Frekar dey ég en að vera ósmart....

InLoveElskulegu dömur, þetta er svo góður frasi! Ég var nú að hugsa þetta í morgun þegar ég klæddi mig í slyddugallann...verulega ósmart!Það var bara ekki um neitt annað að ræða en að fara aftur inn og fara í pils og blússu, setja upp hárið og fara í þykkar sokkabuxur, jú auðvitað bleikar blúndur og svona eitthvað soldið lekkert varð það að vera því ég þurfti að fara í kaupfélagið og kaupa inn. Fór með körfuna og keypti alls konar hollustu í kálsúpuuppskrift sem vinkona mín sendi mér frá Danmörku. Gasalega góð súpa fyrir mittismálið víst... nú verður gaman að prófa hana og sjá til hvernig þetta virkar og máta svo nýja bikiníið bleika. Verst að það skuli ekki vera leyfilegt að vera á hælum í sundlauginni... bara að sumarið fari nú að koma!

Við Kata vinkona erum byrjaðar að æfa okkur fyrir göngur sumarsins. Fyrst förum við í Kerlingarfjöllin, vonandi eru þetta soldið dömuleg fjöll og ekki mjög erfið yfirferðar. Við förum svo með Ferðafélagi Íslands í kvennaferð. Það er ekta dömuferð með trúss og alls konar svo við getum fengið okkur aðeins í staupinu á kvöldin. Voða lekkert að vera með ferðabar og kristalstaup í svoleiðis ferðum. Við ætlum að ganga Laugaveginn með nokkrum eðaldömum. ÞAð verður sól og huggulegt, ég finn það á mér! Það eru næstum 20 ár síðan ég fór síðast svo það er víst betra að fara sér hægt. Þá vorum við með allt á bakinu en núna erum við með prívatbíl sem fylgir okkur eftir svo þetta verður allt annað og miklu smartara. Enda eins gott því við verðum að vera smart í tauinu á svona göngum um hina íslensku náttúru okkar sem er svo lekker og lagleg.

Heyrumst fljótt elskurnar

óbyggðaknús

a


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Inga Dagný Eydal

Í einhverju dagblaðanna í dag voru einmitt ráð til þess að vera svolítið lekker í útilegum. Eitt var að vera með hárið í fléttum, svona rómantísk náttúrugreiðsla sem felur feitt hár og annan ósóma. Nú Heiðar flugþjónninn okkar allra var með gott ráð sem fólst í því að vera í dásamlega lekkeri samfellu undir útilegu eða útreiðagallanum og sýna hana bara útvöldum á sérstökum stundum! Svo er náttúrulega besta ráðið sem er að muna að hin mesta fegurð kemur að innan og skín í gegnum fas og framkomu.....það er lekkert skal ég segja ykkur!!

Rigningarknús frá Jaðri. 

Inga Dagný Eydal, 6.6.2007 kl. 15:17

2 Smámynd: Anna S. Árnadóttir

Sæl elskulega dama á Jaðri.

Kærar þakkir fyrir þessu góðu ráð. Virkilega lekker og náttúruleg ráð. Líst vel á að við verðum í korsiletti með fléttur í öllum útilegum í sumar....ef það kemur sumar! Ég er að fara í gönguferðina með Ferðafélagi Íslands 15.ágúst um Laugaveginn. Það er lúxusferð fyrir dömur svo það er náttúrulega rétti staðurinn til að sýna korsilettið og flétturnar...kemur þú ekki með?

Hlakka til að sjá þig sem fyrst

korsilettuknús

a

Anna S. Árnadóttir, 6.6.2007 kl. 23:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband