Dömur á 11. og 12.degi!

Elskulegu dömur,

Það var svo mikið að gera í gær að ég komst ekki til þess að senda ykkur línu þannig að nú sendi ég ykkur 2 fyrir 1.

Ég hef heyrt í nokkrum af okkur dömunum sem erum enn á fullu í grænmetinu. Nokkrar eru alveg grænar en aðrar hafa tekið inn smá ávexti eða baunir og einstaka lífræna AB mjólk í hádeginu en allar eru þó að borða hreina fæðu og engin aukaefni. Sendið endilega póst og segið frá því hvernig ykkur líður en ekki síður hvort þið getið hist í næstu viku...stefnt að því að gera eitthvað saman á miðvikudagskvöld 9. maí..kannski bara kaffi og súkkulaði! Nei ætli það , við gerum allavega eitthvað skemmtilegt saman.

Ég var að prófa þessa Epsomhreinsun sem ég sá á síðunni : www.madurlifandi.is

Það gekk vel og á að gera næstu tvo daga líka, ætli það verði nokkuð eftir? Ég held ég sjái til með þetta, tek kannski bara tvo en annars líður mér vel. Hallgrímur læknir segir að það sé gott að taka 1 tsk í vatnsglasi áður en farið er að sofa,- á hverju kvöldi því það sé svo gott fyrir steinefnabúskapinn og svo sofi maður ósköp vel af þessu og vært. Svo er Epsomsalt mjög hollt og gott í baðvatnið. Kíkið endilega á þessa síðu: http://www.epsomsaltcouncil.org/

Var að koma af tónleikum Jórukórsins í Hólmaröst á Stokkseyri. Frábær kór og stjórnandinn Hlín Pétursdóttir, einstaklega geðug og falleg dama. Það ljómar af henni gleðin og þær stóðu sig allar vel. Svo kom þarna fram ungur og myndarlegur söngvari, Hermundur Þorsteinsson og sló rækilega í gegn. Sá held ég eigi eftir að slá í gegn í framtíðinni. Vona að hann haldi áfram að syngja fyrir okkur.

Nú er semsagt kominn föstudagur og nú er um að gera að gera vel við sig í mat og drykk...

Matseðill dagsins gæti sem best litið svona út:

Við sólarupprás eða þar um bil er það þá drykkurinn góði; vatn,  epsomsalt, sítrónusafi og ólífuolían

30 -60 mínútum síðar er kominn tími til að fá sér stóran bakka fullan af tómötum, agúrkum, möndlum og hnetum.

Í hádeginu er svo gott að fá sér ferskt salat og það mikið..með alls konar gommsí; kál, rauðlaukur, paprikur í öllum litum, rifnar gulrætur, brokkóli, ólífur, sólþurrkaðir tómatar, aspas, rauðbeður, fræ og hnetur.

Milli mála er gott að staupa sig á ferskum grænmetissöfum og stinga á sig tómötum..umm þeir eru svo góðir núna þessir íslensku. Hugsið ykkur hvað við erum heppnar að fá svona gott grænmeti. Ég var í Tyrklandi um daginn og þar eru tómatarnir afhýddir því þeir eru svo eitraðir! Jú , þetta er satt, þeir sögðu þetta sjálfir þarna tyrkjarnir.

En ein af okkur sagði mér reyndar að vara mig á sumu grænmeti hér sem væri í íslenskum umbúðum en flutt inn frá Hollandi sem væri eitt fárra landa sem leyfði einhver eiturefni sem annars væru bönnuð í sambandinu.Það er margt að varast en við höldum áfram að hlusta á líkamann okkar. Það sem er gott fyrir eina dömu getur verið slæmt fyrir aðra. Tökum til dæmis hnetur! Þær eru óendanlega góðar fyrir mig og hnetusmjör er mitt uppáhald, á meðan ein í hópnum þolir ekki hnetur og hatar hnetusmjör???? Það er svo gott að eftir því sem við hreinsumst fer líkaminn að tala meira við okkur og lætur okkur finna hvernig okkur líður af ákveðnum mat. Þess vegna er gott að skrifa matardagbók og skrá þá líka hvernig konu líður eftir hverja máltíð og þannig geturm við fundið út hverju við ættum að sleppa og hverju við ættum að halda.

Læt hér fylgja eina góða uppskrift fyrir þær sem eru hrifnar af hnetum....ég fer reyndar í matarboð í kvöld til hennar Kötu minnar og hún er alltaf með eitthvað gott og grænt þannig að ég þarf ekki nesti!

Grænmeti í leirpotti með loki eða eldföstu móti ...

Skerið niður rauðlauk, hvítlauk, gulrætur, kartöflur, sætar kartöflur, blómkál, brokkolí, rósakál,hvítkál, kúrbít og eggaldin...bara allt sem til er í  ísskápnum. Setjið fyrst í mótið smá kókosolíu ásamt rótargrænmetinu sem er kryddað með hafsalti og svörtum pipar, hnetusmjöri, lúku af möndlum eða valhnetum, karrí, cumin, kanill, kóriander og ferskur engifer síðast rifinn yfir. Annars má líka nota allt krydd sem ykkur þykir gott. Vætið í þessu með smá vatni og sítrónusafa og jafnvel er gott að setja einn gerlausan grænmetistening með. Bakið í ca 35 mínútur við 180 gráður.

Eftir 35 mínútur tökum við mótið úr ofninum, hrærum vel í og jöfnum til kryddið og hnetusmjörið og bætum svo kálinu, lauknum , paprikunni og öllu mjúka grænmetinu við.

Þetta er dásamlega gott með Tahinisósunni og passið að nota uppskriftina sem er á krukkunni, þessa með karríinu,- hin í Sollubók er of súr af sítrónu.

Ég vona þið eigið yndislegan dag og sólin skíni í hjörtum ykkar

knús og kram

a

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband