Enn af Jótlandi hinu góða

Mæðgurnar á 4Hún er ansi hreint röggsöm hún nágrannakona mín. Hún kom og dreif okkur öll í messu í morgun í Babtistakirkjunni hér í Brande. Okkur hefur lengi langað að skoða þessa merkilegu kirkju sem er hin óvenjulegasta sem ég hef séð. Hún var byggð í sjálfboðavinnu og allt efni í hana er endurnýtt. Gamlir múrsteinar og trjálurkar, risastór kross hangir utan á henni í sverri keðju. Kirkjubekkirnir eru úr trjábolum og stór gluggi gerður í risastóru holræsaröri, frekar flott!

Við hlýddum á Hvítasunnumessu á dönsku, þar sem inntakið var náungakærleikurinn og hversu mikilvægt það væri að muna að Guð býr í hverju okkar og við eigum því alltaf að láta okkur þykja vænt um hvert annað og reyna að gera öllum gott. Hugsa fallega um náungann og forðast slúður og ljótar hugsanir sem auðvitað koma alltaf verst við okkur sjálf. Svo var sungið mikið og ungt fólk kom fram og talaði. Þetta var afskaplega skemmtilegt og við lærðum heilmikið.

Nú er farið að síga á seinni hlutann á þessari Danmerkurdvöl okkar með foreldra og tengdaforeldra. Alveg hefur þetta verið yndislegur tími. Við erum búin að gera alveg ósköp í húsinu og garðinum. Ráða moldvörpubanann mikla Elvin sem kemur í næstu viku. Moldvörpur eru alveg hræðileg plága hér og skemma alveg ósköp. Gott að við höfum þær ekki heima á Fróni.

Bryndís okkar kom með börnin sín tvö frá Árósum í gær. Við vorum mikið ánægð að fá hana þessa elsku. Ég verð nú að segja að hún er orðin gasalega lekker dama og hefur forframast afar mikið her ude i Danmark! Hún var með svo lekkert lakk og er virkilega að undirbúa sig undir að komast inn í dömuklúbbinn og njóta lífsins lystisemda! Við dömurnar vitum nú hvað það þýðir!

En ég er hrædd um að ég verði nú að hitta á hana Hildi mína þegar ég kem heim. Hún lánaði mér svo yndislega bók um gyðjuna okkar hér á Jótlandi, Thyru drottningu Gorms hins gamla. Sú var nú ekkert blávatn! Hún átti með Gormi sínum tvo syni, Knud og Harald blátönn sem kristnaði alla Danmörku og Noreg. Þau hjónin eru heygð hér í Jelling og ég fór og vitjaði þeirra. Sagan segir að þau Gormur og Thyra hafi deilt um það hvort væri betra að vera heiðinn eins og hann eða kristin eins og hún. Thyra sagði að það mundi verða ljóst eftir þeirra dag. Hvað kemur svo á daginn...ofan á hennar gröf eða haug, spratt upp helg laug þar sem margir hafa leitað sér lækninga. Já ég held að við dömurnar förum til Jelling í Pílagrímsferð og hyllum Thyru okkar.

Nóg um þetta í bili.

Við leggjum í hann á morgun, keyrum til Köben og fljúgum svo til Íslands. Þá verða teknir upp enn frekari dömusiðir og fram bornir ykkur og okkur til heilla elskulegu dömur!

 

Smáviska úr bókinni góður frá Lúndúnadömunni:Cool

Vertu í mómentinu elskulega lekkera dama

Heimspeki  búddista segir m.a. að ef við einbeitum okkur að augnablikinu, að því sem er að gerast hér og nú er næsta víst ef ekki alveg 100 % sikkert ,-að við tökum hlutunum eins og þeir gerast af æðruleysi og umburðarlyndi. Þar með hættum við að hafa áhyggjur af ókomnum hlutum eða velta okkur uppúr því sem var og við hefðum átt að gera eða segja öðruvísi...

Verum í mómentinu og afeitrum okkur af ahyggjum til frambúðar!

Góður punktur elskurnar

knús og kram fra Jylland , det herlige!

a


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gaman að heyra um ferðina og dvölina ykkar í hamingjuhúsinu á Jótlandi. Óska ykkur góðrar heimferðar. Kanadaknús héðan, þar sem við erum nú stödd.

Hittumst aftur hress og kát á Fjóni í júníbyrjun.

Esther Óskarsdóttir (IP-tala skráð) 29.5.2007 kl. 16:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband