Dagur 7

Elskulegu fegurðardísir,

Hitti eina áðan í fermingarveislunni sem ætlar að drífa sig með í hópinn og vera með okkur í breyttum lífsstíl. Um að gera þó við séum byrjaðar ...þá erum við sko ekki hættar og aldrei of seint að vera með!

Ég fór auðvitað með mitt ferska græna te og borðaði vel af gómsætu grænmeti áður en ég fór. Ekkert mál og mér leið afskaplega vel þegar ég fór út. Það er svo gott að setja sér markmið og muna svo að klappa sér á bakið þegar vel tekst til. Okkur veitir ekki af að byggja okkur upp og trúa á okkur sjálfar. Nú ef við gerum mistök , þá er það allt í lagi, við lærum af þeim og reynum að gera betur næst.

Indverska boðið í gær var einstaklega skemmtilegt og velheppnað. Þarna var auðvitað alls kyns hollusta í gangi og mest úrval af grænmeti sem smakkaðist vel. Húsbóndinn fór út og tíndi í te! Hugsið ykkur, það er svo margt í náttúrunni sem er hollt og gott í te! Hann kom inn með túnfífill, kerfil og eitthvað fleira góðgæti, bætti svo í þurrkaðri maðjurt frá fyrra ári og smá af jurtum úr Danaveldi, nánar tiltekið frá Thyregod þeim yndislega bæ á Jótlandi.

 

Sem minnir mig á eitt! Cool

Við erum að skipuleggja kvennaferð til Danmerkur í september. Þetta eru tvær dagsetningar sem við erum að skoða og við förum með 10 konur í hóp. Flogið frá Keflavík 1. september kl. 15.30 í 2 1/2 tíma og lent í Billund á Jótlandi, ca. 20 mínútna akstur í litla sæta gula húsið okkar og þar tekur við okkur ... dekur og dúllerí, búðarrölt með stelpunum, nudd og jóga...pedi og mani, plokk og lit..nánar síðar! Verðið á fluginu er 25.800 með sköttum og það er komið heim 5. september frá Billund og lent í Keflavík 21:20.

Hin dagsetningin er svo 8.-12.september og þá er verðið á fluginu heldur hagstæðara eða 24.400 með sköttum. Verð á gistingu og fleiru fer svolítið eftir því hvað verður boðið uppá en ef ykkur langar með endilega látið vita sem fyrst því:

Fyrstar koma fyrstar fá! Sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær. Vel snyrt er konan ánægð!!!Grin

Nú er ég að fara að huga að kvöldmatnum. Er að spá í að elda afríska réttinn í Sollubókinni sem er á bls 156. Ein af okkur eldaði hann í gær og það gerði mikla lukku á heimilinu.

Munið að vera duglegar að borða og dekra við ykkur elskurnar.

Knús

a


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband