Lautarferð í Þrastarskóg

WhistlingÞað hefur blásið duglega hér á okkur sunnlenskar dömur í dag. Ég barðist við að hengja út á snúru en gafst upp og ákvað að fara í lautarferð með barnabörnin. Við mæðgurnar fórum með nesti í körfu og teppi í skóginn græna. Þar var indælt, logn og blíða sumarsól, fuglar kvökuðu á grein og við gengum um fallega stíga og tíndum nokkra köngla til að eiga í lekkerar skreytingar síðar meir! Já það er alltaf gott að eiga svona sætt náttúrudót til skreytinga, hvort heldur er um jól eða í annan tíma.

Við komum svo heim um kvöldmatarleitið og skelltum upp soðningu, ljómandi góðir og skjannahvítir þorskbitar úr Bónus og gufufsoðnar gulrætur. Börning vilja fá stappað með smjöri, -amma gerðu löggustöð með tómatsósu!Allt látið eftir þeim enda eru þau náttúrulega fullkomin Guðsgjöf þessar elskur.

Já þið heyrið að mín er komin í hollustugírinn á ný. Fór í Heilsubúðina í dag og keypti eplaedik, Spirulinadrykkinn góða og þennan dásamlega ACidophilus sem hún Eygló í Lifandi Húsi benti mér á. Þvílíkur léttir að taka þetta inn! Ég er bara svo létt á mér og ljúf í lund!

 Nú svo skokkaði ég í skóginum með börnunum og nú erum við Kata mín búnar að ákveða að fara að ganga úti og undirbúa okkur undir gönguferðir sumarsins. Við förum náttúrulega í okkar árvissu Abbalabbaferð og nú er nefndin búin að skipileggja ferð í Kerlingarfjöllin. Svo er kvennaferð 15.ágúst með Ferðafélagi Íslands um LAugaveginn, Lúxuskonuferð....Endilega skráið ykkur með! Það er enn laust fyrir nokkrar dömur...

Nú er ég að fara að horfa á æðislega dömulega mynd sem dóttir mín lánaði mér og heitir The Holiday. Heyrumst á morgun elskurnar.

Lifum og leyfum öðrum að lifa!

Lautarknús

a


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heil og sæl kæra dama, alltaf jafn gaman að kíkja hér við. Ég er einmitt búin að horfa á The Holiday og  fannst hún voða skemmtileg, ekta svona dömumynd herrarnir á heimilinu höfðu lítinn áhuga og ekki spillti Jude Law fyrir oh my gooooood bara huggulegur.... Sumarkveðjur úr Edinborginni. KK

Kristjana (IP-tala skráð) 1.6.2007 kl. 18:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband