Jæja...nú er hann að verða búinn þessi fallegi dagur og á morgun byrjum við að víkka út matseðilinn, hægt og varlega ekkert óðagot elskulegu dömurnar mínar. Við ætlum nú nokkrar að skreppa í bæinn á morgun og byrja að skoða úrvalið..bara svona aðeins að testa örlítið og fá okkur að borða á Maður lifandi, hafa gaman og svona.
Eins og þið sáuð á bloggi gærdagsins byrjum við á hrísgrjónum og fylgið þeim leiðbeiningum sem birtust í gær fram á þriðjudag. Við munum svo setja hér inn uppskriftir og fleira sniðugt jafnóðum og það berst. Eigum von á góðri uppskrift að hveiti og gerlausu brauði svo eitthvað sé nefnt.
Ég hlakka mest til að geta fengið mér ferskan ananas á þriðjudaginn...umm það er mitt uppáhald já og mangó!
En til hamingju með þennan frábæra árangur, nú vigtum við á morgun og miðað við allt hnetu og fræátið er líklegt að það hafi farið 4-5 kg en það er ekki það skiptir máli að missa kílóin hratt, heldur hitt að við höfum öðlast innri ró og canditasveppurinn er pottþétt dauður. Það er mjög sniðugt að byggja sig nú vel upp, taka Spirulinu og Acidophilus næstu daga og svo höldum við okkur saman á beinu brautinni.
Heyrumst á morgun
gútnæt
a
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Félag kvenna í atvinnurekstri Allar konur standa saman
- Nýsköpunarmiðstöð Íslands Endalaus spennandi námskeið fyrir okkur
- Líkami, hugur og Sál Frábær staður til að byggja sig upp.
- Rósa Traustadóttir Æðislega jógastöð á Selfossi
- Sumarhús í fyrsta flokki Einstaklega fallegur staður undir fjallinu Búrfelli.
- Flottasti ferðamannastaður á Íslandi Alltaf gott að koma að Geysi
- Selfoss, Eyrarbakki, Stokkseyri og Sandvíkurhreppur My hometown:-)
- Húsið á Eyrarbakka og Byggðasafn Árnesinga Eitt skemmtilegasta safn á Íslandi
- Safnaklasi á Suðurlandi ÞAð er alltaf eitthvað að gerast á Suðurlandi
- Menningarráð Suðurlands Alltaf eitthvað gott starf í gangi
- Veitingastaður á Eyrarbakka Rómantískur staður og maturinn klikkar aldrei!
- Endalaus fróðleikur ein flottasta heimasíða sem ég hef séð!
- Listakonan Þórdís Frábærar myndir
- Fyrsti verslunarstaður Íslendinga Skemmtilegasta þorp á Íslandi
- Gallerí Gónhóll á Eyrarbakka Gisting, karkaðir, ráðstefnusalir og fleira
- Lista og tungumálamiðstöð fyrir börn og unglinga Spennandi námskeið fyrir alla krakka!
Myndaalbúm
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Blessuð og sæl dásamlega dama, má bara til með að commenta á þetta frábæra blogg hjá þér. (Átti nú svo sem ekki á von á öðru en einhverju frábæru frá þér Anna mín) Sit hér og borða lífræna hafragrautinn minn dásamlega með allskonar hnetum, möndlum, rúsínum, hunangi og soya mjólk og les þetta frábæra blogg. Hef fylgst spennt með gangi mála frá því ég fann þessa síðu eftir flandur á netinu, hef nefnilega mikinn áhuga á breyttu og bættu mataræði. Til hamingju með frábæran árangur og örugglega bætta heilsu og betri líðan
Dásamlegar dömukveðjur úr Edinborginni,
Kristjana
Kristjana Kjartans (IP-tala skráð) 7.5.2007 kl. 11:08
Takk elskulega dama og velkomin í hópinn fagra og heilnæma.
Mikið var gaman að heyra frá þér og gott að vita að heilnæmt matarræði er í hávegum haft í þessari dásamlegu borg. Fæ stundum sendingu frá ykkur með Sigga og fréttir af ykkur.
Kær kveðja
a
Anna S. Árnadóttir, 7.5.2007 kl. 23:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.