Elskulegu lekkeru dömurnar mínar,
Nú er síðasti hreini grænmetisdagurinn á morgun, sunnudag!
Nú ættum við allar að vera lausar við canditasveppinn og orðnar alveg skínandi að innan og utan og tilbúnar í allt! Allar þær dömur sem ég hef heyrt í eru glaðar og skýreygðar, kannski dálítið kinnfiskasognar en umfram allt glaðar í bragði. Það er svo ótrúlega gott fyrir egóið að setja sér reglur og aga sig í einhvern tíma, leyfa sér svo alls konar inná milli, ótt og títt en ekki oft, því allt sem við gerum á hverjum degi verður að vera hollt og gott fyrir okkur...bara svona uppá endingartímann þið vitið.
Á morgun skulum við njóta síðasta dagsins með því að elda allt sem okkur finnst gott í grænu línunni. Hitum okkur alls konar góð te og borðum úr nammiskálinni okkar, þessari með ristuðu kókosmjöli, hökkuðum möndlum, heslihnetum, valhnetum og fræjum. Munuð að borða hægt og tyggja vel. Dásamlegt snakk eru gulrætur og kasjúhnetur, vel tuggið og bragðið er himneskt...
Á mánudaginn byrjum við svo að brjóta föstuna og höldum því áfram hægt og hægt næsta hálfa mánuðinn. Það er gott að hlusta vel á líkamann og skrifa hjá sér hvað daman borðar og hvernig henni leið. Þannig getum við gert það sem er best fyrir okkur sjálfar því allar erum við einstakar þó við eigum ýmislegt sameiginlegt eins og t.d. úthald, áræðni, kjark og fegurð.
Við fáum okkur t.d. lúku af villihrísgrjónum með grænmetinu í hádeginu, ásamt smásmjöri eða hnetusmjöri. Kókosolía og karrí er líka æðislega gott eða bara hrein grjónin ef þið viljið.
Í kaffitímanum getum við fengið okkur hrökkbrauð með smjöri, hnetusmjöri eða grænmetiskæfu og svo auðvitað eðalgott te.
Um kvöldmatarleitið er gott að bæta linsubaunum í súpuna góðu , kúfulla af hollu grænmeti og möndlum. Ekki borða mjög mikið og ekki þenja út magann. Venjum okkur á að halda honum stöðugt inni, það er gott fyrir bakið og eykur reisn okkar og yndisþokka sem þó er þokkalegur fyrir!
Hlustum stöðugt á líkamann og finnum hvernig okkur líður. Passa að drekka nóg af góðu tei, grænmetissöfum og vatni. Anda djúpt og lifa vel.
Á þriðjudegi kemur svo það sem við flestar höfum hlakkað mest til...ávextir í morgunmat. Best að borða þá alveg sér og aldrei að blanda þeim með öðru. Helst að láta líða allt að hálftíma áður en við fáum okkur eitthvað annað ofan í mallakút. Þetta er vegna þess að ávextir eru svo auðmeltir og fljótir í gegn og þeim er illa við að aðrar fæðutegundir séu að flækjast fyrir þeim.
Meira á morgun elskurnar mínar lekkendink!
a
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Félag kvenna í atvinnurekstri Allar konur standa saman
- Nýsköpunarmiðstöð Íslands Endalaus spennandi námskeið fyrir okkur
- Líkami, hugur og Sál Frábær staður til að byggja sig upp.
- Rósa Traustadóttir Æðislega jógastöð á Selfossi
- Sumarhús í fyrsta flokki Einstaklega fallegur staður undir fjallinu Búrfelli.
- Flottasti ferðamannastaður á Íslandi Alltaf gott að koma að Geysi
- Selfoss, Eyrarbakki, Stokkseyri og Sandvíkurhreppur My hometown:-)
- Húsið á Eyrarbakka og Byggðasafn Árnesinga Eitt skemmtilegasta safn á Íslandi
- Safnaklasi á Suðurlandi ÞAð er alltaf eitthvað að gerast á Suðurlandi
- Menningarráð Suðurlands Alltaf eitthvað gott starf í gangi
- Veitingastaður á Eyrarbakka Rómantískur staður og maturinn klikkar aldrei!
- Endalaus fróðleikur ein flottasta heimasíða sem ég hef séð!
- Listakonan Þórdís Frábærar myndir
- Fyrsti verslunarstaður Íslendinga Skemmtilegasta þorp á Íslandi
- Gallerí Gónhóll á Eyrarbakka Gisting, karkaðir, ráðstefnusalir og fleira
- Lista og tungumálamiðstöð fyrir börn og unglinga Spennandi námskeið fyrir alla krakka!
Myndaalbúm
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.