Stjórnin fallin?

Elskulegu dömur!

Fall skiptir ekki eins miklu máli og hitt að geta staðið upp aftur.

Hvernig fer þetta allt saman? Nú er klukkan að ganga tvö og við hjónakornin sitjum hér og fylgjumst spennt með...eða réttara sagt hann þessi elska og svo segir hann  mér hvernig staðan er og ég kinka létt kolli. Ég held þetta fari allt vel. Þetta er ekki svo nauið, ha! Þetta er allt ágætis fólk held ég, mesta furða að fólk nenni að standa í þessu.

Við systurnar áttum góðan dag. Ég tók drossíuna út og var á rúntinum í dag. Fyrst fórum við á Stofuna og systir mín lagaði dúið þannig að mín yngdist um ein 10 ár á tveimur tímum. Hún er búin að var á námskeiði þessi elska og lærði þvílíkt köt sko, vá hvað hún er flink!

Við fórum svo á allar kosnigaskrifstofurnar og var alls staðar vel tekið á móti okkur. Það er sem ég segi, mikið indælisfólk í þessum framboðum. Við ókum um allt og tókum aukahring í hverju hringtorgi. Ég ók öllum helstu stuðningmönnum mínum á kjörstað og alls staðar vakti DeSoto Sportsman mikla athygli, hann er svo flottur þessi elska.

Fór svo með 5 farþega í partý á Stokkseyri í hús sem er jafngamalt DeSoto...skemmtileg tilviljun!

Þetta var bara skemmtilegt allt saman. Við borðuðum náttúrulega allt mjög óhollt í dag, brauð og kökur og súkkulaðirúsínur, hvað þá heldur annað! Held það verði brauð og vatn á morgun...

Flýg til London með fjögur vélinni á morgun og síðan til Bratislava á mánudagsmorgun. Þar er vinna framundan en svo verð ég í London á miðvikudag og kem þaðan heim á miðvikudagskvöld. Reyni þá að sjoppa eitthvað dömulegt í London en verð í bandi elskulegu dömur .

Vona að þið séuð ekki leiðar yfir kosningunum. Þetta lagast strax á morgun og við getum þá farið að snúa okkur að dömulegri iðju.

Berið vel á ykkur og verið mjúkar

kremjuknús

a


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er svo dömulegt blogg hjá þér Anna, ég hef bara aldrei séð það svona dömulegt og yndislegt.  Hvað kosningarnar varðar þá er nú varla hægt að mynda sér skoðun um úrslitin, þetta er þvílík patt-staða.  Eina sem ég bara vona er að komandi ríkisstjórn hafi meiri virðingu en svo fyrir landinu og landanum að vera ekki að hrúga niður álverum og olíuhreinsunarstöðvum út um alla trissur, ég held að landsbyggðin og börnin okkar eigi mun betur skilið. 

Arnrún (IP-tala skráð) 14.5.2007 kl. 16:50

2 Smámynd: Anna S. Árnadóttir

Æ, takk elskulega dama.

Ég er svo hjartanlega sammála þér og vona að þetta verði gott og dömurnar verði röskar í ríkisstjórninni. Við eigum nú nokkrar virkilega lekkerar á þinginu og aðrar á leiðinni inn. Synd með hana Sif, hún sem var komin með svo dömulega klippingu!

knús til þín og bumbu litlu

a

Anna S. Árnadóttir, 17.5.2007 kl. 23:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband