teklúbbinn 29.maí 2007 032

Já, svo þegar við komum til hennar þá fengum við aðeins í staupinu og skoðuðum svo agalega lekker dress alls konar , auðvitað frá Danmörku! Við erum svo mikið fyrir allt danskt! Við verlsuðum svo svona aðeins...já, dama á aldrei of mikið af lekkerum dressum!

Við vorum nú sammála um að þetta hefði verið mjög skemmtileg ferð. Það á svo vel við okkur að skoða sæta kjóla og síðar peysur...að ekki sé talað um blússur, jakka og skyrtur..og svo allt þetta dásamlega bling sem fæst nú til dags! Ja, það er gaman að vera dama með dömum!

Já, svo erum við farnar af stað í jóganu hjá Rósu. Það er svo margt gott sem gerist á haustin...allt fer af stað...tískuvörur í búðirnar, jógatímar, kerti á kvöldin og heitt súkkulaði, góðar bækur, þykkar sængur...haustlitaferð á Þingvelli! Vá..það eru svo fallegir litirnir á Þingvöllum núna! Það er algjört möst að fara á Þingvöll elskurnar!

Höldum svo áfram að lesa og æfa okkur á hverjum degi í að njóta lífsins og vera vakandi!

knús

a


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband