Dagur 5

Elskulegu dömur,

Hugsið ykkur...vikan er að verða búin og ekkert nema stærð 8 sem bíður okkur, hreinn og tær andardráttur, mjúk húð, glansandi hár, glerharðar neglur...

Þvílíkur munur!

Við vorum að tala um það í Lifandi Húsi í morgun að við lyktum einkennilega. Við fundum svona lykt af pissinu í morgun eins og þegar við erum á pensillíni eða eitthvað svoleiðis. Hreinsunin er greinilega að virka vel.

En þið verðið samt að passa ykkur vel að hlusta á líkamann ykkar. Þær sem eru að gera þetta í fyrsta sinn á æfinni, hafa borðað óhollt og drukkið mikið kaffi, geta fundið fyrir miklum óþægindum og slappleika og þá er best að fara hægar í sakirnar. Setja inn aftur ávexti á morgnana, kannski lífræna jógúrt í hádeginu og harðfiskbita inná milli. Þið eruð samt í hópnum og fáið sömu verðlaun!

Í kvöld ætla ég að fá mér glænýtt spínat með furuhnetum í forrétt. Svo er ég með gufusoðnar gulrætur, sætar kartöflur, blómkál og brokkóli ásamt slettu af Tahini sósunni í aðalrétt. Svo fæ ég mér nokkrar möndlur, fræ og ristaðar kókosflögur í eftirrétt og kannski bolla af góðu rauðrunnate.

Munið að borða nógu mikið og fjölbreytta liti af grænmeti...og drekka mikið af vatni og grænu te, grænmetissöfum og þess háttar góðgæti.

með dömulegri grænmetissveiflu

a


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband