Þarft þú andlitslyftingu? Brostu þá , það er ódýrt og öruggt, engar aukaverkanir!

Elskulegu lekkeru dömuskinnin mín.

Í dag var fyrsti dagurinn hjá okkur eftir hreinsun og við héldum virkilega uppá daginn. Fórum í bæinn og borðuðum kræsingar á veitngastofunni Maður lifandi. Réttur dagsins var gómsætt grænmeti , kjúklingabaunir og hýðishrísgrjón...umm þvílíkt jammi namm! Pössuðum okkur að borða hægt og fórum varlega í þetta allt saman. Svo fórum við og versluðum okkur nokkur litrík dress í litlum númerum...góðan bursta til að skrúbba húðina og lífræn krem og olíur á kroppinn okkar heilbrigða og ánægða. Allt voru þetta verðlaun fyrir hálfan mánuð á hreinu fæði en við erum ekki hættar, ónei...

Eftir mikið rölt í búðirnar í Smáralindinni ákváðum við að skreppa á kaffihús og fá okkur eitthvað gott. Energía varð fyrir valinu og þar fengum við nýpressaðan gulrótarsafa..þvílíkt og annað eins hnossgæti! Mælum með þessu, þetta er miklu betra svona hreint og nýpressað heldur en á flöskunum, það er ekki spurning.

Á leiðinni heim komum við við í Krónunni og keyptum þessa dásamlegu skyndirétti sem hægt er að fá núna frá Móður Náttúru. Ótrúlega gott ef dama er að flýta sér og hefur ekki mikinn tíma eftir búðarstússið. Kíkið endilega á uppskriftir frá þeim á : www.modirnattura.is

Í kvöld hittumst við svo nokkrar og drukkum te. Þetta fína flotta te sem fæst í Maður Lifandi og líka Bakarameistaranum á Smáratorgi og heitir Zhena´s Gypsy Tea og er lífrænt ræktað. Kemur í voða lekkerum og dömulegum baukum sem má svo kaupa áfyllingar í.

Nema hvað við tókum fram hunangið og nudduðum því vel og vandlega framan í okkur. Biðum góða stund og settum gúrkurnar á auglokin. Notuðum þær svo til að nudda saman við hunangið og biðum enn aðra góða stund. Þvoðum okkur svo úr köldu vatni a la Loren...og bárum svo á okkur möndlukremið góða frá Weleda í andlitið og handáburðinn góða frá þeim með appelsínulyktinni. Aumingja maðurinn minn, síðast þegar ég gerði þetta brá honum roslega þegar hann vaknaði við hliðina á mér og hélt að hann væri búinn að yngja upp..ætli hann haldi ekki að hann hafi villst inná fermingarbarnamót þegar hann vaknar í fyrramálið þessi elska!

Jæja elskulegu dömur. Höldum nú okkar striki svo við söfnum ekki spiki eða öðrum óþarfa að okkur.

Á morgun er gott að fá sér sítrónuvatn með ceyennepipar á fastandi maga. Síðan svona hálftíma síðar er gott að drekka eitt glas af himneskum Spirulinasafa. Þessi safi frá Voelkel, Gron Spirulina Drik er það besta sem ég hef smakkað á ævinni, í alvöru þið verðið bara að muna að hrista aðeins flöskuna. Ég er búin að eiga svona flösku í ísskápnum þennan hálfa mánuð og horfa á hana á hverjum degi,- og nú loksins má ég...

Svo fáið þið ykkur bara ávexti fram að hádegi. Passa bara að borða lítið í einu og hlusta vel á líkamann. Í hádeginu er upplagt að fá sér hafragraut með rúsínum, kanel og fræum eða lífræna AB- mjólk og ef til vill gott hrökkbrauð með hnetusmjöri og ferskum kryddjurtum.

Um miðjan daginn er gott að skjóta á sig tebolla og hrökkbrauði með tómötum og smátt söxuðum hvítlauk eða Tahinisósunni góðu. Eða bara gulrætur og kasjúhnetur, voða gott...

Á meðan þið eldið kvöldmatinn er gott að henda í eitt brauð , gerlaust og hveitilaust að sjálfsögðu:

WinkUppskrift að ger- og hveitilausu brauði:

350 gr. heilhveiti eða spelt

100 gr haframjöl

25gr sesamfræ

25gr hörfræ

5 tsk vínsteinslyftiduft

1 dl AB mjólk eða sojamjólk

3-4 dl vatn

Setjum þurrefnin í skál, blöndum mjólk og vatni saman við, hrært saman og sett í aflangt form og bakað við 180-200 gráður í 1 klst.

Við sendum inn fleiri brauðuppskriftir síðar en bendum á að margar góðar er líka að finna í Sollubókinni góðu.

Já og talandi um hana Sollu,- hvers vegna ekki að gera sér lífið létt og hafa gott Sollubuff í matinn í kvöld. Það er hægt að fá alls konar góð buff, hnetubuff er mitt uppáhald með stöppunni góðu úr sætu kartöflunum og svo ríf ég saman gulrætur, rófur og gúrkur og borða þetta svo allt saman með hummus sem fæst tilbúið eða ef ég hef tíma bý til geggjað góðgæti eftir uppskrift frá Móður náttúru  sem er svona:

Kóríanderchutney: 1 tsk cuminfræ, 3 msk kókosflögur, 3 msk fræblanda, Til eru fræ frá Móður náttúru, 1 búnt ferskur kóríander, 1-2 ferskir chilipipar, fræhreinsaðir, 1,5 sm engiferrót, 2 msk vatn, 3 msk lífræn AB mjólk, 1 msk hlynsíróp 1/2 tsk hafsalt

Þurristið kókosflögur og cuminfræ á pönnu, passið vel að það brenni ekki. Setjið allt hráefnið í matvinnsluvél og maukið vel saman og njótið svo vel. Bragðlaukarnir dansa af gleði!

Já þetta verður góður dagur á morgun, njótum hans vel og munum að sönn hamingja felst í því að vera lukkulegar með það sem við höfum.

Vöknum snemma og klæðum okkur í fallega liti því það undirstrikar okkar eðlislægu fegurð! Skoðum tunguna og brosum allan daginn...það er á við að fara undir hnífinn elskurnar mínar og miklu sársaukaminna.

Lovjú trúlí görls

a

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband