Rjómapönnukakan hálfa

CryingLenti aldeilis áðí...fór á fund með miklum kræsingum...byrjaði vel, fékk mér jurtate en svo kom maður, ágætis maður sko og bauð mér rjómapönnuköku. Þessi maður þekkir ekki mig og samband mitt við pönnukökur, það er alveg kristaltært. Ég er alin upp við dásamlegan pönnukökuilm sem lagðist yfir heimilið, mjög reglulega og þá var sama hvort það var hjá mömmu eða ömmu, við systkinin átum jafnóðum og bakað var og aldrei höfðu þær undan sama hvað voru margar pönnur í gangi. Nú ég fékk mér semsagt eina pönnuköku og byrjaði að borða ...afar hægt og rólega og það var alveg ágætt en samt ekkert alveg sérstakt. Getur verið að pönnukökufíknin sé dauð? Hefur hún kannski skolast út með candita sveppnum? Ég hætti meira segja eftir að hafa aðeins nartað í pönnukökuna og fann strax að ég var svolítið uppþembd og bara strax vembd og leið ekki vel. Nú líst mér á það dömur mínar...fór svo heim og eldaði ljómandi góðan grænmetisrétt og fannst hann vera betri en pönnukökur.

Þetta er alveg ótrúlegt..nú er það spurning um það sem næst er á eftir rjómapönnukökum...ís í brauðformi! Og hvað með allt súkkulaðið? Ég er nú ekki farin að borða það ennþá en við hittumst í gær og ákváðum að skipuleggja pílagrímsferð til Brugge í Belgíu fyrir konur sem elska súkkulaði. Brugge er yndilegur lítill bær sem er heimsþekktur fyrir súkkulaði og súkkulaðiilmurinn liggur í loftinu þarna. Eldgömul lítil og sæt hús, sum skökk og skæld en öll svo krúttuleg og alls staðar eru súkkulaðibúðir.

Já við ákváðum semsagt að undirbúa okkur með því að hittast reglulega og vinna upp súkkulaðiþolið. Borða bara ekta súkkulaði eins og er svo gott og lífrænt úr heilsubúðinni, horfa á Chocolate í ullarsokkum, allar í einum bing og borða súkkulaði og drekka það og svo er hægt að fá það í kremi líka sem er borið á magann og býr til sixpakk! Þetta er satt, það sem snyrtivöruframleiðendur láta sér detta í hug er náttúrulega alveg óborganlegt elskulegu dömur mínar,- látum samt glepjast, það er svo gaman...

Jæja, annars gengur allt vel. Grænmeti er enn aðaluppistaðan á matseðlinum en eitt og annað hollt og lífrænt slæðist inn. Á morgun ætla ég að hafa epli í morgunmat. Þá sker ég þau í báta og legg á disk, dassa yfir lífrænum kanil og slettu af fræjum, laga mér svo gott te og drekk með þessu. Afar huggulegt og dömulegt. Í hádeginu fæ ég mér svo salat, bara alls konar með smá túnfiski og fetaosti, sólþurrkuðum tómötum og ólífum. Um miðjan daginn fæ ég mér te og hrökkbrauð með hnetusmjöri, kotasælu og tómötum...en ég veit ekki með kvöldmatinn. Ég verð í Reykjavík svo sennilega vel ég mér einhvern dýrlegan grænmetisrétt á einhverju góðu veitingahúsi þarna fyrir sunnan, þau eru svo mörg og spennandi.

Hér kemur smáspeki inní daginn ykkar elskulegu fallegu konur:

Munið að vera góðar og elskulegar við alla sem þið mætið í dag en allra bestar við ykkur sjálfar. Munið að þið eruð yndislegar og fallegar dömur og þótt gott sé að bíða átekta er betra að reyna á sig...sem þýðir ?Við látum allt þetta góða byrja hjá okkur. Ef við viljum breyta einhverju þá hugsum við aðeins um það hvað við getum gert til að breyta þessu en bíðum ekki og ætlumst til að einhver komi og breyti þessu fyrir okkur. Við getum allt sem við viljum...stundum vitum við bara ekki alveg hvað við viljum en við erum að vinna í því!

klessuknús

a


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband