Færsluflokkur: Lífstíll
Við erum að byrja undirbúninginn...
,,Lady in space- tú þásönd and eit" Geimskutlur, þokudísir, drottningar sólkerfanna...blár litur fer vel með mánasilfrinu og gulltónum sólarinnar, stjörnuþoku úthafanna...notum ímyndunaraflið og byrjum að spinna vefinn fyrir næsta dömuboð kæru drottningar.
Lífstíll | 26.2.2007 | 02:12 (breytt kl. 02:12) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinu árlega dömuboði okkar Árborgarkvenna er nú farsællega lokið. Þar mættu um 60 konur og fögnuðu 100 ára afmæli konungskomunnar en nú með nýjum áherslum því drottningar klæddu sig glæsilega upp og skemmtu sér saman undir styrkri stjórn Heiðars okkar Jónssonar.
Dömurnar mættu um klukkan 18.00 síðdegis og voru glæsilegar að vanda. Þær gengu inn á rauða dregilinn og þar tók kjólfataklæddur þjónn á móti þeim og leiddi þær í salinn.Allar komu með lekkera dömurétti en gestgjafinn bauð upp á rautt royalvín í anda temans sem var "Drottningin í okkur, eða Lady in Red." Tilgangurinn með þessum hittingi er auðvitað að kynnast nýjum konum og þess vegna eru alltaf nýjar konur í bland við kjarnann, það eina sem kona þarf að hafa til að bera er að vera skemmtileg og lekker kona sem hefur gaman af því að klæða sig upp og leyfa dömugenunum að blómstra í félagsskap annarra fegurðardísa.
Eftir að húsfreyjan steig á stokk og bauð gesti velkomna og bað þá gjöra svo vel að fá sér oggulítinn bita, tók Heiðar við og kenndi dömutaktana af einskærri innlifun. Er það mál kvenna að stórkostlega hafi tekist til og við erum nú orðnar algjörir snillingar að láta tábergið nema við grindarbotnsvöðvanna þegar við strjúkum rasskinnunum ljúflega við stólsetuna...og ekki gleyma hnjánum ..- alltaf saman nema þegar karlmaður er í nánd!!!úllalala!! Og muna að stilla afturlöppina!!!Síðan lærðum við að fara úr jakkanum þannig að viðstaddir standi á öndinni, virkilega lekkert að renna fingrinum svona´algjörlega af tilviljun daðurslega eftir munnvikinu..
Þetta var svoooo skemmtilegt sko! Svo var farið yfir kynlífið og sumar dömur roðnuðu í vöngum en aðrar létu sér hvergi bregða...sumar fengu að heyra að þær væru snöggar upp en aðrar niður, bogmenn voru flestir á staðnum,,,r..., búið bless,,,ætlar þú ekki úr fötunum maður, hvaða hangs er þetta eiginlega? Eins gott að fiskur og bogmaður lendi ekki saman, honum yrði fljótlega drekkt í gusuganginum ef einhvern tíma næðist að fylla baðkerið áður en bogmaðurinn væri hlaupinn til fjalla! Ósköp er að heyra þetta??
Við heyrðum svo fallega Maríubæn og fengum fyrirlestur um óperur, alveg dásamlegt.
Svo var lesið í augu, hann er ótrúlegur sögðu þær allar dömur jafnt sem drottningar könnuðust vel við þetta allt saman og þó var þetta ekki miðilsfundur og enginn í lopapeysu..og enginn minntist á reiðhjól! Allar vildu fá hann í einkatíma og vita meira, ekki skrítið!!!!
Sigrún Vala, sigurvegari í söngvakeppni Fsu, kom og söng fyrir okkur. Hreint út sagt yndisleg söngkona sem á mikla framtíð fyrir sér.
Að lokum var kosin dama kvöldsins en dómnefndin gat ekki alveg ákveðið sig þannig að tvær dömur hlutu verðlaunin sem voru leikhúsmiðar í Borgarleikhúsið. Lovísa Axelsdóttir var kosin dama kvöldsins og Christine Gísladóttir fékk aukaverðlaun því hún er svo ómótstæðileg líka.
Heiðar kvaddi okkur svo með pomp og pragt en áður fékk hann smálexíu í klósettferðum kvenna sem hann hafði fyrr um kvöldið gert að umtalsefni á þann hátt að við sáum okkur ekki annað fært en að leiða hann í allan sannleikan á staðnum sjáfum. Þetta heppnaðist með fádæmum vel og mun hann efalaust taka upp okkar siði í þessum efnum!
Húsinu var síðan lokað og læst fyrir karlmönnum og öðrum aðskotadýrum og það sem gerist innan veggja eftir kl 22.00 er algjört TOP SECRET! og verður ekki fært í letur....en gleðskapnum lauk um mjaltatíma á sunnudeginum og þá voru enn allar með rauða varalitinn...lúkkið verður að vera í lagi og dúið líka dömur!!
Lífstíll | 26.2.2007 | 00:47 (breytt kl. 08:26) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á þessu ári eru 100 ár liðin frá konungskomunni 1907, hverrar vér viljum nú minnast. Drottningar erum vér og munum nú heiðra minningu karlaveldis hinna horfnu tíma en jafnframt fagna breyttum og betri högum vorum og blása til veislu þar sem vér komum saman af glæsibrag og heiðrum konungsdæmið í hverri og einni.
Drottningardagur víns og rauðra rósa.... Laugardaginn 24.febrúar 2007 kl.18.00 síðdegis munum við drottningarnar hittast í gasalega lekkeru dömuboði. Sem eðalborinni dömu er yður hér með boðið að taka þátt í selskapnum ásamt öðrum þokkadísum bæjarins. Það þarf vart að taka það fram við drottningu eins og yður að nú ber að taka fram allt fínasta pússið og pjattið og sem allra mest í royalrauðum lit: síðkjól, hatt og hanska, hælaskó og alla stóru þungu glitrandi steinana sem rykfallið hafa í svissneskum bankahólfum fram að þessu!
Undirbúningsnefndin mælir með því að þér undirbúið yður af kostgæfni fyrir boðið og vér leyfum oss að benda á nokkur atriði sem reynst hafa afar vel: Takið laug um nónbilið í slakandi rósabaði með ískalt hvítvín og jarðarber á baðkersbrún meðan Edith eða Marlene mala letilega á grammifóninum. Á meðan Carmenrúllurnar hitna er gott að lakka táneglurnar, setja upp gerviaugnahárin eða prófa séttéringuna í himinbláum augnskuggunum,- ekki gleyma eldrauðum varalit sem er vörumerki sannrar drottningar.
Ef þér ætlið að fá yður oggulítið í staupinu og verða dulítið let på tåen þá er gott að taka með hugguleg drykkjarföng og ef til vill einhvern lítinn og sætan dömurétt þar sem oss gæti dvalist fram eftir....
Vellyktandi ásamt litlum sætum dömulegum drottningarfordrykk verður í boði hússins...en ef þér eigið einhverjar lekkerar myndir frá fyrri dömuboðum, þá endilega hafið þær með ef þér vilduð vera svo elskulegar. Hlakka til að sjá yður elskuleg!
Mynd
Veisla sú er frú Nielsen gekkst fyrir og annaðist um við Ölfusárbrú, til handa Friðriki konungi og föruneyti hans 1907, án nokkurs sýnilegs styrks úr ríkissjóði, sætti aðdáun. Hún var svo vegleg og snyrtileg, að konungurinn hafði sjálfur orð á því, hversu unaðslegt væri þar að vera.
Lífstíll | 22.2.2007 | 16:27 (breytt 26.2.2007 kl. 10:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Félag kvenna í atvinnurekstri Allar konur standa saman
- Nýsköpunarmiðstöð Íslands Endalaus spennandi námskeið fyrir okkur
- Líkami, hugur og Sál Frábær staður til að byggja sig upp.
- Rósa Traustadóttir Æðislega jógastöð á Selfossi
- Sumarhús í fyrsta flokki Einstaklega fallegur staður undir fjallinu Búrfelli.
- Flottasti ferðamannastaður á Íslandi Alltaf gott að koma að Geysi
- Selfoss, Eyrarbakki, Stokkseyri og Sandvíkurhreppur My hometown:-)
- Húsið á Eyrarbakka og Byggðasafn Árnesinga Eitt skemmtilegasta safn á Íslandi
- Safnaklasi á Suðurlandi ÞAð er alltaf eitthvað að gerast á Suðurlandi
- Menningarráð Suðurlands Alltaf eitthvað gott starf í gangi
- Veitingastaður á Eyrarbakka Rómantískur staður og maturinn klikkar aldrei!
- Endalaus fróðleikur ein flottasta heimasíða sem ég hef séð!
- Listakonan Þórdís Frábærar myndir
- Fyrsti verslunarstaður Íslendinga Skemmtilegasta þorp á Íslandi
- Gallerí Gónhóll á Eyrarbakka Gisting, karkaðir, ráðstefnusalir og fleira
- Lista og tungumálamiðstöð fyrir börn og unglinga Spennandi námskeið fyrir alla krakka!
Myndaalbúm
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 388789
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar