Det er saa dejligt i Denmark

Elskulegu lekkeru dömurnar mínar,

oog alltaf skín sólin Nú erum við í Danmörku. Úti á Jótlandi í sól og sumaryl í litla sæta gula og dömulega sveitabænum okkar með stráþakinu. Það er svo yndislegt að vera hér. Það er ótrúlega margt sem dama getur lært af dönunum. Þeir eru svo mikið í núinu, allir alltaf að njóta augnabliksins! Það er svo mikilvægt. Ég áttaði mig á því þegar ég fór að vera hér að ég er bara þó nokkuð stressuð og er svo oft að drífa mig eitthvert... en ég er að laga þetta! Ég er að venja mig á að vera á staðnum og njóta þess að tala við fólk og hlusta. Ekki bara að hugsa um allt sem ég á eftir að gera. Ég vanda mig á hverjum degi við að lifa lífinu með fullri meðvitund og njóta þess. Nú veit ég hvað ég vil og hvert ég stefni en flýt ekki með hugsunarlaust.

Við erum hér með foreldra okkar. Það er svo gaman og þau eru svo ánægð öllsömul. Í dag setti tengdapabbi upp fyrir mig snúrustaura svo ég get þvegið og hengt út í fyrramálið. Það er ekkert sem jafnast á við útiþurrkaðan þvott. Hugsa sér hvað það er dömulegt að lauga sig og bera á sig gott krem og skríða svo uppí tandurhreint og ilmandi rúm! Umm það er svo mikill lúxus og dama sefur eitthvað svo vel og dreymir svo fallega.

Ég fór svo með foreldra mína og tengdamömmu í bæinn og við fengum okkur öl og smörrebröd í sólinni. Síðan fórum við og keyptum okkur matjurtir, kryddjurtir og appelsínutré, já og ólívutré líka. Auk þess keyptum við pelagóníur, rauðar og hvítar í alla pottana og mamma gróðursetti þetta allt með sínum grænu puttum. Hún gaf mér líka rósir sem við ætlum að gróðursetja á morgun. Þetta er svo skemmtilegt. Gúndi minn eldaði svo pörusteik og brúnaði kartöflur og við höfðum það virkilega huggulegt í kvöld.

Á morgun ætlum við að keyra út á Hvide Sand sem er vesturströndin hér. Það spáir rjómablíðu á morgun svo við eigum góðan dag framundan eins og vant er. Það er dásamlegt!

Vinkona mín í London gaf mér svo skemmtilega litla bók til að hafa í veskinu,- alltaf og lesa í henni í hvert skipti sem mig vantar andlega upplyftingu. Ég ætla að deila með ykkur vísdómnum úr henni á hverjum degi. Ég opna hana og skrifa til ykkar...nú kemur:

Vatn, vatn, vatnWizard

Drekkum 1 og 1/2 lítra af vatni daglega. Það gefur okkur rétt rakastig í húðina, endurnýjar og hreinsar hana, hreinsar allt systemið og örvar okkur til dáða.

Haldið áfram að vera fallegar og dömulegar elskulegu dömur og munið að njóta þess í botn!

Við eigum allt það besta skilið

jyllands knus og kram

a

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ohhh hvað ég öfu... eeh.. samgleðst ykkur að vera í hlýjunni í Dk.  Þetta hljómar allt svo vel að yndislegheitin eru næstum því áþreifanleg.  Njótið vel, sjáumst vonandi fljótlega.

Kveðja frá Arnrúnu dömu

Arnrún (IP-tala skráð) 22.5.2007 kl. 16:57

2 Smámynd: Anna S. Árnadóttir

Takk elsku Arnrún mín

Vildi að þú værir hér með bumbuna þína með okkur

Hlakka til að hitta þig sem fyrst

þín

Anna

Anna S. Árnadóttir, 24.5.2007 kl. 19:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband