Góðan dag elskulegu dömur

Við hér í  Suðurlandsdeildinni byrjuðum daginn vel á Rope Jóga í Lifandi húsi hjá henni Eygló, þeirri elskulegu og gefandi stúlku. Fórum svo brosandi út í daginn og hlökkuðum til að eiga þennan góða dag.

Sótti grænmetið mitt og ávextina lífrænu á Olís og borðaði peru og drakk te. Eygló segir að dömur sem vilji auka mittismálið eigi að borða kolvetnin á kvöldin. Það er nema auðvitað grænmetið sem má borða alltaf, ótt og títt og mikið..

Semsagt að borða epli, perur, plómur og frosin ber nema vínber á morgnana, holla fitu, hnetur og fræ eða avocado, fisk, AB mjólk og grænmeti fyrir 16.00 og svo kornmeti, hafragraut, hrísgrjón, brauð, aðra ávexti...eftir kl. 16.00 og svo helst ekkert efir kl.20.00 Nú prófum við þetta, ég veit af eigin reynslu að Eygló er snjöll og hún er líka lærð í næringarþerapíu og allt. Meira segja frá Danmörku sem er sko gott land þar sem lífrænar vörur eru ódýari en venjulegar og þeim er alltaf stillt fremst!!!Lærum af þeim!

Nú erum við að ljúka skráningu í dömuferðirnar. Enn er þó eitthvað laust í fyrstu ferðina 25.ágúst eða ég held það. Hafið endilega samband. Þegar við höfum fyllt hópana þurfum við að hittast og ákveða hvað við viljum gera þessa daga, bóka okkur og ákveða hve lengi við ætlum að vera hver fyrir sig og allar fyrir allar

knús í bili

a


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband